Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 63
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Landsleikir karla- og kvennalandsliða Íslands í
undankeppni Evrópumótanna í fótbolta fara ekki
fram í júnímánuði eins og stefnt var að. Knatt-
spyrnusamband Evrópu, UEFA, fundaði með
fulltrúum allra 55 aðildarþjóðanna í gær og til-
kynnti síðan þetta og fleira að loknum fundi
framkvæmdastjórnarinnar sem haldinn var í
kjölfarið.
Umspilinu fyrir EM karla þar sem Ísland
mætir Rúmeníu var upphaflega frestað frá 26.
mars til 4. júní. Nú hefur umspilinu verið frestað
um óákveðinn tíma, líklega til haustsins, enda er
svigrúmið til að ljúka því orðið mun meira en áð-
ur eftir að lokakeppni EM var frestað um eitt ár,
til sumarsins 2021.
Kvennalandslið Íslands átti að mæta Ung-
verjalandi, Slóvakíu, Lettlandi og Svíþjóð í
undankeppni EM 2021 í apríl og júní. Þeim leikj-
um hefur verið frestað um óákveðinn tíma, enda
er nú nánast öruggt að EM kvenna verði frestað
til sumarsins 2022.
Þar með hefur aðildarþjóðum UEFA verið
gefið enn betra svigrúm til að ljúka sínum
keppnistímabilum en almennt er nú stefnt að því
að hefja deildakeppni í Evrópu á ný í júní og
ljúka henni í júlí eða jafnvel í ágúst.
UEFA hefur ennfremur gefið upp að stefnt sé
að því að ljúka Meistaradeild Evrópu og Evrópu-
deild UEFA í júlí og ágúst en í báðum mótunum
er sextán liða úrslitum ólokið.
U19 ára landslið kvenna hefur lokið keppni í
EM 2020. Liðið var komið í milliriðil og átti að
leika um sæti í lokakeppninni í Hollandi um
miðjan þennan mánuð. Keppninni hefur nú verið
aflýst, rétt eins og keppni U17 ára karla, en þar
komst Ísland ekki áfram.
U19 ára landslið karla og U17 ára landslið
kvenna eiga hins vegar möguleika á að ná lengra
á EM. Bæði eru komin í milliriðla og þar sem
leikið er um sæti á HM í þessum aldursflokkum í
lokakeppni EM hefur þeim mótum verið frestað
en þeim ekki aflýst.
Deildir Evrópu spilaðar í sumar – landsleikjum frestað
ÍÞRÓTTIR 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
Eins og útlitið er núna bendir
fátt til þess að ÍR muni tefla fram
meistaraflokki kvenna í hand-
boltanum næsta vetur. ÍR-ingar
greindu frá þessu í síðustu viku
og einhverjir leikmanna liðsins
hafa lýst vonbrigðum sínum.
Framarar hafa blandast inn í um-
ræðuna því Fram bauðst til þess
að spila ágóðaleik við kvennalið
ÍR til að afla fjár.
Sé farið aðeins aftur í tímann þá
hefur það gerst áður að ÍR hafi
ekki boðið upp á meistaraflokk
kvenna í handboltanum. Þá var
félagið í þeirri stöðu að innan
handknattleiksdeildarinnar
höfðu alist upp margar snjallar
handboltakonur.
Þær voru að ég held ekki komn-
ar á meistaraflokksaldur en reru
á önnur mið vegna þessara að-
stæðna. Fjöldi þeirra lét mjög að
sér kveða. Má nefna þar nefna
markahæstu landsliðskonuna frá
upphafi, Hrafnhildi Skúladóttur,
og systur hennar Dagnýju og
Drífu. Einnig Guðnýju Jennýju
Ásmundsdóttur, Þórdísi Brynj-
ólfsdóttur, Hafrúnu Kristjáns-
dóttur og Guðrúnu Hólmgeirs-
dóttur. Sjálfsagt mætti nefna
fleiri.
Önnur félög fengu að njóta
krafta þessara leikmanna og
unnu margar þeirra fjölda titla.
Ekki sneru þær aftur í ÍR svo ég
muni. Hvort það hafi verið vegna
sárinda yfir ákvörðun félagsins
þekki ég ekki. Er þetta skrifað
eftir minni sem einu sinni var
ágætt en fer versnandi með
hverju árinu.
Ef til vill eru nú efnilegir leik-
menn í yngri flokkum ÍR eins og
þá en manni finnst sagan vera að
endurtaka sig í einhverri mynd
alla vega. En þetta sýnir líka
hvað starfsemi í íþróttahreyfing-
unni er ofboðslega viðkvæm.
