Fréttablaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 6
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
hefur styrkt stöðu sína verulega á
sviði utanríkismála eftir breytingar
á skipun fulltrúa í fastanefndum
þingsins, sem tilkynntar voru fyrr
í vikunni. Auk þess að stýra ráðu-
neyti utanríkismála fara Sjálfstæð-
ismenn nú bæði með formennsku
og varaformennsku í utanríkis-
málanefnd og eiga þrjá fulltrúa í
nefndinni á móti einum fulltrúa
allra annarra flokka í nefndinni.
Töluverðar hrókeringar voru
gerðar í nefndum þingsins eftir að
Rósa Björk Brynjólfsdóttir sagði
sig úr Vinstri grænum stuttu áður
en þing kom saman til haustþings.
Rósa á enn sæti í utanríkismála-
nefnd, en sem þingmaður utan
flokka. Þá kemur Njáll Trausti Frið-
bertsson, Sjálfstæðisf lokki, inn í
nefndina í stað Bjarkeyjar Olsen
Gunnarsdóttur sem tekur hans sæti
í fjárlaganefnd. Njáll Trausti tekur
við varaformennsku í nefndinni af
Rósu Björk.
Eftir breytingar í nefndum þings-
ins á Sjálfstæðisf lokkurinn þrjá
aðalmenn í utanríkismálanefnd,
formanninn Sigríði Á. Andersen,
Njál Trausta og Bryndísi Haralds-
dóttur. Aðrir f lokkar á þingi eiga
aðeins einn fulltrúa, þar á meðal
Vinstri græn, en Ari Trausti Guð-
mundsson er eini þingmaður
f lokksins í nefndinni eftir breyt-
ingarnar.
„Auðvitað eru utanríkismálin
mikilvæg en það eru fjármálin
svo sannarlega líka, nú á þessum
tímum,“ segir Steinunn Þóra Árna-
dóttir, þingkona Vinstri grænna, í
samtali við Fréttablaðið. Hún segir
að eftir breytingarnar eigi Vinstri
græn tvo menn í fjárlaganefnd en
fyrir breytingarnar hafi þau aðeins
átt einn fulltrúa í þeirri nefnd en
Sjálfstæðisflokkurinn þrjá.
Ólík afstaða Vinstri grænna og
Sjálfstæðisf lokksins til utanríkis-
mála var meðal ástæðna þess að
mjög skiptar skoðanir voru um
samstarfið í grasrótum beggja
flokka. Vinstri græn hafa frá stofn-
un flokksins verið andvíg þátttöku
Íslands í Atlandshafsbandalaginu
en Sjálfstæðismenn lagt mikla
áherslu á samstarfið í NATO sem
lykilþátt í varnar- og þjóðaröryggis-
stefnu Íslands. – aá
NORÐURLAND Bæjarstjórn Fjalla-
byggðar fer nú yfir leiðir til þess
að bjarga Siglunesi, lítilli tá milli
Siglufjarðar og Héðinsfjarðar, fyrir
ágangi sjávar. En hún á stóran þátt í
að gera Siglufjarðarhöfn einhverja
þá bestu á landinu.
Hefur skipulags og umhverfis-
nefnd sveitarfélagsins lagt til að
sótt verði um framlag til Vega-
gerðarinnar í samvinnu við land-
eigendur vegna ágangs.
Gunnar Trausti Guðbjörnsson,
sem er brottf luttur Siglfirðingur
og ritstýrir Siglfirðingablaðinu, fer
nú fyrir átakinu Björgum Siglunesi.
Segir hann vitneskjuna um þessa
vá ekki nýja af nálinni.
Afi eins úr hópnum, gamall skip-
stjóri, hafi nefnt í kringum árið
1970 að skelfilegt yrði ef nesið færi
og aldan kæmist beint inn í fjörð-
inn. Staðkunnugir menn fullyrði
að um 20 til 30 metrar af hinu mjóa
nesi hafi horfið í sjóinn á undan-
förnum áratugum.
