Morgunblaðið - 25.04.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 25.04.2020, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020 Elsku hjartans Þóra okkar, það er svo erfitt að trúa því að þú sért farin. Þið fjölskyldan hafið alltaf verið svo stór partur af okkar lífi, við höfum átt svo margar skemmtilegar samveru- stundir í gegnum árin og alltaf haldið góðu sambandi sem hefur verið okkur mjög mikils virði. Það koma upp svo margar fal- legar minningar, þú kenndir okk- ur svo mikið, varst alltaf til staðar og þegar við bjuggum í sama húsi var svo gott að leita til þín á efri hæðina með allskonar spurningar og vangaveltur. Ykkar Gísla vegna eignuðumst við okkar fyrsta heimili, þið höfð- uð trú á okkur á meðan við vissum ekkert út í hvað við vorum að fara, en í hendi var fokheld íbúð og krefjandi og skemmtilegir tímar framundan. Við áttum yndisleg ár með ykkur í sama húsi, þegar við hjónin eignuðumst okkar fyrsta barn áttum við ófá samtölin yfir kaffi um allskonar barnamál og aðferðir. Það var alltaf svo gott að tala við þig. Lífið er sko ekki sjálfgefið, það er svo erfitt að hugsa til þess að sjá þig ekki aftur, finna faðmlag þitt eða heyra röddina, en við munum hittast aftur, bara seinna. Hvíldu í friði, kæra vinkona. Elsku Gísli og fjölskylda, guð gefi ykkur styrk á þessum erfiða tíma. Við fjölskyldan sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Einar Kári, Kolbrún og fjölskylda. Þóra, mamma Ollu okkar, hafði mikið með okkur stelpurnar að segja og átti sérstakan stað í hjarta okkar allra. Hún sýndi okkur svo mikinn áhuga og at- hygli eins og henni einni var lagið. Við búum svo vel að eiga góðan minningabanka um hana allt frá því við vorum börn, unglingar og síðan núna á okkar fullorðins- árum. Hún var mikill félagi okkar og fannst oftast ekki mikið tiltöku- mál að hringsnúast í kringum okkur stelpurnar. Við lifum í þeirri von að henni hafi þótt fátt skemmtilegra en að fá okkur í Furuhjallann á okkar yngri árum þar sem íveran okkar hjá henni endaði oft í vöfflu- eða pönnu- kökubakstri. Hún hélt upptekn- um hætti allt fram á síðasta dag. Það skipti engu máli þó við vær- um komnar vel yfir þrítugsaldur- inn með mann og börn. Alltaf var hún Þóra okkar til í að koma og skutla okkur á tónleika eða í eitt- hvað skemmtilegt. Við gátum vel tekið leigubíl en það var bara svo miklu skemmtilegra að fá skutl hjá Þóru þegar hún var til í það og stundum tók hún upp á því að vera með glaðning fyrir okkur í bílnum. Svo kom ekki neitt annað til greina en að sækja okkur líka og skipti þá engu máli hvað klukk- an var. Við teljum okkur mikið lán- Þóra Ragnarsdóttir ✝ Þóra Ragnars-dóttir fæddist 25. mars 1954. Hún lést 16. apríl 2020. Útförin fór fram í kyrrþey. samar að hafa kynnst og átt eina Þóru í okkar lífi. Fá tækifæri til að til- einka okkur allt það góða og þá mögnuðu eiginleika sem Þóra bjó yfir, sem og þá hluti sem hún gerði, því hún var einstak- ur karakter. Nú sem aldrei fyrr áttum við okkur á því, að það að skapa og eiga minningar er það besta sem lífið hefur upp á að bjóða. Hún Olla okkar speglar svo sannarlega fallegu eiginleika mömmu sinnar. Mikil félagsvera, húmoristi, með hjarta úr gulli og sýnir fólki áhuga og samkennd, svo fátt eitt sé nefnt. Elsku Þóra okkar, við skulum byrja strax á að ganga í þitt hlut- verk og hjálpa Ollu og fjölskyldu hennar á þessum erfiðu tímum. Við munum sakna þín en helst af öllu munum við rifja upp og segja sögur af