Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 54

Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 ✝ Bjarni Guð-mundsson, raf- virkjameistari, fæddist 13. júlí 1936 á Hafnarhólmi við Selströnd í Strandasýslu. Hann lést 26. mars 2020. Foreldrar hans voru hjónin Guð- mundur Björgvin Bjarnason rafvirki, f. 1912, d. 1987, og Guðrún Björnsdóttir, húsmóðir, f. 1912, d. 2005. Systkini Bjarna voru Sigurmunda, f. 1932, d. 1993, Hallfríður, f. 1936, d. 2007, Baldur Júlíus, f. 1939, og Björg, f. 1947, auk þess var uppeld- isbróðir hans Björn Rúnar Sig- urðsson, f. 1958. Árið 1957 kvæntist Bjarni eig- inkonu sinni Hólmfríði Jóns- er Aaron Browning, þau eiga tvo syni Noah og Luke, og Leylu Fríðu. 4) Guðmundur Jón, f. 1967, kona hans er Arnbjörg Drífa Káradóttir, börn þeirra eru Bjarni Ragnar, Salóme Rós og Hólmfríður Rún. 5) Bjarn- fríður, f. 1971, hennar maður er Hermann Árni Karlsson og eiga þau þrjá syni, Karl Dúa, Bjarna Hrafn og Benedikt Árna. Bjarni ólst upp á Hólmavík og fluttist árið 1954 til Keflavíkur til að læra rafiðn hjá móð- urbróður sínum Kristni Björns- syni. Þeir, ásamt Ingvari Hall- grímssyni, áttu fyrirtækið Rafiðn sem var eitt elsta og stærsta rafiðnaðarfyrirtækið á Suðurnesjum. Fyrirtækið sinnti einkum sjávarútvegi á svæðinu. Bjarni seldi sinn hlut í Rafiðn ár- ið 1991 og hóf þá störf í raf- magnseftirliti hjá Hitaveitu Suð- urnesja þar sem hann starfaði til ársins 2006. Útför Bjarna fer fram frá Út- skálakirkju í dag, 2. apríl 2020, og verður í kyrrþey í samræmi við reglur um samkomubann. dóttur, f. 1937, hún var fædd og uppalin í Keflavík þar sem þau hjónin byggðu sér hús á Hring- braut 56. Þau eign- uðust fimm börn sem eru 1) Guðfinna Sesselja, f. 1957, hennar maður er Vilhjálmur Krist- jánsson og eiga þau eina dóttur, Hólm- fríði sem gift er Martin Sappia, þeirra börn eru Mathías, Soffía, Sesselja og Lúkas. 2) Guðrún, f. 1959, hennar maður er Ásmund- ur Jónsson, börn þeirra eru Anna Sóley, Lilja María og Mika- el Máni. 3) Guðbjörg, f. 1962, bú- sett í Bandaríkjunum, hennar maður er Ali M. Özgun og eiga þau tvær dætur, Dóru, sem gift Með þakklæti og kærleika í huga minnumst við föður okkar, Bjarna Guðmundssonar, sem var eðalmenni af gamla skólanum, reglusamur og hógvær. Á kveðju- stund er ofarlega í huga lífshlaup hans og mannkostir. Pabbi ólst upp á Hólmavík. Þegar hann kom til Keflavíkur 18 ára gamall virkaði landslagið þar afskaplega óaðlaðandi og hann saknaði sárt náttúrufegurð- ar Strandasýslunnar sem hann þreyttist ekki á að dásama alla ævi, enda var hann Strandamaður af lífi og sál. Þar þekkti hann vel til, faðir hans fæddist á Bæ í Tré- kyllisvík og móðir hans ólst upp á Selströndinni, hann átti líka for- feður á Klúku í Bjarnarfirði og víðar um sýsluna. Á dánarbeði rifjaði hann upp sín fyrstu kynni af flatneskjunni í Keflavík sem hann ósjálfrátt bar saman við ægi- fagrar æskustöðvar. Þó breyttist fljótt viðhorf hans til Keflavíkur og náttúrunnar á Suðurnesjum þegar hann hitti mömmu árið 1956, þá lagðist blíðan hennar yfir allt og eftir það var staðurinn og náttúran lituð fögrum, björtum tónum. Hann lærði að meta fegurð Reykjanesskagans og Suður- nesja, enda dáði hann íslenska náttúru, fuglalíf og gróður. Pabbi var gæfumaður sem hlúði vel að fjölskyldunni. Til vitn- isburðar er húsið sem þau mamma byggðu, á Hringbraut 56 í Kefla- vík. Það er á tveimur hæðum og var íbúðin á neðri hæðinni hugsuð fyrir okkur börnin sem stökkpall- ur út í lífið. Öll