Fréttablaðið - 03.09.2020, Síða 16

Fréttablaðið - 03.09.2020, Síða 16
Okkar upplifun er í raun frekar að það sé almenn ánægja með nýja forgjafarkerfið. Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdarstjóri GSÍ GOLF Framkvæmdarstjóri Golfsam­ bandsins, Brynjar Eldon Geirsson, sagðist ekkert kannast við óánægju­ raddir íslenskra kylfinga þegar kæmi að nýja forgjafarkerfinu og mótahaldi á Íslandi. Umræða skap­ aðist um málið í Facebook­hópnum Kylfingar á Íslandi þar sem kvartað var undir nýju forgjafarkerfi sem tekið var upp í vor þar sem margir lýstu yfir óánægju sinni. Einhver galli gerði það að verk­ um að mót sem væru opin hinum almenna kylfingi væru yfirleitt að sigrast á slíkum punktafjölda að það hlyti að vera einhver galli í kerfinu. Fyrr á þessu ári innleiddi Golfsam­ band Íslands forgjafarkerfið World Handicap System (WHS) þegar sex forgjafakerfi sem voru í notkun á heimsvísu voru sameinuð í eitt. Með því var forgjöf reiknuð út frá átta lægstu skorum af síðustu 20 forgjafahringjum en forgjöf er gefin út til að meta styrkleika kylfinga og veita öllum jafnan grundvöll til að leika, hvort sem um ræðir nýliða eða þrautreynda kylfinga. Kylf­ ingur heldur forgjöf og spilar á pari eða eigin getu með 36 punkta en í úrtaki sem Fréttablaðið tók saman í gær mátti sjá mót sem unnust á 49 höggum og mót þar sem 42 punktar dugðu ekki nema í tíunda sætið. „Þetta hefur ekki ratað inn á okkar borð og ég kannast því ekki við þessa umræðu. Okkar upplifun er í raun frekar að það sé almenn ánægja með nýja kerfið, bæði hér á landi og hjá nágrannaþjóðum okkar,“ sagði Brynjar þegar Frétta­ blaðið spurðist fyrir um hvort að þetta erindi hefði ratað inn á borð Golfsambandsins. „Þetta gæti kannski tengst ein­ hverjum vaxtarverkjum við nýja kerfið sem er mun skilvirkara að breyta forgjöfinni. Ég held að það sé mun líklegra frekar en að kylfingar séu að reyna að braska eitthvað með forgjöfina sína. Í nýja kerfinu liggur einnig meiri ábyrgð á forgjafanefnd­ um klúbbanna, að einstaklingar á þeirra vegum séu með forgjöf sem endurspeglar getuna,“ sagði Brynjar og hélt áfram: „Markmiðið með nýja kerfinu var að setja á sameiginlegt kerfi á heimsvísu til að einfalda for­ gjafareglurnar.“ – kpt GSÍ kannast ekki við óánægjuraddir vegna forgjafarkerfis Kylfingar slá upphafshögg á Hvaleyrarvelli í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÓTBOLTI Franska félagið PSG sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fram kom að Neymar væri einn þriggja leikmanna félagsins sem hefðu greinst með kórónaveiruna. Óvíst er hvenær brasilíski töfra­ maðurinn Neymar snýr aftur á völlinn fyrir PSG en franska félag­ ið er búið að óska eftir frestun á leik liðsins gegn Lens eftir lands­ leikjahléið eftir tíu daga. Leik PSG í fyrstu umferð frönsku deildarinnar var frestað vegna þátttöku liðsins í úrslitum Meistaradeildar Evrópu á dögunum. Brassinn fór ásamt argentínsku miðjumönnunum Angel di Maria og Leandro Paredes að drekkja sorg­ um sínum í stuttu fríi á spænsku eyjunni Ibiza eftir að hafa tapað úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Bayern München á dögunum. Við komuna til Parísar gengust þeir undir skimun þar sem kom í ljós að þeir voru allir smitaðir af COVID­19. Þeir eru því komnir í sóttkví til að koma í veg fyrir að þeir smiti liðsfélaga sína. – kpt Neymar kom smitaður heim 3 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Óska eftir aðstoð frá bænum Körfuknattleiksdeild Vestra glímir við þá erfiðu stöðu að helstu tekjulindir félagsins hafa ekki skilað því sem vonast var eftir. Félagið þurfti að aflýsa stærstu körfuboltabúðum landsins vegna kórónaveirunnar. SPORT HANDBOLTI Breiðhyltingurinn Björg vin Hólmgeirsson hefur söðlað um frá uppeldisfélagi sínu, ÍR, og gengið til liðs við Stjörnuna. Björgvin gerir tveggja ára samning við Garðabæjarfélagið en hann spilaði með Stjörnunni frá 2007 til 2009. Þess utan hefur Björgvin leikið með Haukum frá 2009 til 2011 og í Þýskalandi árið 2012. Árið 2015 skellti Björgvin sér til Dúbaí í Sam­ einuðu arabísku furstadæmunum og spilaði þar í tvö ár með Al Wasl. Þá hefur bróðir Björgvins, Einar Hólmgeirsson, verið ráðinn aðstoð­ arþjálfari Patreks Jóhannessonar hjá Stjörnuliðinu og mun Einar einnig sinna styrktarþjálfun leik­ manna liðsins. Einar hefur líkt og Björgvin leikið með Stjörnunni en það gerði hann keppnistímabilið 2013 til 2014. Stjarnan hefur leik í Olís­deild­ inni föstudagskvöldið 11. septem­ ber en þá fær Patrekur fyrrverandi lærisveina sína, Selfoss, í heimsókn í TM­höllina. Stjörnumenn mæta