Jörðin Siglunes lagðist í eyði árið
1988 en þar var um langt skeið
prestssetur og ein helsta hákarla-
verbúð landsins. Liggja því merkar
minjar þar í jörð. Árið 2011 lét
Fornleifavernd ríkisins gera úttekt
á Siglunesi þar sem landbrot var
meðal annars metið. Kom þar fram
að töluvert landbrot hefði verið
undanfarin 60 ár, gróðurþekja
minnkað, sumar minjar skemmst
vegna ágangs og einhverjar minjar
þegar horfið í sjó.
„Þar sem nesið er mjóst er gróð-
urþekjan á algjöru undanhaldi,“
segir í skýrslunni. Var áætlað að
nesið hefði mjókkað um 6 til 10
metra á aðeins einum áratug, eða
frá árinu 2000, og lagt til að björg-
unaruppgröftur væri gerður til
þess að forða minjum áður en þær
hyrfu í sjóinn.
Þó að slæmt sé að minjar hverfi
hafa Gunnar og f leiri meiri áhyggj-
ur af höfninni og kaupstaðnum. „Ef
nesið fer í miðjunni er þetta bara
búið,“ segir hann. „Þá fer restin á
nokkrum árum og aldan kemur
óbrotin inn í fjörðinn. Það verður
ekki hægt að landa skipum og stór
skemmtiferðaskip munu ekki geta
sett farþega í land.“
Þá telji sumir að þetta muni
einnig hafa voveif leg áhrif á f lug-
völlinn, sem liggur suðaustan-
megin í firðinum, gegnt bænum.
Siglufjörður varð ekki að einu
farsælasta sjávarplássi landsins
fyrir tilviljun. Aðstæður í firðinum
og verndin frá Siglunesi gera það
að verkum. „Ég var sjálfur á sjó og
fann mikinn mun á að sigla þarna
inn miðað við til dæmis Ólafsfjörð
þar sem norðanaldan gengur beint
inn. Þetta er algjör líf höfn á þessu
svæði,“ segir Gunnar.
Ekki hefur verið reiknað út
hvað það taki langan tíma fyrir
nesið að brotna niður, en ljóst
er að eftir því sem það minnkar
gengur niðurbrotið hraðar. Segir
Gunnar það því afar brýnt að
ráðast í aðgerðir. Kostnaðurinn
hefur heldur ekki verið metinn en
tölum á bilinu 1 til 2 milljörðum
króna hefur verið kastað fram.
Reka þurfi þil og sprengja grjót úr
fjöllunum til að styðja það.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Auðvitað eru
utanríkismálin
mikilvæg en það eru fjár-
málin líka.
Steinunn Þóra Árnadóttir,
þingkona Vinstri grænna
Það verður ekki
hægt að landa
skipum og stór skemmti-
ferðaskip munu ekki geta
sett farþega í
land.
Gunnar Trausti
Guðbjörnsson,
ritstjóri
Höfnin í hættu hverfi Siglunes
Hópur fólks hefur tekið sig saman um að bjarga Siglunesi, lítilli tá sem gerir Siglufjarðarhöfn að úrvals-
höfn. Leitar Fjallabyggð nú að færum leiðum til þess að stöðva landbrot áður en það verður um seinan.
Siglunes mun hverfa í sjóinn verði ekkert að gert og þá kemst norðanbrimið óhindrað inn í Siglufjörð. MYND/INGVAR ERLINGSSON
Siglunes er vörn Siglufjarðar gegn
briminu. MYND/LANDMÆLINGAR ÍSLANDS
BA N DA R Í K I N Dómsmá la nef nd
öldungadeildar Bandaríkjaþings
fundaði í gær um tilnefningu Amy
Coney Barrett í hæstarétt Banda-
ríkjanna í síðasta sinn en fundir
um tilnefninguna hafa staðið yfir
frá því á mánudag.
Í gær ræddu þingmenn nefndar-
innar um tilnefninguna auk þess
sem aðrir en Barrett sjálf mættu
fyrir nefndina til að koma sínum
skoðunum um dómaraefnið á
framfæri og svara spurningum
þingmanna. Sjálf var Barrett ekki
viðstödd á fundinum í gær.
Það kom ekki á óvart að helstu
umræðuefni dagsins sneru að heil-
brigðismálum, þungunarrofi, hlut-
verki dómara og framtíð hæstarétt-
ar ef Barret yrði skipuð við réttinn.
