Morgunblaðið - 02.04.2020, Qupperneq 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
VEIÐIHNÍFAR Í ÚRVALI
VERÐ FRÁ 5.660.-
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Erum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
Frír heimsending út apríl
HA
PPATALA
•
D
AGSINS
ER
•
TIL HAMINGJU – ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA!
Farðu inn ámbl.is/happatala og gefðu upp töluna til að komast í pottinn.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að taka þátt alla fimmtudaga og laugardaga
næstu vikurnar, því þú gætir unnið glænýjan Samsung Galaxy S20+.
68
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er mikil og krefjandi áskorun
fyrir nemendur mína,“ segir Hákon
Már Oddsson, fagstjóri kvikmynda-
sviðs Borgarholtsskóla. Nemendur
hans tóku upp sýningu Borgarleik-
hússins á Ríkharði þriðja eftir
Shakespeare sem streymt var á vef
leikhússins um liðna helgi og verður
aðgengileg fram
yfir næstu helgi
hið minnsta. Á
undan sýning-
unni má sjá
listamannaspjall
þar sem þátt taka
Brynhildur Guð-
jónsdóttir, leik-
stjóri uppfærsl-
unnar, Hjörtur
Jóhann Jónsson,
sem lék titilhlut-
verkið, og Kristján Þórður Hrafns-
son, þýðandi verksins.
Hákon, sem er kvikmyndagerðar-
maður, var sviðstjóri listnáms Borg-
arholtsskóla til 2019 þar sem kennd
er grafísk hönnun, leiklist og kvik-
myndagerð. „Um er að ræða þriggja
ára nám til stúdentsprófs og eru um
12-18 nemendur í hverjum bekk á
hverju ári á sviðinum þremur,“ segir
Hákon, sem kennt hefur við skólann
frá 2002. „Áður kenndi ég við Kvik-
myndaskólann, Margmiðlunarskól-
ann og HÍ,“ segir Hákon sem vann
árum saman hjá RÚV, Stöð 2 og
ítalskri sjónvarpsstöð, oft á tíðum
við beinar útsendingar þar sem not-
ast er við fjölkameruvinnslu. „Borg-
arholtsskóli byrjaði með stafrænar
útsendingar 2002 þegar sjónvarps-
stöðvarnar voru enn hliðrænar,“
segir Hákon og tekur fram að það sé
mjög kennsluvænt að vera með
fjölkameruvinnslu. „Þegar ég byrj-
aði að kenna við skólann var strax
lögð áhersla á að vinna verkefni utan
skólans, sem helgast í raun af skorti
á sérhæfðri aðstöðu í skólanum. Það
má líkja aðstöðunni okkar við það að
kenna bíliðnir í mjög vel búnum bíl-
skúr. Okkar lausn var því að fara út
úr skólanum,“ segir Hákon. Í gegn-
um tíðina hafa nemendur hans með-
al annars unnið innslög fyrir RIFF
og streymt masterklössum á vegum
hátíðarinnar, tekið upp tónleika hjá
ýmsu tónlistarfólki – þeirra á meðal
Björk, leiksýningar bæði í Þjóðleik-
húsinu og Borgarleikhúsinu, Músík-
tilraunir og hokkíleiki meistara-
deildar í Egilshöll.
Spurður hvernig undirbúningi
fyrir upptöku leiksýningar sé háttað
segir Hákon að nemendur á lokaári
námsins fái handrit til og sjái sýn-
inguna sem jafnframt er tekin upp á
einni myndavél. „Í framhaldinu fara
nemendur að stúdera sýninguna,
brjóta niður til að búa til skotplan,“
segir Hákon og tekur fram að í til-
felli Ríkharðs þriðja hafi Guðrún
Birna Pétursdóttir og Óliver Ormar
Ingvarsson tekið verkstjórnina að
sér og séð um upptökustjórnina.
„Upptökur fara fram á sýningu og
það er ákveðin áskorun að tengja öll
tækin saman, enda þarf oft á tíðum
100 metra snúrur,“ segir Hákon og
bendir á að einnig þurfi að gæta að
því að myndavélarnar séu ekki oft
hátt stilltar í áhorfendabekkjunum
til að trufla ekki leikhúsgesti. „Þeg-
ar farið er að klippa efnið saman
þarf síðan að gæta að því að hlut-
fallið milli nær- og víðmynda sé sem
best,“ segir Hákon. Aðspurður segir
hann mismunandi hvað bíði nemend-
anna að námi loknu. „Sumir stofna
fyrirtæki. Aðrir ráða sig í vinnu hjá
framleiðslufyrirtækjum og öðlast
meiri reynslu meðan enn aðrir fara í
áframhaldandi nám í faginu. Þetta
er kvikmyndagerðarfólk framtíð-
arinnar og reynslan hefur sýnt að
þau læra mjög mikið á nemenda-
verkefnum sínum með öllum þeim
áskorununum sem í þeim felast,“
segir Hákon að lokum.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Upptekinn Hjörtur Jóhann Jónsson í hlutverki sínu sem Ríkharður þriðji í uppfærslu Borgarleikhússins.
„Mikil og krefjandi áskorun“
Nemendur á lokaári kvikmyndasviðs Borgarholtsskóla tóku upp Ríkharð þriðja sem sjá má á vef
Borgarleikhússins næstu daga „Mikil og góð áskorun,“ segir Hákon Már Oddsson fagstjóri
Hákon Már
Oddsson
Tónlistarmaðurinn Auður gefur á
morgun út svítuna ljós og segir í
tilkynningu að verkið sé bæði í
senn eitt lag og skipt í fjóra sjálf-
stæða kafla. Forminu svipi því til
svítu í klassískri tónlist. Svítunni er
lýst sem hringrás ólíkra tilfinninga
sem endurtaki sig í sífellu. „Hring-
rás vanans sem við finnum okkur
föst í. Losti og tilfinningin að
kunna meta áráttuna sjálfa,“ segir
þar og að Auður dragi formföst
áhrif frá framsæknum rokk-
hljómsveitum á borð við Pink
Floyd og The Mars Volta og blandi
við rytmíska hljóðheima og per-
sónulegar lagasmíðar.
Auður skrifar: „Skynsamara fólk
en ég segir að þetta myndi fá
meira streymi seinna. Að ég ætti
að bíða aðeins. Á tímum þar sem
við megum ekki snertast þá snertir
tónlistin okkur sem aldrei fyrr.
Tónlistin hefur alltaf verið til stað-
ar fyrir mig – líka þegar heimurinn
virðist vera að hrynja. Hér er mitt
framlag. Kveikjum eldana. Hellum
rauðvíni. Njótum ásta. Dönsum
með lokuð augun. Kyssumst með
ljósin kveikt. Njótið.“
Vísun Myndin sem fylgir útgáfunni minnir á eitt verka Salvadors Dalí.
Auður gefur út svítuna ljós