Fréttablaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 28
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Blár er sá litur í litrófinu sem tengist hvað mest trausti, áreiðanleika, heiðarleika og
ábyrgð. Blár litur er sagður hjálpa
fólki að takast á við stress, veita
ró og auka næði. En það er einmitt
þannig sem okkur líður þegar við
liggjum og horfum upp í heiðbláan
himinn. Blár minnir líka á hrein
leika og tandurhreint vatn. Það
kemur því fáum á óvart að það er
einmitt tískulitur haustsins, en
heimsbyggðin hefur sjaldan þurft
jafnmikið á því að halda að bera
traust til fagaðila varðandi reglur
um samkomutakmarkanir, grímu
notkun og fleira í kjölfar COVID
19 faraldursins. Því er heldur ekki
að neita að blái liturinn tónar vel
við fagurbláar sóttvarnagrímur
sem eru víst komnar til að vera.
Það er kominn tími til þess að
gefa kolsvarta maskaranum smá
frí og gera tilraunir með
litaðan maskara.
Þau sem vilja fara
hægt í sakirnar
og hryllir við
tilhugsuninni
um bleik
augnhár
geta gert til
raunir með
dökkbláan
eða jafnvel
djúpgrænan
maskara, sem
gefur augunum þá
skerpu sem margir sækj
ast eftir. Þrátt fyrir að falla nokkuð
vel inn í hefðbundnar förðunar
leiðir þá vekja þessir litir hæfilega
athygli til þess að fá fólk til þess að
líta á þig aftur.
Kóngablátt haust vekur traust
Blár hefur verið áberandi í ár á tískupöllunum, allt frá kóbaltbláum kjólum og kóngabláum káp-
um til blárra augnhára. Þessi uppáhaldslitur flestra verður áfram allsráðandi í haust, úti og inni.
Hér má líta
töffaralegt
blátt, svart og
hvítt leðurpils
úr haust- og
vetrarlínu Louis
Vuitton sem
sýnt var á tísku-
vikunni í París
í mars. MYNDIR/
GETTY
Blár maskari setur punktinn yfir
i-ið í fallegri og litsterkri kvöld-
förðun. Blái liturinn vekur athygli
og gefur áhugavert yfirbragð.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Str. 40/42-52/54
Nýtt frá
Geggjaður,
rafblár leðurjakki,
var ein af sterkustu
flíkunum í haust- og
vetrarlínu Junko Shi-
mada sem var sýnd
á tískuvikunni í
París í mars.
Ljósblár,
brúnn og svartur
anorakkur úr smiðju
Lacoste. Þessi er úr
haust- og vetrarlínunni
sem sýnd var á tísku-
vikunni í París í
mars.
Portúgalski
fatahönn-
uðurinn Luis
Buchinho tók
virkan þátt í
bláa æðinu í
tískuvikunni
í Lissabon í
mars og sýnir
hér dökkbláan
kjól sem hluta af
haustlínunni.
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R