með talsvert breytt lið til leiks í vetur en Patrekur hefur hrist ræki­ lega upp í leikmannahópi liðsins eftir að hann tók við stjórnartaum­ unum hjá liðinu fyrr á þessu ári. – hó Bræður sömdu við Stjörnuna KÖRFUBOLTI Körfuknattleiksdeild Vestra sendi Ísafjarðarbæ á dög­ unum bréf þar sem óskað var eftir auknu fjárframlagi til félagsins vegna tekjumissis sem það hefur orðið fyrir vegna COVID­19 farald­ ursins. Ingólfur Þorleifsson, for­ maður stjórnar körfuknattleiks­ deildar Vestra, segir þetta í fyrsta sinn sem félagið hafi farið þessa leið.. „Þetta er í fyrsta sinn sem við höfum þurft að óska eftir auknu fjárframlagi. Eins og önnur íþrótta­ félög fáum við styrki og tíma í íþróttahúsum en þetta er í fyrsta sinn sem við förum þessa leið síðan ég kom inn í félagið fyrir að verða tuttugu árum. Fyrstu viðbrögð voru jákvæð, bærinn virtist skilja þetta og er að skoða málið en auðvitað vitum við að það stefnir í mikið tekjutap hjá bæjarfélaginu þessa dagana eins og alls staðar annars staðar og það eru allir að passa upp á hvern aur. Þetta er snúin staða fyrir þá rétt eins og okkur.“ Líkt og önnur lið varð Vestri af tekjum sem hefðu fylgt úrslita­ keppninni síðasta vor og þá féllu helstu fjáraf lanir félagsins niður. Um árabil hefur deildin unnið í fjáröf lunum á vorin til að styrkja f járhagsstöðuna fyrir komandi tímabil. Stærsta áfallið varð hins vegar þegar félagið þurfti að fella niður hinar árlegu Körfuboltabúðir Vestra sem áttu að fara fram tólfta árið í röð í sumar. Áður var búið að fresta búðunum um tvo mánuði í von um að þær gætu farið fram og var uppselt í búð­ irnar og langur biðlisti. Á síðustu stundu þurfti félagið að aflýsa þeim eftir að seinni bylgjan af COVID­19 tók sig upp á Íslandi. Tekjurnar af búðunum hafa verið nýttar til að halda æfingagjöldum yngri f lokka niðri og til uppbyggingarverkefna innan deildarinnar. „Þetta eru stærstu körfuboltabúð­ ir landsins, við vorum búin að fresta þeim áður í von um að halda þær í ágúst en það kom því miður ekkert annað til greina en að aflýsa þeim þegar seinni bylgjan af COVID­19 kom upp. Það er stærsta höggið fyrir f járhagshlið deildarinnar, þetta er stærsta fjáröflun félagsins á ári hverju.“ Aðspurður sagðist Ingólfur ekki hafa heyrt í formönnum annarra félaga í deildinni en bjóst við að þau væru að glíma við sambærileg vandamál og Vestri. „Ég hef ekki heyrt frá neinum öðrum félögum en það er líklegt að það séu fleiri félög í sömu stöðu og við þessa dagana. Það eru ekki að koma inn tekjur frá áhorfendum og mörg félög reiða sig á styrktaraðila sem eru í ferðaþjónustunni. Ég get ímyndað mér að það séu fleiri félög í þessari stöðu þó að ég sé ekki með það á hreinu.“ Vestri leikur í 1. deild í karla­ og kvennaf lokki og því fylgja gríðarlega löng ferðalög. Stysta ferðalagið karlamegin er tæplega 400 kílómetrar í Stykkishólm en kvennamegin er stysta ferðalagið á Sauðárkrók sem telur þó 461 kíló­ metra. Það bíða því mörg ferðalög víðsvegar um landið fyrir Vestra á komandi vetri. „Við búum að því að þurfa að fara í langt ferðalag í f lesta útileiki og langstærsti útgjaldaliður deildar­ innar okkar er ferða­ og gistikostn­ aður.“ Aðspurður hversu alvarleg staðan sé sagði Ingólfur að það hafi þrátt fyrir allt hafi gengið vel að manna hópinn til að tefla fram samkeppn­ ishæfu liði í vetur. „Við settum á laggirnar meistara­ f lokk kvenna í vor eftir nokkurra ára fjarveru. Við höfum eins og oft áður þurft að treysta á aðkomu­ menn og verðum að við teljum með samkeppnishæft lið í karla­ og kvennaflokki þó að það sé gert á eins ódýran máta og hægt er. Erlendu leikmennirnir okkar eru allir í vinnu, sumir hjá félaginu en aðrir að vinna með til að drýgja tekjurnar.“ Það er ekkert nýtt á Ísafirði en körfuknattleikslið þar á bæ hafa yfirleitt þurft að treysta mikið á erlenda leikmenn. Erfitt hefur reynst að fá Íslendinga vestur og að halda heimamönnum í liðinu. „Það hefur alltaf þurft að passa vel upp á hvern einasta aur. Ég er búinn að vera í stjórn KFÍ og Vestra í hátt tuttugu ár og það hefur alltaf verið barátta að reka þetta. Það er ákveðin klikkun að halda úti starfi eins og þessu norður á hjara en við erum orðin ýmsu vön,“ sagði hann léttur að lokum. kristinnpall@frettabladid.is Heimastúlkur sem mynda kjarnann í liði Vestra í 1. deild kvenna næsta vetur. MYND/HEIMASÍÐA VESTRA Við búum að því að þurfa að fara í langt ferðalag í flesta útileiki og langstærsti útgjaldaliður deildarinnar er ferða- og gistikostnaður. Ingólfur Þorleifsson, formaður kkd. Vestra.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.