Fréttablaðið - 30.09.2020, Síða 22

Fréttablaðið - 30.09.2020, Síða 22
Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Hátæknifyrirtækið Controlant hefur gengið frá hluta-fjáraukningu upp á meira en 2 millj-arða króna, sem ætlað er að renna stoðum undir fáheyrðan tekjuvöxt. Samningar, sem Controlant hefur gert við alþjóðlega lyfjarisa og varða meðal annars dreifingu á bóluefni gegn COVID-19 á heimsvísu, verða til þess að fyrirtækið tífaldar veltu sína á tveimur árum. Controlant hefur þróað hug- búnaðar- og vélbúnaðarlausnir til að fylgjast með vörum í f lutningi og halda uppi rauntímaeftirliti á allri virðiskeðjunni, svo hægt sé að fylgjast með ástandi og stað- setningu vörunnar hvar sem er í heiminum. Íslenska fyrirtækið hafði fyrr á árinu gefið út breytan- legt skuldabréf að fjárhæð 1.250 milljónir króna. „Skuldabréfinu var ætlað að fjármagna innleiðingu á lausninni hjá okkar helstu viðskiptavinum og koma okkur á góðan stað fyrir næstu hlutafjáraukningu. Svo ger- ist það í sumar að áætlanir okkar snarbreytast. Það sem við bjugg- umst við að myndi gerast á næstu tveimur árum er að fara að gerast á 6-12 mánuðum. Þess vegna þurftum við að f lýta næstu hlutafjáraukn- ingu og við gengum frá henni núna í september,“ segir Guðmundur Árnason, fjármálastjóri Controlant, í samtali við Markaðinn. Stjórnendur Controlant, í sam- starfi við Arion banka, lögðu upp með að sækja 1 milljarð króna, en niðurstaðan varð sú að félaginu bárust áskriftir að fjárhæð rúmlega 2 milljarðar króna. Ákveðið var að stækka hlutafjárútboðið í samræmi við eftirspurnina. Hlutaf járauk ning in sk iptist nokkurn veginn til helminga, að sögn Guðmundar. Núverandi hlut- hafar tóku helming og nýir hlut- hafar hinn. Þeirra á meðal eru bæði stofnanafjárfestar og einkafjár- festar. „Við erum að fá stofnana- fjárfesta í hópinn, sem eru almennt ekki að fjárfesta í félögum eins og Controlant. Það sýnir hversu mikla trú fjárfestar hafa á félaginu,“ segir Guðmundur. Alls hafa fjárfestar lagt Controlant til rúmlega 6 milljarða króna frá stofnun þess. „Við vorum með rétt um 400 milljóna króna veltu á síðasta ári og hún stefnir í um 1 milljarð á þessu ári. Miðað við þá samninga sem við höfum gert, erum við að horfa fram á veltu upp á 4-5 milljarða króna á árinu 2021,“ segir Guðmundur. Hann bætir við að starfsmenn fyrir- tækisins séu í dag um 100 talsins, en verði líklega hátt í 200 í lok næsta árs. Miðpunktur í dreifingu bólu- efnis Samningar við nokkur af stærstu lyfjafyrirtækjum heims, standa undir mestum hluta af væntri tekju- aukningu Controlant, sem verður í lykilhlutverki í dreifingu á bóluefni gegn COVID-19, sem viðskiptavinir Controlant stefna að því að hefja framleiðslu og dreifingu á, fyrir lok árs og fyrripart næsta árs. „Það eru heilmiklar áskoranir í dreifingu bóluefna. Sum þeirra þarf að f lytja og geyma í djúp- frosti, mínus 80 gráðum, og þola ekki nema nokkra daga utan þess. Þetta verður því ekki hefðbundin dreifing þar sem vörum er dreift til dreifimiðstöðva, þaðan til heildsala og síðan heilsugæsla. Sendingarnar þurfa að fara beint frá framleiðanda til endastaða, þar sem bólusetning- Controlant lykilbirgir hjá lyfjarisum Mikil eftirspurn var eftir þátttöku í hlutafjáraukningu Controlant. Söfnuðu rúmlega tveimur milljörðum króna í stað eins. Samn- ingar við lyfjafyrirtæki tífalda veltuna upp í 4 milljarða króna á tveimur árum. Lykilþáttur í dreifingu bóluefnis gegn COVID-19. Gísli Herjólfsson, framkvæmdastjóri, og Guðmundur Árnason, fjármálastjóri, hafa í nógu að snúast til að ráða við stóraukin umsvif. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Sjóvá og VÍS bætast í hópinn Tryggingafélögin Sjóvá og VÍS voru á meðal þeirra stofnanafjár- festa sem komu nýir inn í hlut- hafahóp Controlant eftir hluta- fjáraukninguna. Samlagssjóðir Frumtaks Ventures eru stærsti hluthafi hátæknifyrirtækisins. Aðrir stórir hluthafar í Controlant eru enn fremur fjárfestingafélag- ið TT Investments, sem er meðal annars í eigu Baldurs Guðlaugs- sonar, fyrrverandi ráðuneytis- stjóra, og Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, Gísli Herjólfsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Controlant, eigendur Málningar, fjárfestarnir Magnús Magnússon og Magnús Pálmi Örnólfsson, Bessi Gíslason lyfjafræðingur og Ingi Guðjóns- son, stjórnarformaður og einn eigenda Lyfju, svo nokkur dæmi séu nefnd. 3 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.