Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 60

Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 60
60 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 50 ára Skúli er Keflvík- ingur en býr í Kópa- vogi. Hann er lyfja- fræðingur að mennt frá HÍ og lauk doktors- námi þaðan. Skúli er lyfsali og rekur apótek- ið Íslandsapótek á Laugavegi. Maki: Guðríður Hallgrímsdóttir, f. 1976, hárgreiðslukona og heildsali. Börn: Guðjón Trausti, f. 1994, Gréta Björg, f. 2001, og Eva Björg, f. 2006. Foreldrar: Skúli Guðjónsson, f. 1942, fv. flugstjóri, búsettur í Hafnarfirði, og Grethe Iversen, f. 1944, fv. verslunar- stjóri í Fríhöfninni, búsett í Keflavík. Skúli Skúlason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að temja þér meiri þol- inmæði. Gakktu hægt um gleðinnar dyr. Vertu viss um hvað þú vilt þegar þú ert spurð/ur. 20. apríl - 20. maí  Naut Það reynir á samskipti þín við fólk í dag. Ekki ætlast til að allt snúist í kringum þig. Sýndu sveigjanleika í samninga- viðræðum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ástvinur leyfir þér ekki að gleyma sér á næstunni. Talaðu tæpitungulaust og ekki draga fólk í dilka. Hver er sinnar gæfu smiður. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Vandamál þitt er ekki hægt að leysa með peningum. Hjá þér fer of mikil orka í að kvarta yfir hlutunum. Ef þú reyndir þó ekki væri nema aðeins að sjá jákvæða hluti í að- stæðunum þá liði þér miklu betur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Mundu að ást er stundum að taka þarfir einhvers annars fram fyrir sínar eigin. Þér gæti ekki verið meira sama um hvernig aðrir haga lífi sínu. Þú veist hvað þú hefur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Samskiptaörðugleikar halda áfram að valda þér gremju í dag. Til að halda þér á floti í dag er best að eyða deginum í fé- lagsskap fólks sem er jákvætt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft að setja öðrum úrslitakosti og það veldur þér hugarangri. Margir eiga fullt í fangi með að fylgja þér eftir, en þeir reyna. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Stundum verður bara að kýla á hlutina en ekki bíða þess að þeirra tími sé kominn. Kvenkyns félagar geta reynst sér- staklega hjálplegir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Í dag er ekki rétti tíminn til þess að leita sátta í fjölskyldunni. Leyfðu málunum að róast fyrst. Vertu í núinu, þú átt ekkert annað. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ef einhver reynir að telja þér hughvarf í dag muntu verja afstöðu þína með kjafti og klóm. Reyndu að vinna meira í einrúmi eftir því sem líða tekur á daginn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Marga langar til þess að vera þú eða fá tíma þinn eða athygli. Aðrir líta til þín um forustu svo þú mátt hvergi bregðast. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að ræða nokkur áríðandi mál við þína nánustu sem síðan reynast minniháttar. að vera formaður í stóru búgreina- félagi. „Sá tími var ákaflega krefjandi en greinin gekk í gegnum hremmingar á mörkuðum erlendis sem hafði veruleg áhrif á afkomu bænda. Samningar ríkis við sauðfjárbændur voru endurskoðaðir á þessum tíma, þar náðum við inn mikilvægum verkfærum til sveiflujöfnunnar. Við settum markið á metnaðarfull verk- efni í loftslagsmálum og lögðum áherslu á grænni og nútímalegri frábæra sveitunga og það gefur einnig lífinu gildi.