Fréttablaðið - 17.09.2020, Side 32
Leiðsögustarfið stýrir list
minni í þá átt að nota lands-
lagið til að túlka tilveru
okkar og smæð gagnvart
stórum öflum náttúrunnar.
Það er mikið að gera hjá mér núna og margt í kortunum en ég er alltaf á leiðinni að fara að slappa af. Það verður bara aðeins að bíða,“
segir myndlistarkonan Arngunn-
ur Ýr Gylfadóttir glaðlega. Hún
opnaði fyrir skemmstu sýningu í
galleríinu Veðri og vindi á Hverfis-
götu 37 í Reykjavík – eða opnaði
ekki – sýningarrýmið þar er þrír
gluggar, þannig að listarinnar er
notið utan frá.
Sýningin nefnist Hljóðaklettar
og verður uppi út þennan mánuð.
Arngunnur segir jarðlögin í land-
inu vera grunn hennar. „Ég elska
grjót og að meðhöndla það og með
leyfi Gljúfrastofu fékk ég að taka
nokkra steina við Hljóðakletta
sem eru einn magnaðasti staður á
landinu, þar fer maður inn í miðja
gíga sem Jökulsá hefur sorfið. En
við úrvinnsluna ákvað ég að fara í
hinn fjöruga stíl Cobramálaranna
sem markar ákveðið tímabil í lista-
sögunni.“
Listsköpun aðalstarf
Arngunnur Ýr kveðst hafa teiknað
og málað frá því hún var eins árs og
eiga sjö ára listnám að baki. Einn-
ig hafi hún kennt listmálun bæði á
Íslandi og á San Francisco-svæð-
inu, enda búi hún á báðum stöðum.
„Listsköpun hefur verið mitt aðal-
starf, svo hef ég haft leiðsögn sem
hliðargrein á sumrin í 30 ár.
Starfið var auðfengið í byrjun því
sá sem átti fyrirtækið sem ég sótti
um hjá hafði verið fyrsti kærasti
mömmu. Leiðsögustarfið stýrir
list minni í þá átt að nota lands-
lagið til að túlka tilveru okkar og
smæð gagnvart stórum öf lum nátt-
úrunnar. Jarðfræðin og olíumál-
verkið eiga ýmislegt sameiginlegt.
Ég tek að mér hópa frá náttúru-
gripasafninu Smithsonian og hef
unnið með frábærum íslenskum
jarðfræðingum svo ég er alltaf að
læra eitthvað sem smitast yfir í
verkin mín.“
Vinnustofur hér og þar
Nú er Arngunnur Ýr að koma sér
upp tveimur vinnustofum. „Við
hjónin keyptum sumarbústað í
náttúruparadís við Hafnarfjörð
og byggðum okkur síðan hús við
hliðina, nú er ég að breyta gamla
bústaðnum í glæsilega vinnustofu,
þar hef ég Helgafellið fyrir aug-
unum. Svo var ég að setja niður lítið
hús við Heklurætur. Hallgrímur,
gluggasmiður í Þykkvabæ, hannaði
í það glugga og þaðan blasir Hekla
við.“
Hún kveðst vera með vinnustofu
líka úti í San Francisco. „Eiginmað-
urinn, Larry Andrews, er banda-
rískur prófessor og kennir kvik-
myndun við Kaliforníuháskóla.
Við erum sitt á hvað og það hefur
hentað mér að dvelja þar úti á vet-
urna og hér heima á sumrin. Hann
hyggst kenna í fjögur ár í viðbót við
skólann en við erum búin að kaupa
talsvert af landi á Havaí og ætlum
að byggja þar. Í framtíðinni munum
við búa þar og á Íslandi. Erum
búin að reisa lítið hús við hafið og
setja niður bananatré og alls kyns
ávaxtatré.“
Málar hverfandi jökla
Ekki er allt upp talið sem þessi
kraftmikla kona fæst við því
hún er líka þátttakandi í sam-
sýningu listafólks frá Finnlandi,
Íslandi og Svíþjóð sem nefnist
Norðrið og verður opnuð í Lista-
safni Árnesinga næsta laugardag,
19. september. Þar er sjónum beint
að loftslagsbreytingunum. „Þarna
er blanda af innsetningum, skúlp-
túrum, málverkum og ljósmynd-
um,“ segir Arngunnur Ýr sem hefur
málað jökla Íslands, þekkir þá úr
leiðsögumannsstarfi sínu og hefur
fylgst með rýrnun þeirra. „Þar sem
ég kom að jökli sem ung manneskja
eru nú víða stór lón. Myndirnar eru
óður til náttúru sem er að hverfa.“
gun@frettabladid.is
Jarðfræðin
smitast yfir í
verkin mín
Arngunnur Ýr Gylfadóttir, listakona og leiðsögu-
maður, sýnir verk í Veðri og vindi galleríi á Hverfis-
götu og á hinni væntanlegu sýningu Norðrinu í
Listasafni Árnesinga. Svo byggir hún vinnustofur í
Hafnarfirði og við Heklu og hús á Havaí.
„Jarðfræðin og olíumálverkið eiga ýmislegt sameiginlegt en þar leggst lag ofan á lag,“ segir Arngunnur Ýr um
sýninguna Hljóðaklettar í Veðri og vindi galleríi sem staðsett er á Hverfisgötu 37. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Svínafellsjökull - mynd á sýningunni
Norðrið sem opnuð verður í Lista-
safni Árnesinga á laugardaginn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Kristjánsson
Strikinu 10, Garðabæ,
lést 5. september á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Útför hans
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Aðstandendur þakka starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og líknarþjónustunni HERU fyrir
einstaka umönnun.
Erna Ólafsdóttir
Ólafur Sigurðsson
Kristján Sigurðsson Elísabet Kristjánsdóttir
Reynir Sigurðsson Þórunn Vigfúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Valgerður Guðmundsdóttir
lést á Hrafnistu í Reykjavík
13. september 2020.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 23. september, kl. 11.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Blindrafélagið. Sendum starfsfólki á
Engey á Hrafnistu sérstakar þakkir fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Harpa Ólafsdóttir
Vörður Ólafsson
Innilegar þakkir fyrir
samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæru móður, tengdamóður
og ömmu,
sr. Elínar Salóme
Guðmundsdóttur
Þrastarhöfða 2, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildar Landspítalans
í Kópavogi og heimaþjónustu Heru fyrir hlýhug og góða
umönnun.
Soffía Kristín Þórðardóttir
Þórdís Ögn Þórðardóttir Þorvaldur Finnbogason
Sölvi Þórðarson Sara Þórunn Óladóttir Houe
og barnabörn.
1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT