Fréttablaðið - 17.09.2020, Page 2

Fréttablaðið - 17.09.2020, Page 2
Tólf prósent svar- enda segjast ekki eiga neinn náinn vin og þrjátíu prósent segjast eiga engan eða einn náinn vin. Veður Suðvestan 8-13 og skúrir, en léttir til austanlands. Hiti 6 til 12 stig. SJÁ SÍÐU 20 Binding í birkinu COVID-19 Þrettán ný innanlands- smit greindust við skimun á mánu- daginn en þetta var tilkynnt í gær. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir segir það benda til þess að veiran geti verið útbreiddari en áður var talið að aðeins einn sem reyndist smitaður var í sóttkví við greiningu. Þetta er í fyrsta sinn frá 8. ágúst sem fleiri en tíu tilfelli innanlands- smits greinast á einum degi. Tólf greindust eftir að hafa farið í ein- kennasýnatöku en einn greindist við aðra skimun Íslenskrar erfða- greiningar. Á landamærunum greindust tveir með virkt smit í seinni skimun en enn er beðið mótefnamælingar úr einu sýni sem greint var frá í gær. Alls eru nú 75 manns í einangrun með virkt smit hér á landi. Frá upphafi hafa 2.189 greinst með veiruna en 2.104 náð sér eftir að hafa smitast. Einn er nú á sjúkrahúsi með COVID-19. Nú eru 437 manns í sóttkví innanlands og 2.118 í skimunarsóttkví. Allir starfs menn Ís lenskrar erfða- greiningar voru sendir í skimun eftir að upp kom smit í nemanda við Há skólann í Reykja vík sem heim sótt hafði hús næði ÍE. Þar kom fram smit hjá tveimur starfs- mönnum og tveimur nemendum skólans. Stór hópur starfsmanna í íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Reykjavík þarf að fara í sóttkví eftir að tveir starfsmenn greindust með COVID-19. – hó Allir nema einn utan sóttkvíar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR MOSFELL SBÆR Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar skilaði af sér stöðu- skýrslu vegna COVID-19 og lagði fram á fundi nefndarinnar í gær. Þar kemur fram að útgjöld vegna liðveislu drógust saman mánuðina apríl og maí 2020 borið saman við mánuðinn þar á undan og í fyrra. Ástæðu lækkunar útgjaldanna má rekja til þess að foreldrar fatlaðra barna óskuðu ekki eftir þjónust- unni í kjölfar tilmæla almanna- varna og sóttvarnalæknis um samkomubann og að standa átti vörð um viðkvæma hópa. Þá hækkuðu útgjöld til fjárhags- aðstoðar á árinu borið saman við árið 2019. Hækkunina má fyrst og fremst rekja til fjölgunar styrkþega en þegar kemur að kaf lanum um atvinnulausa Mosfellinga kemur í ljós að þeim fjölgaði umtalsvert í mars og apríl en fækkaði aftur mánuðina þar á eftir. – bb Foreldrar barna með fötlun höfnuðu aðstoð Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda Association of Icelandic Film Producers SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði félagsins. Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga allir sjálfstæðir kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndaverk sem sýnd hafa verið í sjónvarpi á árinu 2019. Umsóknir berist fyrir 20. október 2020 til: SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda c/o Samtök iðnaðarins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á sik@producers.is Aðrar umsóknarleiðir teljast ekki gildar. Nánari upplýsingar, úthlutnarreglur og eyðublað eru á vefsíðu SÍK – www.producers.is SÍK - IHM AUGL - 2 X 10 DSM BLACK Greiðslur úr IHM sjóði SÍK SAMFÉLAG „Mér finnst ekkert fjar- stæðukennt að draga þá ályktun að íhaldssamar karlmennskuhug- myndir komi í veg fyrir náin vina- sambönd hjá