Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 64

Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 piano“ tækni en þá eru hlutir settir inn í píanóið til að fá áhugaverða áferð úr hljóðfærinu, eins og því er lýst í tilkynningu. Innhverf, lífræn, tær og hrá Sævar er beðinn um að lýsa tón- listinni og segir að fyrir sér sé hún innhverf, lífræn og einkennist af tærum hráleika. „Þemað er ein- manaleiki og allar þær góðu og slæmu hliðar sem fylgja þeirri til- finningu,“ útskýrir Sævar en lögin á plötunni eru öll án söngs, instru- mental. Fyrirtækið sem gefur plöt- una út er enskt, nefnist Whitelabrecs og sérhæfir sig í útgáfu á takmörk- uðum upplögum af plötum á CD-R- geisladiskum. Blaðamaður hefur orð á því að platan komi út á hárréttum tíma, bæði tónlistarlega og þematískt séð, á tímum kórónuveirufaraldurs þegar margir finna einmitt fyrir einangrun og einmanaleika og hafa auk þess meiri tíma en ella til að leggjast upp í sófa með heyrnartól og hlusta á nýútkomnar plötur. Sævar tekur undir þetta en segir algjöra tilviljun að platan komi út á þessum tíma þar sem hún var tekin upp áður en fréttir tóku að berast af veirunni. Kunnugur og ókunnugur Í tilkynningu vegna plötunnar er vísað í þýskt orðatiltæki sem í ís- lenskri þýðingu útleggst svo: „Ég er heimsborgari, kunnugur alls staðar, ókunnugur alls staðar“ og segir að S.hel finnist þetta lýsa honum vel þar sem hann fæddist í London, ólst upp í Þýskalandi og býr nú á Íslandi. „Ég var að velta fyrir mér sjálfs- myndinni og sjálfinu og hvernig við tengjum það við staði og uppruna, hvar við erum staðsett í heiminum. Ég fæddist í London, ólst upp í Þýskalandi og flutti svona átta sinn- um milli landa þegar ég var krakki. Ég var því alltaf mjög óviss um upp- runa minn,“ útskýrir Sævar. Löngu síðar, þegar hann hafði endanlega Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarmaðurinn og listaháskóla- neminn Sævar Jóhannesson sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu 28. mars síðastliðinn og ber hún titilinn Disconnect, sem er enska sögnin yfir að aftengjast. „Ég sendi labelinu póst með út- gáfudag í huga, 28. mars sem er al- þjóðlegur píanódagur. Þau sögðu mér að þau gæfu bara út á laugar- dögum og að þó að þau væru með út- gáfuplan langt fram í tímann hefði listamaður einmitt forfallast á þess- um degi og 28. væri laugardagur svo þetta smellpassaði!“ segir Sævar sem gengur undir listamannsnafninu S.hel, með vísan í enska orðið yfir skel. Áhrifavaldar úr heimi píanótónlistar Sævar segir áhrifavalda sína eink- um koma úr heimi píanótónlistar og nefnir hann kennara sína, Sunnu Gunnlaugs- dóttur og Kjartan Valdemarsson, tón- listarmanninn Mikael Lind sem hljóðbland- aði plötuna og tónskáld á borð við Jóhann Jó- hannsson og Hildi Guðnadóttur og nýklassísk tónskáld á borð við Nils Frahm, Arvo Pärt og Max Richter. Píanó er í forgrunni á plötunni enda Sævar lærður píanóleikari og kennir líka á píanó. Hann er auk þess á lokaári í tónsmíðanámi við Lista- háskóla Íslands. Sævar hefur tekið þátt í fjöl- breyttum verkefnum, m.a. samið tón- list við uppfærslu á Mutter Courage eftir Bertolt Brecht í Samkomuhús- inu á Akureyri og Kassanum í Þjóð- leikhúsinu í fyrra en sú tónlist ómaði einnig í upphafsatriði Grímuverð- launanna í fyrra. S.hel mun koma fram á Iceland Airwaves nóvember og hann vinnur nú einnig að plötu í samstarfi við Mikael Lind en á henni verður lögð áhersla