Fréttablaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 20
Fókusinn verður líklega árshátíðar- kjólar. Þetta eru oft dýrustu flíkurnar sem þú átt inni í fataskáp en þú ferð kannski í þær þrisvar. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NÝJAR HAUSTVÖRUR STREYMA INN Patricia Anna Þormar er hugmyndasmiðurinn að Spjarasafninu en með henni í liði voru Ásgerður Heimisdóttir, Dagný Guðmundsdóttir, Kristín Edda Óskarsdóttir og Sigríður Guðjónsdóttir. „Ég frétti af Spjaraþoninu í gegnum samstarfskonu mína og hugsaði með mér að það væri frábært tækifæri til að koma fram með þessa hugmynd sem hefur blundað með mér lengi,“ segir Patricia. „Ég hugsaði að þarna væri líka gott tækifæri til að koma hug­ myndinni af stað, mynda tengsla­ net og vita hvort einhver væri til í að vinna að hugmyndinni með mér. Ég er mjög glöð að hafa fengið fjórar rosalega flottar konur í lið með mér.“ Konurnar í liðinu voru líka þátt­ Snýst um að fá meira út úr hverri flík Um síðustu helgi fór fram Spjaraþon, tveggja daga hugmyndasmiðja þar sem þátttakendur þróa og skapa lausnir gegn textílsóun. Sigurhugmyndin var Spjarasafnið, eins konar Airbnb fyrir föt. Patricia Anna Þormar og Sigríður Guð- jónsdóttir unnu Spjaraþon um helgina með hugmynd að Spjaraleigu. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI takendur í Spjaraþoninu þar sem Patricia kynnti hugmynd sína. „Spjaraþonið byrjaði með hug­ myndavinnu. Fólk gat kynnt sínar hugmyndir og komið með nýjar hugmyndir út frá því. Svo völdu þátttakendur að hvaða hugmynd þeir vildu vinna. Mér fannst það skemmtilegt. Þannig veit ég að þær sem ég vinn með völdu verkefnið af því þeim leist vel á hugmyndina. Teymið er ekki fyrst valið og hug­ myndin svo,“ útskýrir Patricia. Hugmyndin er að Spjarasafnið verði stafræn miðlun þar sem fólk getur leigt út eigin flíkur eða fengið leigðar flíkur sem annars myndu hanga ónotaðar inni í fata­ skáp. Eins konar Airbnb fyrir föt eins og Patricia lýsir henni. Spjarasafnið byggir á deili­ hagkerfi þar sem verið er að nýta verðmæti, það er fatnað, sem er nú þegar til staðar og er ekki fullnýttur hjá eiganda. Flíkurnar öðlast nýtt líf í hringrásinni og margir nota þær yfir líftíma þeirra, auk þess sem eigendur geta haft tekjur af útleigunni. „Þetta snýst um að fá meira út úr hverri f lík og fá tekjur af f líkum sem þú átt nú þegar. En fyrst og fremst að auka úrval og framboð af fötum. Sérstaklega svona dýrri munaðarvöru eins og kjólum og kápum,“ segir Patricia. „Fókusinn verður líklega árshá­ tíðarkjólar. Þetta eru oft dýrustu flíkurnar sem þú átt inni í fataskáp en þú ferð kannski í þær þrisvar. Mörgum finnst ekki hægt að láta sjá sig í sama kjólnum í brúðkaupi í fjórða sinn. Ég hugsaði þetta svo­ lítið frá þeim enda að auka úrval og framboð. Ég hef áhuga á tísku eins og kannski f lestar konur. Ég hef gaman af að klæða mig upp fyrir ákveðin tilefni, en mér finnst kannski erfitt að láta sjá mig í sömu flíkinni aftur og aftur. Við erum nýjungagjörn, við viljum fá eitthvað nýtt. En þá kemur inn þetta sjálf bærnisjónarmið. Maður getur ekki alltaf keypt nýja og nýja flík í hvert sinn sem manni langar í eitthvað nýtt. Ég fór þess vegna að hugsa um hvernig hægt væri að gera þetta á sjálf bæran og ódýran hátt.“ Patricia segir að teymið ætli að skrá hugmyndina í Gull­ eggið, frumkvöðlakeppni, en sem stendur eru þær að leita að forritara sem hefur áhuga á snjall­ lausnum og tækni inn í teymið. Skráningu í Gulleggið lýkur í dag en Patricia segist vona að þær nái að finna forritara tímanlega. „Við erum komin með netfang, spjarasafnið@gmail.com svo ef einhver forritari hefur áhuga á að ganga til liðs við okkur má hafa samband þar. Mér finnst skipta svolitlu máli að forritarinn sé kona af því þetta er þjónusta sem er fyrst og fremst hugsuð fyrir konur, mér finnst því skipta máli að þjónusta fyrir konur sé hönnuð af konum. Næst á dagskrá er svo að stofna Instagram­síðu fyrir Spjara­ safnið svo hægt sé að fylgjast með okkur og þannig getum við líka fylgst með hvaða meðbyr hug­ myndin fær.“ Á Spjarasafninu verður hægt að leigja út eigin föt og leigja föt frá öðrum. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.