“ Félagsstörf „Ég hef talsvert verið viðloðandi félagsstörf bænda án þess að hafa endilega haft það að markmiði,“ en Oddný var einn stofnenda Samtaka ungra bænda árið 2009. Hún tók sæti sem varaformaður í stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda árið 2012 en gegndi þar formennsku 2017-2019. Hún var fyrst kvenna til O ddný Steina Valsdóttir fæddist 2. apríl 1980 í Úthlíð í Skaftártungu og ólst þar upp. „Skaft- ártunga er líklega fal- legust sveita á Íslandi,“ segir Oddný. Oddný gekk í Kirkjubæjarskóla en framhaldsskólagangan hófst á Skógum undir Eyjafjöllum. Hún tók fyrri tvö árin í Skógaskóla en seinni tvö kláruð frá Fjölbrautaskólanum á Selfossi. Þá lá leiðin á Hvanneyri og útskrifaðist Oddný úr búfræði 2001. Oddný hóf í framhaldi nám í jarð- fræði við Háskóla íslands og dvaldi eina önn í Reykjavík. Hún skipti þá aftur yfir í háskólanám í búvísindum og kláraði BS-120 gráðu frá Land- búnaðarháskóla Íslands árið 2005. „Sumarvinna mín á námsárunum ásamt landbúnaðarstörfum heima í Úthlíð var þjónustustörf en þegar kom lengra í námið vann ég hjá bún- aðarsamböndum bæði á Suður- og Austurlandi þar sem ég fékk gagn- lega reynslu af gerð rekstrargrein- inga og áætlana fyrir bændur.“ Árið 2004 tók lífið svo ákveðna stefnu þegar henni og Ágústi, manni hennar, buðust kaup á búrekstri á Butru í Fljótshlíð. „Síðan þá hefur verið vinna okkar og áhugamál að byggja upp jörðina. Hér voru rúm- lega 100 ær þegar við tókum við en búskapurinn á bænum hafði þá stað- ið í stað um nokkurt skeið. Við höf- um á þessum árum endurbætt nán- ast allar girðingar og húsakost, byggt fjárhús og íbúðarhús, endur- ræktað öll tún, tvöfaldað ræktunar- landið og bætt við bústofninn sem núna telur um 500 fjár og um 60 naut. Þetta hafa verið gjöful og ótrúlega skemmtileg ár. Að standa að búrekstri með maka sínum krefst mikillar samvinnu og viðvarandi samveru alla daga, ég er heppin að hafa skemmtilegan félaga í þessu. Það er nauðsynlegt að geta haft það skemmtilegt saman. Barna- lánið hefur leikið við okkur en við eigum þrjú börn fædd á fjögurra ára tímabili. Í Fljótshlíð er talsvert af ungu fólki og mörg börn á aldur við okkar. Samfélagið hér er gott og einstaklega vinsamlegt, við eigum nálgun og ásýnd, því voru mörg verkefni undir. Landnýtingar- og beitarmál voru ofarlega á baugi þennan tíma. Við lögðum áherslu á að efla faglega þekkingu og bæta nálgun við mat á sjálfbærni beitarnýtingar. Lykil- atriði í því samhengi er vöktun á gróður- og jarðvegsauðlindinni og fyrir slíku verkefni töluðum við sleitulaust frá 2012 en árið 2017 var skrifað undir samkomulag um slíkt verkefni sem er samstarfsverkefni Oddný Steina Valsdóttir bóndi – 40 ára Butra í Fljótshlíð Oddný og Ágúst tóku við rekstri búsins árið 2004, hagarnir og fjallið Þríhyrningur eru í baksýn. Með myndarbúskap á Butru Systkinin Valur, Jens Eyvindur og Auður við Jökulsárlón 2018.Bændurnir Oddný og Ágúst. 30 ára Ásta er Reyk- víkingur, ólst að mestu upp í Seljahverfinu en býr í Vesturbænum. Hún stundaði nám í viðskiptafræði og upp- eldisfræði í HÍ, var flugfreyja hjá Wow air og er í fæðingarorlofi. Maki: Eiríkur Páll Erlendsson, f. 1989, smiður og verktaki. Dóttir: Harpa Karen Eiríksdóttir, f. 2019. Foreldrar: Jón Þór Stefánsson, f. 1967, framkvæmastjóri erlendis, og Vilborg Linda Indriðadóttir, f. 1967, hjúkrunar- fræðingur og aðstoðardeildarstjóri á Landspítalanum. Þau eru búsett í Reykja- vík. Ásthildur María Jónsdóttir Til hamingju með daginn Reykjavík Harpa Karen Eiríksdóttir fæddist 21. september 2019 kl. 22.27 í Reykjavík. Hún vó 4.660 g og var 55,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Ásthildur María Jónsdóttir og Eiríkur Páll Erlingsson. Nýr borgari Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi, Akureyri | ) 588 0640 | casa.is Cuero Mariposa Hannaður árið 1938 af: Bonet, Kurchan & Ferrari Leður stóll verð 149.000,- Leður púði verð 13.900,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.