höfum við búið þar með okkar mökum í skemmri eða lengri tíma og flest barnabörnin sömuleiðis. Þarna var ekki bara heimili heldur heil veröld þar sem fallegu straumarnir og góð lífsgildi afa og ömmu fylgdu þeim fyrstu skrefin. Þegar afi var að vinna í bílskúrn- um eða garðinum, þá fékk ekkert haldið börnunum frá honum, sama hvernig viðraði. Hann fékk þeim líka verkefni við hæfi og þá ljómuðu bæði pabbi og börnin. Góða og þægilega nærveru og styrk pabba fundu tengdabörnin líka enda var hann þeim sem ann- ar faðir. Á síðasta ári fluttu for- eldrar okkar á neðri hæðina á Hringbrautinni sem var endur- hönnuð miðað við þarfir eldri borgara. Pabbi hafði mikið jafnaðargeð og var seinþreyttur til vandræða, en hann var fylginn sér og hikaði ekki við að stíga fram sér í lagi ef honum þótti á öðrum brotið. Þá tók hann sterka stöðu og með fáum orðum og skýru látbragði gaf hann til kynna hvernig hann taldi að haga skyldi málum og sú varð þá oftast raunin. Pabbi var traustur, hann stóð alltaf við sitt og fólk sem kynntist honum tók fljótt eftir því. Pabbi var þeirrar skoðunar að við ætt- um að vanda okkur í lífinu, á hverjum degi, og það gerði hann svo sannarlega. Guð blessi minn- inguna um yndislegan föður. Guðfinna, Guðrún, Guðbjörg, Guðmundur og Bjarnfríður. Tengdafaðir minn, Bjarni Guð- mundsson, er fallinn frá. Heil- steyptari mann hef ég ekki fyrir- hitt um ævina. Hógvær var hann og barst ekki á, honum var það reyndar þvert um geð. Bjarni var mikill fjölskyldumaður og stóð þétt við bakið á börnum sínum alla tíð. Þá er mér afar minnisstætt hvað hann dýrkaði Hólmfríði sína og fallegra hjónabandi hef ég ekki orðið vitni að. Bjarni elskaði heim- ilið sitt við Hringbraut 56, það var hans heilagi reitur sem hann pass- aði ávallt upp á að væri vel við haldið. Þegar ég tók saman við elstu dóttur Bjarna tók hann mér vel og reyndist hinn besti tengda- faðir og vinur. Ég skildi fljótt að guð og gæfan hafði gefið mér ynd- islega konu og fjölskyldu sem hef- ur æ síðan verið kjölfestan í mínu lífi. Takk fyrir allt kæri tengdafað- ir og vinur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Vilhjálmur Kristjánsson. Við minnumst yndislegs afa sem fyrirmyndar okkar í lífinu. Speki hans var slík að oft leituðum við barnabörnin til hans með alls konar úrlausnarefni. Hann leið- beindi og gaf einfaldar lausnir sem virkuðu vel. Ráð við martröðum og hræðslu var að biðja Faðirvorið aftur og aftur. Ráð við vanlíðan var að hrista sig og takast á við tilveruna af hugrekki. Bílum var klappað ef þeir sýndu merki um uppgjöf og hrukku þeir gjarnan í lag við það. En helst af öllu gaf hann okkur öll- um öryggistilfinningu með æðru- leysi sínu og fullvissunni um það að alltaf verður allt, allt í lagi. Afi var greiðvikinn, þá mann- kosti átti hann ekki langt að sækja enda var Guðmundur faðir hans víða þekktur fyrir hjálpsemi. Afi hefur sagt okkur sögu frá fyrstu ferð þeirra, ömmu og hans, til æskuslóðanna á Ströndum. Þau áðu nokkrum sinnum á leiðinni og borðuðu nesti. Á síðasta áningar- staðnum kom í ljós að það vantaði mjólk með kaffinu. Afi kannaðist við bæ sem var ekki langt undan og föluðust þau eftir mjólk. Eins og gengur þá spurði bóndinn hverra manna þau væru. Þegar hann áttaði sig á að þar væri kominn sonur Guðmundar frá Hólmavík þá lyftist brúnin á bónda og hann bauð þeim að þiggja veitingar. Hann sagði þeim frá ófáum skiptunum þegar Guð- mundur hafði endurgjaldslaust hjálpað þeim hjónum og fleirum í sveitinni