Það virðist alltaf vanta meira
fjármagn og fleiri sjálfboðaliða.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
ÍTALÍA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður
Íslands í knattspyrnu og leikmaður
Brescia í ítölsku A-deildinni, hefur
ekki farið mikið út úr húsi undan-
farnar vikur vegna kórónuveir-
unnar sem nú herjar á heims-
byggðina.
Birkir, sem er 31 árs gamall, býr
í Brescia, rúmlega 200 þúsund
manna borg í Langbarðalandi í
norðurhluta Ítalíu. Ítalía er það
Evrópuland sem hefur farið verst
úr út úr veirunni en alls hafa tæp-
lega 106 þúsund manns greinst
með veiruna þar í landi og þar af
eru 12.428 látnir vegna hennar.
Kórónveirufaraldurinn hefur
leikið íbúa Langbarðalands grátt
en þar hafa flest smitin í landinu
verið staðfest og ríkir algjört út-
göngubann í héraðinu þessa dag-
ana.
„Ástandið hérna er ekki gott,
það verður bara að segjast,“ sagði
Birkir í samtali við Morgunblaðið í
gær. Göturnar hér eru nánast allar
auðar og borgin minnir um margt á
draugabæ þessa dagana. Það hefur
ríkt útgöngubann hérna undan-
farnar þrjár vikur og fólk virðir
það. Þú mátt fara út í apótek og
matvörubúð til þess að kaupa nauð-
synjavörur en yfirvöld vilja að fólk
fari eins sjaldan út og kostur er.
Maður á í raun bara að fara í
mesta lagi einu sinni í viku út í búð
en annars er maður bara læstur
inni í íbúð.“
Fylgir öllum fyrirmælum
Landsliðsmaðurinn skrifaði undir
átján mánaða samning við Brescia
18. janúar síðastliðinn en hann kom
til félagsins á frjálsri sölu. Hann
reyndi hvað hann gat til þess að
komast til Íslands þegar hann sá í
hvað stefndi á Ítalíu en fékk ekki
leyfi frá félagsliði sínu til þess að
yfirgefa landið.
„Ég reyndi að komast heim til
Íslands þegar faraldurinn var að
byrja hérna á Ítalíu en það gekk
ekki eftir. Ég fékk ekki leyfi frá
klúbbnum til að ferðast og ég get
alveg viðurkennt það að þetta er
ekki beint óskastaða að vera svona
nálægt þungamiðjunni þar sem
þetta allt er að gerast einhvern
veginn. Ég er bara hálftíma frá
þessum stöðum sem hafa orðið
einna verst úti vegna veirunnar en
maður reynir að gera sitt besta í
að fara eftir öllum tilmælum. Ég er
í daglegu sambandi við fjölskyldu
mína sem hefur vissulega áhyggjur
af stöðunni. Sjálfur er ég rólegri
yfir þessu, þannig séð, en þetta er
ekki góð staða að vera í svo það sé
alveg á hreinu. Það hafa margir
látist úr veirunni nú þegar og þetta
lítur mjög illa út. Ég reyni hins
vegar að gera gott út þessu og
maður hugsar fyrst og fremst um
að halda þetta út.“
Krefjandi æfingar heima fyrir
Birkir hefur komið við sögu í
fimm leikjum með Brescia á tíma-
bilinu, þar af hefur hann þrívegis
verið í byrjunarliðinu. Hann var því
nýbyrjaður að finna taktinn með
liðinu þegar kórónuveiran skaut
upp kollinum, en þar sem hann er
svo gott sem nýfluttur til Ítalíu er
hann ennþá að koma sér fyrir í
húsakynnum sínum í Brescia.
„Ég er tiltölulega nýkominn
hingað og er í raun ekki með neina
æfingaaðstöðu heima hjá mér. Ég
er hvorki með hjól né hlaupabretti
sem gerir hlutina aðeins meira
krefjandi. Ég reyni að sjálfsögðu
að hreyfa mig inni með almennum
styrktaræfingum og þess háttar.
Ég hef stundað mikið jóga í gegn-
um netið svo maður hefur alveg
náð að gera eitthvað. Eins er ég
með ákveðið lyftingaprógramm frá
félaginu sem ég fylgi og svo reyni
ég sjálfur að vera duglegur að gera
æfingar sem henta mér vel. Það
eru allir hjá félaginu meðvitaðir um
hvað er í gangi og við fáum upplýs-
ingar í gegnum félagið öðru hverju.
Eins erum við leikmennirnir með
hópspjall þannig að maður er í ein-
hverju sambandi við félagið en ann-
ars er besta upplýsingaflæðið alltaf
í gegnum fréttirnar í sjónvarpinu.
Heilsa fólks í fyrsta sæti
Hinn 9. mars síðasliðinn tilkynnti
Ólympíusamband Ítalíu að öllum
íþróttaviðburðum á Ítalíu yrði
frestað til 3. apríl í fyrsta lagi.