körlum,“ segir Þor- steinn V. Einarsson kynjafræðingur. Þorsteinn heldur úti vefmiðlinum Karlmennskan og fékk hann á dög- unum senda einlæga frásögn manns sem lýsir því að hafa upplifað sig einmana og skorta nána vini. Í frásögn sinni segir maðurinn, sem ekki kemur fram undir nafni, frá því að hann hafi í gegnum tíðina misst samband við vini og kunn- ingja og upplifi sig í kjölfarið ein- mana. Þá segir hann það hafa tekið sig mörg ár að þora að segja konunni sinni frá því hvernig honum leið. Í kjölfar frásagnarinnar setti Þor- steinn af stað skoðanakönnun þar sem hann spyr karla hvort þeir upp- lifi sig einmana og hvort þeir vildu eiga fleiri nána vini. „Tólf prósent svarenda segjast ekki eiga neinn náinn vin og þrjátíu prósent segjast eiga engan eða einn náinn vin,“ segir Þorsteinn. Þá segj- ast 30 prósent eiga tvo til þrjá nána vini og 40 prósent fjóra eða f leiri. Þorsteinn segist telja ástæðuna vera ráðandi karlmennskuhugmyndir í samfélaginu. „Við búum við karlmennsku- hugmyndir og þær stjórna því að miklu leyti hvernig við högum okkur. Þessar hugmyndir tel ég að geti komið í veg fyrir að strákar geti verið auðmjúkir, einlægir og sannir sjálfum sér,“ segir Þorsteinn. „Karl- mennskan er alls konar en á yfir- leitt ákveðnar rætur sem byggja til dæmis á hómófóbíu og þá erum við alltaf að sanna gagnkynhneigð okkar.“ Um 200 karlmenn höfðu svarað könnuninni í gær þegar Þorsteinn ræddi við Fréttablaðið og tekur hann fram að um sjálfvalið úrtak sé að ræða og að ekki sé hægt að yfir- færa niðurstöður könnunarinnar á stærra þýði, þær geti þó gefið ein- hvers konar vísbendingu um upp- lifun karla á einmanaleika. „Ég spurði líka um það hvort þátt- takendur myndu vilja eiga f leiri nána vini og þeirri spurningu svara 72 prósent játandi,“ segir Þorsteinn. „Önnur spurning sneri að því hvort karlmenn upplifðu það að geta ekki talað um ákveðna hluti eða skömm- uðust sín og það eru áberandi svör um að karlar skammist sín og tali ekki um einmanaleika, kvíða og þunglyndi. Nokkrir nefndu líka minnimáttarkennd, lítið sjálfs- traust og útlit svo eitthvað sé nefnt,“ bætir hann við. Aðspurður um það hvað sé til ráða segist Þorsteinn sannfærður um að lausnin felist meðal annars í því að hreyfa við íhaldssömum karlmennskuhugmyndum. „Með því öðlast strákar og karlar aukið frelsi til þess að vera eins og þeir eru og við munum sjá meira jafn- rétti í okkar samfélagi, þetta er mín sannfæring. Það að við séum farin að ræða þessi mál er bein afleiðing af femínískri jafnréttis- og mann- réttindabaráttu og það er einstakt tækifæri.“ birnadrofn@frettabladid.is Fjöldi karla eigi fáa eða enga nána vini Þorsteinn V. Einarsson gerði skoðanakönnun um einmanaleika karla eftir að honum barst frásögn manns sem upplifir sig einmana og að skorta nána vini. Könnunin bendir til þess að fjöldi karla eigi fáa eða jafnvel enga nána vini. Þorsteinn V. Einarsson hefur rannsakað einmanaleika. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Guðni Th. Jóhannesson forseti og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra tíndu birkifræ í Skógarlundi við Bessastaði í gær þó að veðrið væri ekki eins og best verður á kosið. Markaði þetta upphaf landsátaks til útbreiðslu birkiskóga sem Skógræktin og Landgræðslan standa að. Birkið þakti fjórðung Íslands þegar landnámsmenn stigu hér fæti og útbreiðsla þess myndi binda mikið kolefni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.