Þeir sem mættu fyrir nefndina
voru ýmist fylgjandi eða á móti til-
nefningunni.
Formaður dómsmálanefndar-
innar, Lindsey Graham, byrjaði
fundinn á að ákveða tímasetningu
fyrir atkvæðagreiðslu innan nefnd-
arinnar um tilnefninguna en virti
með því að vettugi reglur þingsins
um að alla vega tveir þingmenn
minnihlutans þyrftu að vera við-
staddir.
Þrátt fyrir mótmæli frá eina
þingmanni Demókrata sem var
viðstaddur við upphaf fundarins,
Richard J. Durbin, og síðar öðrum
þingmönnum Demókrata sem
óskuðu eftir því að málinu yrði
frestað ótímabundið, var ákveðið
að nefndin myndi greiða atkvæði
um tilnefninguna næstkomandi
fimmtudag.
Repúblikanar eru með meiri-
hluta innan dómsmálanefndar-
innar og eru því allar líkur á að
tilnefningin verði samþykkt. Í kjöl-
farið mun öldungadeildin í heild
sinni greiða atkvæði um skipun
Barrett og þar sem Repúblikanar
eru einnig með meirihluta þar er
nánast öruggt að hún verði skipuð
í hæstarétt. – fbl
Greidd verða atkvæði um tilnefningu Barrett í næstu viku
Lindsey Graham. MYND/GETTY
BÓLIVÍA Luis Acre, forsetaframbjóð-
andi Sósíalista, leiðir samkvæmt
nýrri könnun, fyrir kosningar í Bóli-
víu á sunnudag. Kjósa átti 3. maí en
því var frestað vegna heimsfarald-
ursins. Bráðabirgðastjórn hefur
stýrt landinu undanfarið ár.
Sósíalistaleiðtoginn Evo Mor-
ales sagði af sér eftir vafasaman
kosningasigur í október árið 2019
og þrýsting frá hernum. Hefur
ringulreið ríkt í landinu síðan og
bráðabirgðastjórn Jeanine Anez
gengið illa að halda friðinn. Anez
tilkynnti í síðasta mánuði að hún
væri hætt við framboð sitt af ótta
við að sundra lýðræðissinnum og
Sósíalistar kæmust aftur til valda.
Könnunin, sem birt var síðasta
föstudag, sýnir Acre með 6 prósenta
forskot á helsta keppinautinn, Car-
los Mesa, sem var forseti á árunum
2003 til 2005.
Þrátt fyrir að Acre leiði hefur
stuðningur við Sósíalista dvínað
mjög. Í september mældist f lokkur-
inn með rúmlega 40 prósenta fylgi
en hefur nú tæplega 34 prósent.
Mesa mældist með tæplega 27 pró-
sent og hefur fylgi hans ekki mikið
breyst frá fyrri mánuði.
Miðað við þessa útkomu yrði
önnur umferð kosninga, því það
gerist sjálf krafa ef enginn fram-
bjóðandi nær 40 prósenta fylgi. – khg
Forskot hjá
flokki Morales
Sjálfstæðismenn með yfirburði í utanríkismálum
Skiptar skoðanir voru í þingflokki
VG um samstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
COVID-19 Ursula von der Leyen, for-
seti fram kvæmda stjórn ar Evr ópu-
sam bands ins, yfirgaf í gær leiðtoga-
fund sambandsins eftir að upp kom
COVID-19 smit hjá starfsmanni á
skrifstofu hennar.
Von der Leyen greindi frá því
á Twitter-síðu sinni í gær að hún
hefði farið í skimun fyrir veirunni
eftir að smitið hjá starfsmanninum
kom upp en fengið neikvætt svar.
Hún hygðist þó til öryggis yfirgefa
fundinn og fara í einangrun.
Leiðtogafundurinn fer fram í
Brussel og hann sitja leiðtogar allra
27 Evrópusambandsríkjanna. Efni
fundarins er undirbúningur samn-
ingaviðræðnalotu við Breta um
framtíðartilhögun samstarfs sam-
bandsins og Breta. – bdj
Yfirgaf fundinn
Ursula von
der Leyen
1 6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð