Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.04.2020, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.4. 2020
LESBÓK
UMHVERFISVÆNI
RUSLAPOKINN
Umhverfisvæna ruslapokann má
nálgast í öllum helstu verslunum
Hugsum áður en við hendum!
Umhverfisvæni ruslapokinn er úr maíssterkju
sem brotnar niður á nokkrum vikum án þess
að valda skaða í náttúrunni.
Umhverfisvæni ruslapokinn er með handföngum
og passar vel í ruslatunnur á heimilum eða
sem burðarpoki í verslunum.
HLÝÐNI Tónlistarfólk um heim allan keppist nú við að
hvetja aðdáendur sína til að hlýða Víði og ígildum okkar
besta manns í öðrum löndum. Þannig henti Elena Cat-
araga, söngkona moldóvska öfgamálmbandsins Infected
Rain, í daglegu tali kölluð Lena klippikrumla, í mynd-
band á Facebook á dögunum. „Ég er ekki viss um að þið
skiljið hversu alvarlegt ástandið er, ekki síst hversu mik-
il áhrif það hefur á listamenn. […] Ég hef verið að fá
skilaboð frá vinum og fólki sem kannast við mig sem er
að bjóða mér að hanga með sér eða að fara í samkvæmi.
Svar mitt er iðulega það sama: Ekki aldeilis! Ég ætla að
vera heima. Ég er búin að vera hérna í meira en tvær
vikur og ætla ekki að koma nálægt nokkrum manni. Það
er mín ákvörðun og ætti að gilda um þig líka.“
Ég ætla að vera heima!
Lena klippikrumla talar enga tæpitungu.
Facebook
ELJA Hin ódrepandi ástralska sápuópera
Nágrannar hélt á dögunum upp á 35 ára afmæli
sitt. Fyrsti þátturinn fór í loftið í marsmánuði
1985 og ekkert lát er á framleiðslu þáttanna.
Vinsældir Nágranna náðu hámarki seint á ní-
unda áratugnum, þegar stórstjarnan og söng-
konan Kylie Minogue fór með hlutverk hinnar
tápmiklu Charlene Mitchell. Dregið hefur úr
áhorfi síðan en Nágrannar eiga eigi að síður
trausta fylgjendur úti um allan heim, meðal ann-
ars hér á landi. Af öðrum frægum leikurum
sem komið hafa við sögu Nágranna má
nefna Margot Robbie, Liam Hemsworth,
Russell Crowe og Natalie Imbruglia.
Kylie Minogue var Ná-
granni frá 1986 til 1988.
AFP
Tom Hanks á merkan feril að baki.
Apollo 13 besta
Hanks-myndin
GÆÐI Fjölmiðlar dunda sér við
ýmislegt þessa dagana til að halda
fólki við efnið; þannig henti breska
blaðið The Guardian upp lista yfir
25 bestu kvikmyndir sem hinn ást-
sæli leikari Tom Hanks hefur kom-
ið fram í. Í fimmta sæti er hafna-
boltadramað In a League of Their
Own frá 1992; í því fjórða A Beauti-
ful Day in the Neighborhood, sem
kom út í fyrra; Forrest Gump náði
aðeins þriðja sætinu, sem ein-
hverjum kann að þykja hneyksli, en
hún var gerð árið 1994 og í öðru
sæti eru fjórar myndir; Toy Story 1
til 4. Besta mynd Hanks, að mati
blaðsins, er svo Apollo 13 frá árinu
1995. „Houston, við erum í
klandri!“, og allt það. Bachelor
Party komst ekki á blað. Skellur!
Tónleikahald liggur niðri í málm-heimum eins og öðrum heim-um um þessar mundir enda
ógerlegt að stíga hinn æðisgengna
slamdans með tvo metra á milli iðk-
enda. Hann gengur út á að menn
hjóli í og hrökkvi hverjir af öðrum. Af
fullum þunga. Til að stytta sér stund-
ir leggjast menn í pælingar, almenn-
ar og sérhæfðar, og setja fram alls
kyns kenningar. Misáhugaverðar
eins og gengur.
Ein vinsælasta kenningin um þess-
ar mundir er á þann veg að til standi
að stofna nýtt ofurband á grunni
tveggja áhrifamestu málmbanda sög-
unnar, Pantera og Slayer, en eftir að
hið síðarnefnda lagði upp laupana
seint á síðasta ári heyra þau nú bæði
sögunni til. Orðrómur þess efnis
komst raunar strax á kreik eftir að
Slayer kvaddi en hefur fengið byr
undir báða vængi undanfarið; ekki
síst eftir að Paul Bostaph, trymbill
Slayer, sendi frá sér hálfkveðna vísu
á samfélagsmiðlum þess efnis að
hann væri farinn að vinna að áhuga-
verðu verkefni með ónefndum góð-
kunningja málmelskra.
Málmskýrendur ruku að vonum
upp til handa og fóta og stilltu fé-
lögum hans úr Slayer, gítarleik-
urunum Kerry King og Gary Holt,
upp í hinu nýja bandi, ásamt Philip
Anselmo, söngvara Pantera. Þá vant-
ar bassaleikara og Rex Brown hlýtur
að koma til álita enda hinn Panter-
ingurinn hérna megin móðu. Abbott-
Er Slaytera í
burðarliðnum?
Málmvísindamenn velta því nú fyrir sér hvort
einhver flötur sé á samstarfi meðlima úr hinum
goðsögulegu böndum Slayer og Pantera en orð-
rómur þess efnis gengur fjöllunum hærra.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Philip Anselmo hefur marga fjöruna sopið á löngum og litríkum ferli.
AFP
Slayer voru brautryðjendur og leiðandi afl í þrassheimum; kóng-
arnir ef vill. Eftir að sveitin leystist upp hafa verið miklar vangavelt-
ur um verðuga arftaka. Ýmsir hafa nefnt Virginíu-bandið Lamb of
God í þessu sambandi og bent á það máli sínu til stuðnings að það
hafi túrað með og hitað upp fyrir Slayer á kveðjut-
úrnum. Í samtali við málmgagnið Metal Injection
hafnar Randy Blythe, söngvari Guðslambsins, því al-
farið að um táknrænan gjörning hafi verið að
ræða. Hann viðurkennir að hafa heyrt þessar
vangaveltur, að Slayer hafi verið að rétta
Lamb of God þrasskyndilinn, en þær eigi
ekki við rök að styðjast. „Þeir eru forfeður
okkar, líkt og Black Sabbath, Elvis og
Robert Johnson og allt aftur í blús-
inn. Ekki er ég kominn í stað Ro-
berts Johnsons. Ég er heldur
ekki að velta því fyrir mér að
taka við af Slayer. Það mun
aldrei neinn koma í staðinn fyrir
Slayer,“ segir Blythe í viðtalinu.
Enginn kemur í stað Slayer
Randy Blythe,
söngvari
Lamb of God.
Nágrannar í blíðu og stríðu í 35 ár