þér og þannig halda minningu þinni á lofti. Hún Þóra okkar alla sá og allir hennar athygli vildu fá Alltaf með ráðin á hreinu og aldrei að skafa af neinu Með sitt risastóra hjarta og andlitið bjarta hugsaði Þóra um og gladdi alla Þín sárt við munum sakna en höldum áfram lífinu að fagna Enda myndir þú ekki annað leyfa það ráð þú munt fá að eiga. Þínar vinkonur, Erla Dögg, Íris, Kristín, Sigurbjörg Rós og Svanhvít. Kveðja frá gönguhópi Það tók í að fá þær fréttir að vinkona okkar hún Þóra væri látin. Fyrir tuttugu árum vorum við saman komin í Reykjarfirði á Ströndum gönguhópurinn okkar og þar hófst ævintýri. Kynni okk- ar hófust á misjöfnum tíma en öll áttum við það sameiginlegt að vera þátttakendur í starfi Lúth- erskrar hjónahelgar. Við höfum tengst nánum böndum á þessum 20 árum sem liðin eru. Margar eru göngurnar, ferð- irnar sem farnar hafa verið og alltaf var það markmið Þóru að ganga til þess enda sem áætlað var í upphafi, þannig hún setti sér markmið og lagði kapp á að ná því. Það hefur verið blessun okkar allra að tilheyra þessum göngu- hópi. Allt frá því að við hófum gönguna saman og til dagsins í dag hefur það verið tilhlökkun allt árið að vita hvert skal haldið næsta sumar. Nú hefur Þóra verið kölluð til æðri verka og verður hennar sárt saknað. Þóra var sannur vinur vina sinna, hún „ýtti“ við okkur þegar við hittumst með fram- komu sinni, það var eitthvað í fasi hennar sem hreyfði við manni á jákvæðan hátt. Hún var kennari af Guðs náð, bjó yfir gagnrýnni hugsun, fékk okkur til að fara út um víðan völl í huganum þegar við vorum í undirbúningi og skipu- lagningu í ferðum okkar. Þóra var falleg kona að utan sem innan. Hún var alltaf með fullt af hug- myndum og nutu börn okkar góðs af hugmyndum sem hún fékk í ferðunum okkar hér áður og sam- talið sem hún átti við þau um landið og náttúru þess, hvaða fjalli við værum á og hvaða fjall væri að sjá í fjarska eða hvaða á við værum að vaða, heiti blóma og jurta, full af fróðleik var hún öll- um stundum. Alltaf vissi maður hverjar skoðanir hennar voru því hún lét þær í ljós. Þóra var traust, ákveðin, umhyggjusöm, hress og skemmtileg og lék á als oddi og átti til að sýna af sér ógleyman- legar hliðar. Hún bjó yfir þraut- seigju og var fylgin sér í því sem hún tók sér fyrir hendur, drífandi og dugleg. Ávallt var hún vel nest- uð til fararinnar og bjóðandi með sér, margir í hópnum þefuðu uppi harðfiskinn í pokanum eða skott- inu hjá henni. Nú heldur hún í sína hinstu göngu og tekst á við ný ævintýri, hún mun alltaf verða með okkur í ferð vegna þess að hún var sá per- sónuleiki sem skilur eftir sig spor sem munu koma til með að fylgja okkur um ókomna tíð. Elsku Gísli, Georg, Olla, Rúrik og fjölskyldur, megi góður Guð vaka yfir og allt um kring með ei- lífri blessun sinni. Guð blessi minningu Þóru. Guðrún Lára og Guðni Þór, Þyrí og Karl, Hrafn- hildur og Þröstur, Helga og Ingólfur Í dag kveð ég yndislega vin- konu. Við Þóra kynntumst árið 1974 og höfum síðan átt góða og skemmtilega samleið. Okkar sameiginlega ferðalag í gegnum lífið einkenndist af glaðværð og léttleika og vinátta okkar og sam- skipti voru alltaf góð og gefandi. Við ferðuðumst víða saman. Í fyrstu ferðalögum okkar vakti at- hygli mína hvað Þóra var fróð og hafði mikinn áhuga á því sem fyr- ir augu bar. Hún hafði mikinn áhuga á náttúrunni og þekkti nöfn flestra plantna sem urðu á vegi okkar. Þóra lauk námi frá Kenn- araháskóla Íslands og lagði fyrir sig