á svokallaða „prepared komið sér fyrir á Íslandi, áttaði hann sig á jákvæðri hlið þessarar reynslu. Samið við sögur Sævar er spurður að því hvert hann stefni í framtíðinni, hvort hann sjái fyrir sér að gefa út plötur og halda tónleika eða hvort hann vilji vinna meira við leikhús eða kvik- myndir. Hann segist fyrst og fremst grípa þau tækifæri sem gefast og helst vilja vinna við að búa til tónlist við myndefni, þætti eða kvikmyndir eða leikhús. „Mér finnst ofboðslega gaman að vinna með listamönnum úr öðrum listgreinum,“ segir hann. Tónlist án söngs sé hans sterka hlið og honum þyki gaman að semja tón- list við sögur. Vegna samkomubanns verða engir útgáfutónleikar haldnir á næstu vik- um og segist Sævar verða að fresta þeim fram á sumar eða jafnvel leng- ur. „Ég er líka að fara að spila á Airwaves og langaði að nota útgáfu- tónleika í að æfa mig að koma fram,“ segir hann. Hann sé núna á kafi í að klára lokaverkefni sitt í tónsmíða- náminu, tónsmíðarnar við Mutter Courage. Plötu Sævars má nálgast á vef- slóðinni whitelabrecs.band- camp.com/album/disconnect. Ólíkar hliðar einmanaleikans Ljósmynd/Katla Sólnes og Gunnar Örn Árnason Einbeittur Sævar Jóhannesson, S.hel, einbeittur við sköpun tónlistar. Fyrsta breiðskífa hans er komin út.  S.hel gefur út breiðskífuna Disconnect  „Ég var að velta fyrir mér sjálfsmyndinni og sjálfinu og hvernig við tengjum það við staði og uppruna,“ segir tónlistarmaðurinn  Píanó er í forgrunni Mennta- og menningarmálaráðu- neytið hleypti í gær af stokkunum lestrarverkefni fyrir þjóðina, þar sem börn og fullorðnir eru hvött til að nýta til lesturs þann tíma sem gefst við núverandi aðstæður. „Lestur er sérstaklega mikil- vægur fyrir börn, enda ræðst náms- árangur barna að stórum hluta af lesskilningi sem eykst með auknum lestri. Lestur veitir fullorðnum örv- andi hvíld frá amstri og áhyggjum dagsins og með lestri aukum við saman veg íslenskrar tungu. Orða- forði eykst, nýjar hugmyndir kvikna, skilningur á lesmáli batnar og þannig skilningur á heiminum öllum. Þá styður aukinn lestur við skapandi störf rithöfunda og þýð- enda. Því meira sem við lesum því betra!“ segir í tilkynningu frá ráðu- neytinu. Lestrarverkefnið nefnist „Tími til að lesa“ og er heitið dreg- ið af núverandi aðstæðum þar sem margir hafa meiri tíma en áður til að lesa og þörfin fyrir hugar- leikfimi hefur sjaldan verið meiri. „Árangurinn er mældur í tíma, þar sem Íslendingar eru hvattir til að skrá allan sinn lestur á vefsíð- unni timitiladlesa.is. Þar geta þátt- takendur líka fylgst með sameig- inlegum lestri þjóðarinnar frá degi til dags. Á næstu fjórum vikum munu þar safnast upp ýmsar upp- lýsingar um lestur, hugmyndir að lesefni fyrir ólíka aldurshópa, hvatningarmyndbönd frá rithöf- undum og öðrum sem segja okkur hvað og hvar þeim finnst gaman að lesa.“ Verkefnið stendur til 30. apr- íl og að því loknu hyggjast íslensk stjórnvöld freista þess að fá afraksturinn skráðan í Heimsmeta- bók Guinness. „Slíkt hefur ekki ver- ið gert áður og því yrði hér um að ræða fyrsta heimsmet sinnar teg- undar. Metið gæti orðið viðmið ann- arra þjóða, eða okkar sjálfra til að bæta með tíð og tíma.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Bækur Íslendingar á öllum aldri eru hvattir til að lesa af kappi í apríl. Tími til að lesa  Freista þess að fá afraksturinn skráðan í Heimsmetabók Guinness

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.