með allt það sem hafði með rafmagn að gera. Svona var afi Bjarni, alveg eins, hann var úr- ræðagóður og hjálpsamur alla ævi. Sín fyrstu búskaparár bjuggu afi og amma hjá foreldrum ömmu á Túngötu 10 í Keflavík. Lang- amma Guðfinna og langafi Jón voru ekki lengi að átta sig á því hvaða mann afi hafði að geyma. Langamma var góður mann- þekkjari og átti gott með að koma fyrir sig orði, svona orti hún til afa þegar hann gekk að eiga dóttur hennar 13. apríl 1957: Í þinn kærleiksarminn sterka örugg legg ég barnið mitt. Atlot þín til orða og verka endurspegla hjarta þitt. Það voru forréttindi að njóta leiðsagnar ömmu og afa. Amma okkar er drottning og við munum passa vel upp á hana. Við erum þakklát fyrir umhyggjusemina og yndislegar samverustundir með þeim. Fyrir hönd afa- og langafa- barna, Hólmfríður Vilhjálmsdóttir. Bjarni Guðmundsson Úffff, elsku Benó. Hvernig í ósköpun- um á maður að byrja að skrifa minningar- orð um þig? Skemmtilegasta, fyndnasta og hjartahlýjasta manninn? Manninn sem á ekki að vera farinn? Að fá að þekkja þig í 25 ár er ekki nóg. Þegar þið Emý systir Benedikt Bragason ✝ BenediktBragason fæddist 26. ágúst 1970. Hann lést 14. mars 2020. Útför Benedikts fór fram 24. mars 2020. tókuð saman, þá byrjaði fjörið! Öll fjölskyldan bókstaf- lega dýrkaði þig og ekki að ástæðulausu. En svona fyrir utan allar fyndnu og skemmtilegu sög- urnar (sem voru reglulega rifjaðar upp) voru alveg jafn margar fallegar og upplífgandi. Enda- laust úti með Dagnýju Lind í fót- bolta og svo seinna bættist Ben- óný Orri, sonur þinn og ástin í lífinu, við. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að rifja upp allar stundirnar okkar Dadda með þér og Emý því þær eru endalausar og mjög svo mikilvægar minningar. Allar stundirnar í Eikjuvogi, allar stundirnar á Frakkastígnum, all- ar stundirnar í Deildarásnum og svo í Hraunbænum. Þegar mamma dó árið 2018 tók „hetjan Benó“ við. Þú algjörlega sást um mig og Emý og varst peppari, bílstjóri, drifkraftur og allt sem við þurftum. Þú varst vinur litla mannsins og með hjarta úr gulli. Ég skal passa Emý og Benóný Orra og þú skilar kveðju til mömmu og „afa Braga“. Nú er stuð í himnaríki og ég get rétt ímyndað mér hvernig þú mættir á svæðið; með hlátri og lát- um. Ég elska þig Benó og gleymi þér aldrei. Elsku Begga og fjölskylda, hugur minn er hjá ykkur. Takk fyrir að gefa okkur Benó. Þín vinkona, Harpa. Það er með mikilli sorg sem ég kveð þig Benedikt minn. Foreldr- ar þínir, Bergljót Sveinsdóttir og séra Bragi Benediktsson, bjuggu í Hafnarfirði og varst þú fimmta barn þeirra. Þegar Soffía systir þín hringdi til mín og tilkynnti mér um andlát þitt var mér mjög brugðið en við móðir þín höfum verið vinkonur alla okkar ævi. Ég man vel þegar þú komst eitt sinn með foreldrum þínum til okk- ar Boga í bústaðinn í Mjóanesi á Þingvöllum. Þá var gaman og sól- in skein glatt á okkur. Einnig man ég þegar þú komst og heimsóttir okkur í Sigtúnið og samgladdist okkur með húsið sem við höfðum þá nýlega keypt. Bennó minn, þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Þú varst dug- legur og lærðir kjötiðn en það átti betur við þig að vera til sjós. Það var eitthvað heillandi og frjálst. Bergljót mín, ég sendi þér, Benóný Orra, syni Benedikts, og fjölskyldunni allri innilegar sam- úðarkveðjur. Sigrún Sigurþórsdóttir. Elsku Benó. Ég er svo þakklát fyrir vináttu okkur og allan hlát- urinn, spjöllin og allt flippið. Þú varst bara þannig týpa að það var hægt að fá