Morgunblaðið - 25.04.2020, Síða 31

Morgunblaðið - 25.04.2020, Síða 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020 „ÞÚ ÆTTIR KANNSKI AÐ SKIPTA YFIR Í KOFFÍNLAUST.” „SVONA NÚ! SEGÐU MANNINUM HVERSU MIKIÐ ÞÚ VILT FÁ LÁNAÐ.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera þar sem þú helst vilt vera. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ELÍN, ÞETTA ER NÝJA HÚSIÐ MITT HVER ER ÞETTA? FLÆKINGUR SEM ÉG TÓK AÐ MÉR GEISP! AHHH! ÉG NÁÐI AÐ SOFA ÚT EFTIR AÐ HAFA BORÐAÐ KJÚKLINGARÉTT GÆRKVÖLDSINS! ÉG SKIL EKKI SAMHENGIÐ!! … ÉG ELDAÐI HANANN! LÁNADEILD Fjölskylda Kona Eðvarðs er Bryndís Sigur- jónsdóttir, f. 5.1. 1963, kennari, for- eldrar hennar eru Sigurjón Skúla- son, f. 16.5. 1940, fv. skrifstofustjóri NLFÍ, og Arnþrúður Kristín Ingva- dóttir, f. 25.5. 1942, fv. versl- unarmaður. Þau búa í Hveragerði. Börn Eðvarðs eru 1) Elísa Eðvarðs- dóttir, f. 31.5. 1986, MSc í taugasál- fræði, búsett í London, maki Sveinn F. Gunnlaugsson, f. 6.9. 1985, töl- fræðingur. Börn þeirra eru Sigrún Edda, f. 18.8. 2015, og Arnar Elí, f. 15.12. 2018. 2) Ingólfur Eðvarðsson, f. 5.8. 1989, tölvunarfræðingur í London, maki Rhaní Conley, f. 14.4. 1990, stafrænn auglýsingastjóri. 3) Sigurjón Eðvarðsson, f. 15.5. 1996, nemi í Hveragerði. Systkini Eð- varðs eru Kristín, f. 8.4. 1953, hjúkrunarfræðingur í Kópavogi, Guðrún Þóranna, f. 15.5. 1955, hús- móðir í Reykjavík, Jónína, f. 15.5. 1956, húsmóðir í Reykjavík, Inga, f. 22.8. 1964, hjúkrunarfræðingur í Reykjanesbæ, Guðný Úlla, f. 15.2. 1968, húsmóðir í Hafnarfirði. Hálf- systir Eðvarðs, sammæðra, er Sig- urjóna Óskarsdóttir, f. 10.3. 1949, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Eðvarðs eru Guðný Jónína Þór- arinsdóttir, f. 1.3. 1933, d. 18.10. 1999, húsmóðir á Hellissandi, og Ingólfur Eðvarðsson, f. 15.8. 1923, d. 7.11. 1967, sjómaður á Hellis- sandi. Eðvarð Ingólfsson Jónína Jónsdóttir vinnukona á Snæfellsnesi Georg Grundfjörd Jónasson sjómaður í Reykjavík Guðrún J. Georgsdóttir húsmóðir í Reykjavík Þórarinn Vilhjálmsson iðnverkamaður í Rvík Guðný Jónína Þórarinsdóttir húsmóðir á Hellissandi Guðný Magnúsdóttir húsmóðir í Reykjavík Vilhjálmur Bjarnason verkamaður í Rvík Jóhann Jónsson skáld Sigríður Oliversdóttir húsfreyja í Hfj. Guðlaug Íris Tryggvad. fv. verslunarm. á Hellissandi Lovísa Eðvarðsdóttir húsfreyja í Hfj. Finnur Árnason forstj. Haga Tryggvi Eðvarðsson sjóm. og bílstj. á Hellissandi Ásbjörn Óttarsson fv. alþingis- maður Helga Jónsdóttir húsmóðir á Hellissandi Kristján Eyjólfsson sjómaður á Breiðafirði Stefanía J. Kristjánsdóttir húsmóðir á Hellissandi Edvard Einarsson verkstjóri á Hellissandi Ingveldur Pétursdóttir vinnukona á Ytri- Fagradal á Skarðsströnd Einar Halldórsson sjómaður og kaupmaður á Snæfellsnesi Úr frændgarði Eðvarðs Ingólfssonar Ingólfur Eðvarðsson sjómaður á Hellissandi Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Á flóttanum herði ég hana. Í hægð svona dóla af vana. Í sjónum ég sá hana flana. Þar seggir á fannbreiðu spana. Eysteinn Pétursson á þessa lausn: Herði ég gönguna ef hottað er á mig. Í hægðum mínum annars ég geng. Lét ég í göngunum síldar oft sjá mig. Síðastur gekk ég á skíðum í keng. Helgi R. Einarsson svarar: Á landi, snjó og sæ nú sáttur leita fanga og flugu í kollinn fæ er flögrar að mér ganga. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Á flótta er hraða gangan góð, gert á hægri slíkri ljóð. Loðnuganga þörf er þjóð. Þaut í skíðagöngu fljóð. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Gönguna herði ég hræddur. Hægar á göngu fer mæddur. Á firðinum fiskiganga. Á fannþekju skíðamenn spranga. Þá er limra: Ég þolgóður þríf mig af natni og þvæ mér úr sápuvatni, grímu ég ber, í göngutúr fer og vona, að Boris batni. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Í labbitúr ég lagði af stað, ljósið flæddi um stétt og hlað, áður en hélt ég heiman að harla létta gátu kvað: Maður latur mjög er sá. Mykju kenndur er hann við. Mishæð líka landi á. Látnir hvíld þar undir fá. Lausn Helga fylgdu tvær limrur, – „Lífið er saltfiskur“: Ótrúlegt, af og frá, engan nú snerta má. Menn liggja í dvala, (þó leyfist að tala). Lífið er „bakkalá“. Og „Tillaga“: Setja þau ætti á söfn er siglt hafa fleyinu’ í höfn. Þau eru þrjú, það held ég nú, en nefni samt engin nöfn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ganga verður sem lagið er á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.