Birkir telur engur líkur á því að
íþróttastarf muni hefjast á ný á
Ítalíu í næstu viku og telur allar
líkur á því að keppni í A-deildinni
muni ekki hefjast fyrr en í maí eða
júní.
„Ég geri fastlega ráð fyrir að
það sé langt í að hlutirnir snúi aft-
ur í eðlilegt horf hérna. Það létust
um 900 manns á einum sólarhring
hérna um daginn og núna er í raun
talað um að útgöngubannið, sem á
að renna úr gildi á föstudaginn,
verði lengt áfram fram í maí eða
jafnvel júní. Eins og staðan er í
dag hef ég ekki hugmynd um hve-
nær fótboltinn byrjar aftur að rúlla
hérna. Í sannleika sagt finnst mér
erfitt að hugsa um fótbolta núna ef
við horfum til alls þess sem er að
gerast í landinu. Það eru aðrir
hlutir í gangi sem eru mun mik-
ilvægari en fótboltinn og heilsa
fólks verður alltaf að vera í fyrsta
sæti,“ sagði Birkir í samtali við
Morgunblaðið.
Reyni að halda út í Brescia
Birkir Bjarnason fer varla út úr húsi á Norður-Ítalíu þessa dagana
Telur langt í að það verði byrjað að spila fótbolta í landinu á nýjan leik
Morgunblaðið/Eggert
Brescia Birkir Bjarnason bíður átekta á heimili sínu í Brescia og segir að
fólk eigi helst að fara bara einu sinni út í viku til að kaupa í matinn.
Guðmundur Rúnar Guðmundsson
hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs
Fjölnis í handknattleik til næstu
tveggja ára en hann tekur við af
Kára Garðarssyni. Guðmundur hef-
ur undanfarin tvö ár verið aðstoð-
arþjálfari liðsins en hefur í mörg ár
starfað hjá Fjölni sem þjálfari yngri
flokka og sem styrktarþjálfari.
Þetta verður frumraun Guðmundar
sem aðalþjálfari í meistaraflokki.
Fjölnismenn eru fallnir úr úrvals-
deildinni eftir eins árs dvöl þótt
tveimur umferðum sé ólokið og
leika því í 1. deild á næsta tímabili.
Guðmundur
í stað Kára
Ljósmynd/Fjölnir
Fjölnir Guðmundur Rúnar
Guðmundsson tekur við liðinu.
Simone Biles frá
Bandaríkjunum,
besta fimleika-
kona heims og
fjórfaldur ólymp-
íumeistari, segir
að hún hafi grátið
þegar ljóst varð
að Ólympíu-
leikarnir færu
ekki fram í Tókýó
í sumar. Biles
hefur verið mjög virk á samfélags-
miðlum en hafði hinsvegar ekki birt
nein viðbrögð við frestuninni fyrr en
hún ræddi við NBC í gær.
„Ég vissi ekki hvernig mér ætti að
líða. Ég bara sat og grét en þegar
upp var staðið var þetta rétt ákvörð-
un. Við verðum að sjá til þess að allir
Bandaríkjamenn og allur heimurinn
sé heilbrigður og öruggur. Þetta var
erfitt en í lagi,“ sagði Biles en hún
hafði áður sagt að hún myndi hætta
keppni eftir leikana.
Hún sagði að það yrði mikil áskor-
un fyrir sig að vera klár í slaginn
fyrir leikana 2021. „Hvað líkamlega
ástandið varðar hef ég engar
áhyggjur því þjálfararnir munu
koma mér aftur í form en andlega
séð verður þetta erfitt. Við þurfum
að halda okkur í formi andlega, ekki
síður en líkamlega. Það mun skipta
miklu máli að hlusta bæði á líkama
sinn og hug,“ sagði Biles við NBC.
Grét þegar
leikunum
var frestað
Simone
Biles
KR-ingurinn Jón Arnór Stefánsson,
sem af mörgum er talinn besti
körfuboltamaður Íslandssögunnar,
hefur líklega leikið sinn síðasta leik
á ferlinum. Jón Arnór, sem var at-
vinnumaður í 13 ár, sat fyrir svör-
um í þættinum Sportið á Stöð2
Sport í gærkvöld. Hann sagði áður
en nýlokið keppnistímabil hófst að
það yrði hans síðasta á ferlinum.
Spurður hvort sú ákvörðun stæði
svaraði Jón því til að það væri ekki
ennþá ákveðið mál hvort skórnir
færu á hilluna en það væru þó meiri
líkur en minni að svo færi.
Morgunblaðið/Eggert
Sigursæll Jón Arnór Stefánsson var
kjörinn íþróttamaður ársins 2014.
Ferli Jóns Arnórs
líklega lokið