þig í allt mögulegt og alltaf var gaman. Börnin okkar voru eins og systkini og eru það enn. Ég lofa að passa vel upp á Ben- óný minn og Emí mína. Ég mun sjá um að vera skemmtikrafturinn núna. Þú varst vinur vina þinna og ég vissi alltaf að ég gæti leitað til þín, alltaf komstu manni til að hlæja. Við eigum eftir að sakna hláturs þíns og prakkarastrik- anna. Ég trúi því að þú sért komin í ljósið og passir upp á strákinn þinn sem þú elskar svo mikið, þú varst alltaf svo góður pabbi. Við elskum þig, Benóný og Emí. Ég er þakklát fyrir allar minningarnar, takk fyrir allt, bless í bili þangað til næst. Guð geymi þig og fjölskylduna og gefi þeim öllum styrk. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Ómar Ragnarsson/Gísli á Upp- sölum) Maggý, Maggi, Sóldögg og Vera. Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum. Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SNJÁFRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Þorragötu 5, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 20. mars. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hjartans þakkir færum við starfsfólki á Sóltúni fyrir hlýju, alúð og góða umönnun. Sigrún Kristjánsdóttir Sveinbjörn Jónsson Erna Kristjánsdóttir Ísleifur Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ALDA BJÖRNSDÓTTIR, áður til heimilis á Túngötu 22, Vestmannaeyjum, andaðist á dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum aðfaranótt 18. mars. Útförin fór fram í kyrrþey frá Landakirkju 28. mars. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Hraunbúða einstaka umönnun og velvild. Hörður Hilmisson Marentza Paulsen Hrefna Hilmisdóttir Örn Ólafsson Guðný Sigríður Hilmisdóttir Birna Hilmisdóttir Inga Jóna Hilmisdóttir Högni Hilmisson Anna Stefanía Erlendsdóttir Óðinn Hilmisson Martina Fillippone Örn Hilmisson Annika Morit Guðnadóttir barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubarn Elskuleg móðir okkar tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLÍN SIGURÐARDÓTTIR, Lína, frá Selárdal í Súgandafirði, lést föstudaginn 27. mars á Hjúkrunarheimilinu Höfða, Akranesi. Innilegar þakkir sendum við starfsfólkinu á Höfða fyrir einstaka umönnun, vináttu og virðingu. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu fer útför fram í kyrrþey en minningarathöfn verður auglýst síðar. Sigurður Kristján Garðarsson Pálína Kristín Garðarsdóttir Hjörtur Davíðsson Óskar Gíslason Steinunn Jónsdóttir Arnar Jónsson Alexander Óðinn, Garðar Orri og Hrafnhildur Freyja Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON, bifreiðastjóri, Vogatungu 89, Kópavogi, lést á krabbameinsdeild Landspítans við Hringbraut aðfaranótt 30. mars. Jarðarför hans verður frestað um óákveðinn tíma vegna samkomubanns og auglýst síðar. Lára G. Vilhjálmsdóttir Pálmi Aðalbjörnsson Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson Elsa Kristín Helgadóttir Hjördís Vilhjálmsdóttir Anton Sigurðsson Klara Sveinbjörnsdóttir Helgi Valgeirsson Sigríður Sveinbjörnsdóttir Kim Sorning Guðmundur Baldursson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SÓLVEIGAR HULDU JÓNSDÓTTUR, Dollýjar, Hlévangi, Reykjanesbæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Hlévangs fyrir alúð og einstaka umönnun. Guðbjörg Jóna Pálsdóttir Sigurður Hallmann Ísleifsson Jón Örn Pálsson Elísabet Kjartansdóttir Magnús Valur Pálsson Jóna Guðrún Jónsdóttir Þórður Pálsson Laufey Eydal Kristinn Pálsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.