Fréttablaðið - 17.09.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 17.09.2020, Síða 8
Við græðum sárin aðeins betur og getum í kjölfarið horft til fortíðar með meiri reisn. Pedro Sanchez forsætisráðherra Þýska ríkisstjórnin mun í samstarfi við Frakka og önnur aðildarlönd ESB vinna að lausn á málinu. SPÁNN Spænska ríkisstjórnin sam- þykkti á þriðjudag að setja lög um fjármögnun vegna leitar að fórnar- lömbum einræðisherrans Francisco Franco. Þingið á eftir að samþykkja lögin en 750 þúsund evrum verður varið í verkefnið. Það jafngildir rúm- lega 120 milljónum króna. „Minni, réttlæti og skaðabætur verða að vera á höndum ríkisins,“ sagði forsætisráðherrann Pedro Sanchez í yfirlýsingu á samfélags- miðlum. „Með löggjöfinni tökum við annað skref í að viðurkenna fórnarlömb borgarastyrjaldarinnar og það einræði sem ríkti. Við græð- um sárin aðeins betur og getum í kjölfarið horft til fortíðar með meiri reisn.“ Lengi hefur verið barist fyrir því að fórnarlömb borgarastyrjaldar- innar, sem stóð yfir frá 1936 til 1939, verði fundin og grafin upp. Áætlað er að um 100 þúsund manns hafi verið komið fyrir í ómerktum gröfum víða um Spán. Alls fórst um hálf milljón manns í stríðinu, þar af tæplega 200 þúsund hermenn sem börðust gegn fasistaher Franco og um 200 þúsund almennir borgarar. Drápin hættu ekki við lok stríðs- ins heldur hélt Franco ofsóknum sínum áfram til ársins 1945, er það tímabil kallað Hvíta ógnin. Hand- tökur, fangelsanir, vinnuþrælkun, pyndingar, nauðganir og aftökur áttu sér stað gagnvart ýmsum hópum sem Franco taldi ógna sér. Þar á meðal sósíalistum, frjálslynd- um umbótasinnum, katal ónskum og baskneskum þjóðernissinnum, samkynhneigðum og trúleysingj- um. Þúsundir f lúðu heimili sín, annaðhvort til fjalla eða úr landi. Franco dó árið 1975 og með hverju árinu sem líður verður minn- ingin um hann myrkari og myrkari. Kallað hefur verið eftir uppgjöri á þessum tíma, líkt og Þjóðverjar hafa gengið í gegnum með nasismann, en gengið hægt. Árið 2007 samþykkti þingið lög um að aðstoða fjölskyldur fórnar- lamba við að finna grafir þeirra en með þeirri löggjöf hafði ríkið ekki frumkvæði að því að finna fólk. Þegar hægristjórn Mariano Rajoy komst til valda árið 2011 voru lögin afnumin og sagt ástæðulaust að „opna gömul sár“. Að finna fórnarlömbin og takast á við minninguna um Franco var eitt af kosningaloforðum Sanchez þegar hann komst til valda árið 2018. Á síðasta ári voru leifar einræðisherr- ans fjarlægðar úr grafreitnum Dal hinna föllnu og settar niður í fjöl- skyldugrafreit nálægt Madríd. Í hinni nýju löggjöf verður reitn- um þar sem leifar Franco lágu í 44 ár breytt í minninga- og fræðslu- stað um borgarastyrjöldina og ein- ræðisstjórn hans. Þá verða einnig þeir sakamáladómar sem dómarar Franco felldu ógiltir og fórnarlömb- unum gefnar upp sakir. kristinnhaukur@frettabladid.is Munu leita að fórnarlömbum Franco Spænska ríkið mun hefja átak í að leita að fórnarlömbum fasistaleiðtogans Francisco Franco. Talið er að um 100 þúsund manns, sem myrtir voru af herjum hans, liggi í ómerktum gröfum víða um Spán. Franco ofsótti og myrti alla þá sem hann taldi ógna sér. Fjölskyldur hinna föllnu úr borgarastyrjöldinni hafa lengi kallað eftir aðgerðum en lítið orðið ágengt. MYND/GETTY LANDSÞING VIÐREISNAR 25. SEPT. KL. 16 • SILFURBERGI, HÖRPU Viltu hafa áhrif á landsþingi Viðreisnar? Skráðu þig í flokkinn fyrir laugardaginn 19. september til að öðlast atkvæðisrétt. Hvetjum flokksmenn til að bjóða sig fram til embætta sem kosið verður um. Landsþingið fer einnig fram á netinu. Nánari upplýsingar á vidreisn.is Tökum stór skref strax! SAMFÉLAG Þýskaland mun taka á móti 1.553 f lóttamönnum sem dveljast þessa stundina á grískum eyjum. Stefen Seibert, talsmaður Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands, tilkynnti þetta í gær. Um er að ræða f lóttamenn sem urðu fyrir barðinu á eldinum sem braust út í f lóttamannabúðunum á grísku eyjunni Lesbos í síðustu viku. Eldurinn olli mikilli eyði- leggingu í Moria sem eru stærstu f lóttamannabúðir í Evrópu og eru um það bil 13.000 heimilislaus eftir eldsvoðann. Þá mun þýska ríkisstjórnin sömu- leiðis vinna að því í samvinnu við Evrópusambandið á næstu vikum að finna lausn á vanda flóttamanna frá þeim þjóðum sem eru í góðu samstarfi við Evrópuþjóðirnar. Fram kemur í yfirlýsingu þýsku ríkisstjórnarinnar að landið muni taka við þeim fjölda f lóttamanna sem samræmist fólksfjölda þar í landi á næstu vikum. Þjóðverjar muni vinna að því að setja upp aðgerðaáætlun í þeim efnum í sam- starfi við þjóðir innan Evrópusam- bandsins. Emmanuel Macron, forseti Frakk- lands, hefur tekið í sama streng og Merkel og segir að vinna verði hratt og örugglega í að koma þeim sem eru heimilislausir eftir þennan sorg- lega atburð í öruggt skjól. – hó Rúmlega 1.500 flóttamenn á leið frá Grikklandi til Þýskalands JAPAN Yoshihide Suga var í gær kjörinn forsætisráðherra Japans. Tekur hann við Shinzo Abe sem sagði af sér af heilsufarsástæðum. Hinn 71 árs gamli Suga var á mánu- daginn kjörinn leiðtogi Frjálslyndra demókrata, sem eru í meirihluta á japanska þinginu. Suga er einsdæmi í japönskum stjórnmálum, er hann hvorki kom- inn af efnafólki né hefur hann verið hluti af f lokksklíkum. Stjórnmála- skýrendur telja að Suga muni fylgja efnahagsáherslum forvera síns en leggja áherslu á umbætur í stjórn- sýslunni og byggðamálum. – ab Suga tekinn við í Japan Hinn nýi forsætisráðherra er 71 árs gamall og umbótasinnaður. MYND/EPA 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.