Fréttablaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 10
Öræfajökull er eitt stærsta eldfjall Evr­ópu en á öskjubarmi hans er að finna þrjá hæstu tinda landsins, Hvanna­dalshnjúk (2.110 m), Sveinstind (2.044 m) og Snæbreið (2.041 m). Við rætur þessa risaeldfjalls eru annars konar náttúruperlur og nægir þar að nefna gróðurvinina Skaftafell og Fjallsárlón með fljótandi ísjökum sem gefa þeim á Jökulsárlóni lítið eftir. Suðaustur af Öræfajökli er jafnframt eitt fallegasta bæjarstæði á Íslandi, Kvísker í Öræfum, en hvergi í byggð er meiri úrkoma á Íslandi. Þarna bjuggu fram á þessa öld níu Kvískerjasystkini sem stunduðu búskap en fjórir bræðranna voru jafnframt sjálfmenntaðir en virtir náttúrufræðingar. Þeir skildu eftir sig merkilegar lýsingar á náttúru Öræfa; ekki aðeins á skriðjöklum heldur einnig á óvenju litríkri f lóru og fuglalífi svæðisins. Í Kvískerjalandi eru mikilfengleg gljúfur sem fáir vita af og enn færri hafa heimsótt. Þeirra helst eru Vattarárgljúfur, Hellisgljúfur og Múlagljúfur en það síðastnefnda var í sérstöku uppáhaldi Kví­ skerjabræðra og var þar til nýlega lítt þekkt. Nafnið lætur ekki mikið yfir sér og segja má að Múlagljúfur sé í feluleik þar sem það sést ekki af þjóð­ veginum og þangað liggur engin merkt ökuleið. Þó er auðvelt að komast að því af ómerktum jeppaslóða um það bil miðja vegu milli Kvískerja og Fjallsárlóns, sunnan Hrútár. Ekið er stuttan spöl með fram ánni að varnargarði þar sem leggja má bílum. Síðan tekur við stórkostleg tæplega 2,5 km ganga upp með gljúfrinu og er hluti leiðarinnar merktur. Þetta er greiðfær gönguleið og flestum fær en fara verður varlega því víða liggur stígurinn nálægt gljúfrinu. Þarna er afar mikilvægt að ganga ekki utan slóða því mosagróður­ inn er viðkvæmur. Smám saman dýpkar gljúfrið uns Hangandi foss í Fosslæk blasir við en hann er á meðal hæstu fossa landsins og mældu Kvískerjabræður hann 117 m á hæð. Stuttu síðar sést inn í enda Múla­ gils þar sem Múlakvísl steypist niður Rótarfjallsgil og kallast neðsti fossinn Múlafoss og er 50 m hár. Þarna lá skriðjökull fram eftir 20. öld en í staðinn blasir nú við þverhnípt jökulstálið ofan við bergvegg­ inn og enn hærra tveir tignarlegir tindar, Rótarfjallshnjúkur (1.026 m) og aftar Hellu­ tindur (1.142 m). Þarna hefur Skaparinn átt sérlega góðan dag en grænt gljúfrið með glæsifossum, skriðjöklum og fjallstindum, er einfaldlega stöngin inn. Gimsteinn í feluleik Múlagljúfur er gimsteinn í felum og einn fallegasti staður á Íslandi. MYNDIR/TG Hangandi foss er 117 metra hár. Þokustemning við Múlagljúfur. Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari 3 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.