Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Algert útgöngubann hefur ríkt á Indlandi frá miðnætti 24. mars. Í kjölfarið hafa fjölmörg flækingsdýr sem reiða á fólk til að lifa orðið illa úti vegna hungurs. „Hér eru gríðarlega margir flæk- ingshundar og auk þess fjöldi kúa sem ganga eftirlitslausar eftir að þær hafa sinnt hlutverki sínu sem mjólkurkýr. Þessir flækingar reiða sig fólk sem fóðrar þá og lifa á rusli og matarafgöngum frá veitinga- stöðum og matargjöfum frá aðgerð- arsinnum. Þetta útgöngubann hefur því lok- að fyrir aðgang þeirra að fæðu,“ seg- ir Prashant Pathak í samtali við K100.is og Morgunblaðið. Hann og eiginkona hans Pooja BHat hafa tekið að sér að halda líf- inu í um hundrað flækingshundum, 25 flækingskúm og í kringum þús- und fuglum með því að gefa þeim reglulega mat. Þurftu að sækja um undanþágu frá útgöngubanni Pathak, sem kom til umræðu í morgunþættinum Ísland vaknar á K100 í gærmorgun, en hann er náinn vinur Jóns Axels, eins stjórnanda þáttarins, segir þau hjónin venjulega ekki vera virk í hjálparstarfi af þessu tagi. Þau hafi þó gert breyt- ingu á eftir að hafa séð neyð dýr- anna. Segir hann að þau hafi fyrst þurft að sækja um sérstakt leyfi til að mega fara út þrátt fyrir út- göngubannið og síðan þurft að finna ýmsar leiðir til að fá mat fyrir flæk- ingana. „Við förum alltaf sérstaka leið á leið okkar í vinnuna til að geta sinnt sem flestum dýrum á leiðinni. Í því felst að fóðra þau og passa upp á að gefa þeim flækingum sem þurfa á lyfjagjöf að halda lyf og láta vita ef við rekumst á veikan flæking,“ segir Pathak. Björguðu hundi með klettafjallasótt Pathak segir frá því að þau hjónin hafi til að mynda þurft að kalla á sjúkrabíl nýlega vegna flækings- hunds sem var illa farinn vegna klettafjallasóttar. „Við sendum hann í athvarf þar sem hugsað verður um hann og hann fær meðhöndlun við sjúkdómnum,“ segir hann. „Þetta útgöngubann hefur haft gríðarleg áhrif á þessi dýr. Við gef- um þeim mat en þau fá samt ekki nóg næringu. Ég er bara einn af mörgum. Konan mín er yndisleg og er að vinna kraftaverk en sem sam- félag eru meira en hundrað manns sem ég þekki að vinna að því að fóðra þessi dýr dag og nótt. Fólkið hér er frábært. Hér búa um 1,3 milljarðar og við erum að fóðra yfir milljarð flækinga.“ Fóðra hundruð flækinga í útgöngubanni Eftir að strangt útgöngubann var sett á í Indlandi sitja eftir milljónir flækinga sem venjulega reiða sig á matargjafir vegfarenda. Hópur fólks í Indlandi hefur tekið að sér að bjarga lífi þessara dýra með því að fóðra þau og sjá til þess að þau fái aðgang að dýralæknisþjón- ustu þrátt fyrir að neyðarástand ríki í landinu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Hjónin Prashant Pathak og Pooja BHat eru í hópi þessa fólks en þau hafa séð um að fóðra hundrað flækingshunda, 25 flækingskýr og í kringum þúsund fugla frá því útgöngubannið skall á. Ljósmyndir/Aðsend Varin Pooja BHat er ávallt með grímu fyrir vitum sér þegar hún fer út að fóðra flækingana. Heilagar Meira en fimm milljónir flækingskúa ganga eftirlitslausar um Ind- land vegna þess að bannað er að slátra þeim samkvæmt siðum hindúa. Hungraðir Pooja BHat og Prashant Pathak fóðra nú um 100 flækingshunda sem hafa farið illa út úr útgöngubanninu sem ríkir í Indlandi. Dóra Júlía dorajulia@k100.is Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur mælt með því að fólk takmarki nú lestur á fréttum sem valda því kvíða og vanlíðan og að það ein- blíni á jákvæðar og góðar fréttir sem gefa von. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að vera meðvitaður um það sem er að gerast og að hjálpast að við að fylgja þeim reglum sem settar hafa verið en á sama tíma er mikilvægt að við séum meðvituð um hvað við tökum til okkar og hverju við leyfum að hafa áhrif á sál okkar. Heilræði mitt er að þeg- ar við vöknum á morgun séum við meðvituð um það hvernig við vilj- um byrja daginn. Mér finnst oft gott að setja ímyndaðan verndar- hjúp yfir mig sem ýtir burtu því neikvæða og gerir mér kleift að meðtaka það sem kemur til mín með yfirvegun. Með því að gera það get ég tekið smá tíma til þess að ákveða hvaða áhrif ég vil að áskoranir dagsins hafi á mig. Yfir morgunkaffinu getum við svo reynt að sækja í eitthvað jákvætt og skemmtilegt, hvort sem það er lestur á einhverju jákvæðu, lag sem lætur okkur líða vel, fyndið myndband eða bara eitthvað annað og sjáum hvernig það getur haft jákvæð áhrif á allan daginn okkar. Ég vona að þið séuð að fara vel með ykkur og ég hugsa hlýtt til ykkar allra. Ljósi punkturinn með Dóru Júlíu Einblínum á jákvæðar fréttir Dj Dóra Júlía finnur ljósa punktinn í tilverunni og flytur góðar fréttir reglu- lega yfir daginn í útvarpinu og á vefnum. Fylgstu með á K100 og á k100.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.