Morgunblaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 13
ÚR BÆJARLÍFINU
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Það styttist í sauðburð og nú
þegar eru litlir vorboðar mættir í
stöku fjárhús þótt sauðburður hefj-
ist ekki fyrir alvöru fyrr en kringum
fyrstu vikuna í maí. Lítið sem ekkert
kal er í túnum á þeim jörðum sem
næst liggja sjó en þegar lengra er
komið inn í landið fjær sjó er ástand
túna ekki jafn gott.
Mikill snjór er ennþá inni á
heiðum þótt autt sé víðast hvar við
ströndina og auð tún freista því
heiðagæsarinnar sem aldrei fyrr.
„Gæsirnar voru hér á túnunum í
morgun í þúsundatali, ágangurinn
frá þeim er með allra mesta móti
núna þegar heiðarnar eru á kafi í
snjó,“ sagði bóndi í Langanesbyggð,
óhress með þessa ránsflokka á tún-
unum og segir hann heiðagæsina
hina verstu plágu en fleiri bændur
hafa sömu sögu að segja.
Grásleppuvertíð stendur sem
hæst og hefur veiði verið góð und-
anfarið og flestir bátar komnir með
um 30 tonn hver en aðeins er að
draga úr veiði þessa dagana. Mjög
góð veiði hefur verið á Bakkafirði.
Litlanesið, bátur Ísfélagsins, hefur
fiskað ágætlega þorsk og ýsu og afl-
inn er unninn í Ísfélaginu hér.
Strandveiði hefst um mánaðamótin
en jafnan hafa nokkrir bátar stund-
að þær veiðar hér.
Sumardagurinn fyrsti stóð vel
undir nafni á Þórshöfn þetta árið en
hver góðviðrisdagur er vel þeginn
eftir þungan vetur. Sumartunglið er
nýkviknað en svo nefnist fyrsta nýja
tungl eftir sumardaginn fyrsta.
Gömul þjóðtrú er tengd sumartungl-
inu og skal hún rifjuð upp.
Gömul amma á Þórshöfn hélt
mikið upp á sumardaginn fyrsta og
minnti barnabörn sín alltaf á að
fylgjast vel með hverju þeim yrði
svarað í sumartunglið, og sagði:
„Þegar þú sérð fyrsta sumar-
tunglið þá verður þú að þegja og
bíða eftir að einhver tali til þín. Það
fyrsta sem við þig verður sagt mun
þá gefa vísbendingu um hvernig
ganga muni hjá þér í sumar. Þetta
heitir að svara í sumartunglið. Þú
mátt alls ekki tala neitt sjálf áður en
einhver annar yrðir á þig eftir að þú
sérð tunglið því þá er spásögnin
ónýt.“
Að svara í sumartunglið
Eftir fornri þjóðtrú, það veit eg,
þögul skaltu verða og hátíðleg
þegar fyrsta sinni sumartunglið
sérðu reika bláan himinveg.
Ekki máttu rjúfa þessa þögn
það er brot við lífsins duldu mögn
fyrr en einhver til þín talað hefur,
tal hans verður þér að spádóms-
sögn.
Hversu stutt og einfalt sem það er
örlög þín í dularskauti ber,
þannig er að svara í sumartunglið,
segja grunlaus hvað á eftir fer.
Komdu, komdu beina braut til mín,
björt og fögur þegar tunglið skín
því að alltaf eru á vörum mínum
orð sem verið gætu forspá þín.
(Guðmundur Ingi Kristjánsson)
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Sumar Þórshafnarbúar gátu svarað í sumartunglið á fyrsta degi sumars.
Sumartunglið kviknaði
á fyrsta degi sumars
Þórshöfn Himinninn yfir bænum var rauður að kvöldi sumardagsins fyrsta.
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020
PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
PON er umboðsaðili