kennslu í náttúrufræðum þar sem eðlislægur áhugi hennar og þekking á náttúrunni kom sér vel. Hún var kennari af Guðs náð og börn okkar vina hennar nutu sannarlega góðs af því. Einn helsti kostur Þóru var hvað hún átti auðvelt með að gefa af sjálfri sér og hafa ófáir sem henni kynnt- ust þegið góða og uppbyggilega ráðgjöf af hennar hálfu. Hún var einstaklega hlý og einlæg í sam- skiptum við samferðafólk sitt. Það var gott að geta leitað skjóls hjá henni. Hún lét sig varða bæði menn og málefni og hagur og líð- an fólks skipti hana máli. Hún stóð eins og klettur með mér þeg- ar erfiðleika eða sorg bar að höndum og átti auðvelt með að gefa góð og skynsamleg ráð. En Þóra kunni líka að gleðjast með glöðum og á gleðistundum í lífi mínu var hún fyrst til að sam- fagna mér. Slík vinátta er ómetanleg. Ferðalög okkar hjóna með Þóru og Gísla, eiginmanni henn- ar, bæði hér á landi og erlendis, eru fjársjóður í banka minning- anna sem við munum varðveita og eigum eftir að ylja okkur við í framtíðinni. Oft höfðu ferðir okk- ar stuttan aðdraganda. Börnin voru drifin í bílana; plöntubók, fuglabók og gott nesti og síðan lögðum við af stað. Við fórum vítt og breitt um landið; sóttum kirkjukaffi á einum stað og dans- leik á öðrum eða gerðum eitthvað annað skemmtilegt. Við nutum lífsins og líðandi stundar. Þóra var snögg og fljót til og hafði lag á að gera lífið skemmtilegt. Eina af okkar ánægjulegustu ferðum fór- um við fyrir tveimur árum þegar við fórum saman í heimsreisu og nutum dýralífs og náttúrufegurð- ar. Eins og oft áður var þessi ferð ekki skipulögð í þaula en það var einmitt það sem gerði ferðina svo eftirminnilega og skemmtilega. Þóra var hreystin holdi klædd og lagði áherslu á að hreyfa sig, borða hollan og góðan mat og við- hafa skynsamlega lifnaðarhætti. Það kom því öllum á óvart að ill- vígur sjúkdómur skyldi leggja hana af velli svona fljótt. Allt til hinstu stundar hélt hún sinni léttu lund og það var alltaf stutt í bros- ið. Það er óbærilega erfitt að sjá á eftir jafn góðum vini og Þóru. Blessuð sé minning okkar góðu og elskulegu vinkonu. Helga og Ingólfur. Í dag kveðjum við okkar kæru vinkonu. Við kynntumst Þóru fyrst þegar við byrjuðum í Kenn- araháskólanum haustið 1975. Fljótlega myndaðist sterk vinátta á milli okkar. Í upphafi vorum við sjö en misstum Dísu fyrir um það bil níu árum og nú er aftur höggv- ið skarð í vinahópinn. Þegar veru okkar í Kennaraskólanum lauk stofnuðum við „saumaklúbb“ og höfum hist að minnsta kosti einu sinni í mánuði allar götur síðan. Í gegnum árin höfum við gert margt skemmtilegt saman og oft var Þóra potturinn og pannan í skipulagningunni. Við ferðuð- umst mikið bæði innan lands og utan. Ógleymanlegar eru ferðirn- ar í Knarrarnes til þeirra heiðurs- hjóna Gísla og Þóru. Þar naut náttúrubarnið Þóra sín vel. Við þeyttumst á milli skerja, söfnuð- um æðardúni og eggjum og veidd- um í soðið. Eftirminnilegasta ut- anlandsferðin fyrir Þóru var Afríkuferðin þar sem ein úr hópn- um tók á móti okkur og með henni upplifðum við undur Afríku. Einnig voru ferðirnar til Brussel og Washington ógleymanlegar. Þóra var alveg einstök kona, alltaf tilbúin að hjálpa, kærleiks- rík og umhyggjusöm. Þrátt fyrir erfið veikindi síðasta hálfa árið héldum við alltaf í vonina því við áttum eftir að gera svo margt saman. Við söknum hennar óend- anlega mikið. Við vottum Gísla og fjölskyldu innilega samúð og biðj- um Guð að styrkja þau á þessum erfiða tíma. Elín Anna, Guðrún, Kristín, Sigríður og Unnur. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku hjartans Þóra. Takk fyrir samfylgdina. Takk fyrir hlátur þinn og gleðina. Takk fyrir símtölin, nú síðast 2. apríl. Takk fyrir vináttuna, sem aldrei skugga bar á. Takk fyrir samverustundirnar. Takk fyrir komuna síðastliðið haust. Takk fyrir minningarnar. Takk fyrir að vera þú. Á lífsins morgni rauðust rósin skín og raddir vorsins kalla þig til sín. Og meðan sólin gyllir sæ og grund hver geisli hlýtt þig vermi alla stund. (ÞH) Sofðu vært elskulega vinkona, minning þín lifir í huga okkar og hjörtum, björt og falleg. Elsku vinir Gísli, Georg, Júlía, Olla, Jóhannes, Rúrik, Nathalia og elsku börnin ykkar öll, systkini og fjölskyldur, ykkar missir er mikill, megi algóður Guð leiða ykkur, styrkja og umvefja. Þið eruð í huga okkar og bænum. Ykkar vinir Þrúðmar (Dúddi), Ingibjörg, börn og fjölskyldur. Ert þetta þú Torfi minn? Heyrðist í gegnum myrkrið á meðan við dreifbýlistútturnar bis- uðum við að skríða inn um þvotta- húsgluggann á húsinu sem við vorum nýflutt inn í að vestan. Við höfðum nefnilega gleymt lyklun- um inni eins og svo oft, þar sem við vorum ekki vön að vera með læstar útidyr. Sú sem kallaði yfir götuna var Þóra. Þetta voru okk- ar fyrstu kynni af hjónunum á móti, Þóru og Gísla. Hún hafði frétt að við værum að flytja í göt- una en Þóra og Gísli höfðu um tíma búið í sama húsi og Torfi fyr- ir vestan í Sundstræti hjá tengdó á meðan Gísli var að vinna við Vestfjarðagöngin, því þekktu þau aðeins til þegar fjölskyldan að vestan ruddist inn í rólega Furu- hjallann með 3 ung börn. Maður vissi að vorið var á HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Okkar ástkæra eiginkona, systir og mágkona KRISTÍN RAGNARSDÓTTIR, Garðabraut 2a, Akranesi, lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi föstudaginn 17. apríl. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu mun útför hennar fara fram í kyrrþey. Grettir Ásmundur Hákonarson Fríða Ragnarsdóttir Ásgeir Rafn Guðmundsson Ragna Ragnarsdóttir Helgi Þröstur Guðnason Birna Ragnarsdóttir Kristinn Eiríksson Leó Ragnarsson Halldóra S. Gylfadóttir Okkar ástkæri JÓHANNES R. ALBERTSSON, fv. vélstjóri hjá Eimskip, Suðurlandsbraut 58, lést á Hrafnistu Reykjavík miðvikudaginn 22. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jósefína Hafsteinsdóttir Hafdís Þorgeirsdóttir Sigurður J. Þorbergsson Bryndís Þorgeirsdóttir Jón K. Sigurfinnsson Magnús Þorgeirsson Ellý Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra dóttir, systir og frænka, HILDUR JÓNSDÓTTIR, lést á krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn 14. apríl. Kistulagning hefur farið fram. Minningarathöfn fer fram síðla sumars og verður auglýst þegar þar að kemur. Jón Jónsson Valdimar Jónsson Sverrir Helgi Jónsson Ásta Hjördís, Jón Ágúst, Sölvi Mar Jón Þröstur, Elísa, Emil og fjölskyldur Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SVANHVÍT SKÚLADÓTTIR lést á heimili sínu sunnudaginn 12. apríl. Útför hennar fer fram í kyrrþey. Helga Jóna Andrésdóttir Róbert Haukur Sigurjónsson Jón Viðar Andrésson Anna Björg Arnljótsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, BRAGI SIGURÐSSON, lést þriðjudaginn 21. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey. Örn Bragason Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir Halldóra Bragadóttir Bragi Róbertsson Jóhanna Ellý Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.