Fréttablaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 16
Ég er auðvita mikill kanilsnúða aðdáandi og elska Cinnabon í USA. Þessi upp
skrift er eftirherma af þeim nema
mig langaði að leika mér aðeins
í tilefni af Bleikum október og
hafa bleikt ostakrem smurt yfir
snúðana,“ segir Berglind og það má
með sanni segja að enn og aftur
hittir Berglind í mark með bakk
elsi sem enginn stenst. Berglindi
er margt til lista lagt og hæfileikar
hennar skína í gegn þegar kemur
að því að baka og skreyta kökur og
gleðja gestsaugað.
Það er um að gera að gleðja
sína nánustu á Bleikum föstu
degi eða í tilefni helgarinnar og
baka þessa. Sérstaklega gaman
að koma færandi hendi og skilja
eftir bakka af bleikum snúðum
við dyrnar hjá vinum og vanda
mönnum. Hægt er að fylgjast með
blogginu hennar Berglindar á
síðunni gotteri.is.
Bleikir Cinnabon-snúðar
Snúðadeig
670-700 g Polselli hveiti
1 pk. þurrger (11,8 g)
120 g smjör
250 ml nýmjólk
100 g sykur
1 tsk. salt
2 egg
2 tsk. vanilludropar
Setjið hveiti og þurrger í hræri
vélarskálina og blandið saman
(haldið eftir hluta af hveitinu
þar til í lokin). Bræðið smjörið í
potti og hellið síðan mjólk, sykri
og salti saman við og hrærið
þar til ylvolgt. Hellið saman við
hveitiblönduna og hrærið með
króknum á meðan. Bætið eggjum
og vanilludropum saman við og
síðan restinni af hveitinu ef þurfa
þykir. Egg eru misstór og því þarf
mismikið hveiti. Setjið hveiti þar
til deigið hnoðast vel saman en
er samt frekar blautt í sér. Náið
því þá úr hrærivélinni og hnoðið
saman í höndunum, penslið skál
með matarolíu og veltið deiginu
uppúr, plastið og leyfið að hefast
í um 45 mínútur. Fletjið þá út á
hveitistráðum fleti í um 40 x 50 cm
og smyrjið kökuform/eldfast mót
sem er um 25 x 35 cm að stærð vel
með smjöri.
Fylling
220 g púðursykur
3 msk. kanill
100 g smjör við stofuhita
Smyrjið útflatta deigið vel með
smjöri. Blandið saman sykri og
kanil og dreifið jafnt yfir deigið.
Rúllið upp frá lengri endanum,
skiptið niður í 12 einingar og raðið
í formið. Plastið að nýju og leyfið
að hefast aftur í um 45 mínútur.
Bakið þá við 180°C í 2025 mínútur
eða þar til snúðarnir verða vel
gylltir.
Rjómaostakrem
100 g rjómaostur við stofuhita
60 g smjör við stofuhita
200 g flórsykur
1 tsk. vanilludropar
Salt af hnífsoddi
Bleikur matarlitur (sé þess óskað)
Þeytið saman rjómaost og smjör.
Bætið flórsykri saman við í
nokkrum skömmtum, skafið niður
á milli.
Bætið salti og vanilludropum
við í lokin ásamt matarlit, sé
þess óskað, og smyrjið yfir volga
snúðana. Gott að leyfa þeim að
standa í um 15 mínútur.
Bleikir Cinnabon-snúðar
sem hægt er að kolfalla fyrir
Í tilefni af Bleikum október og Bleikum föstudegi bakaði Berglind Hreiðarsdóttir, köku- og matar-
bloggari, þessa fullkomnu bleiku cinnabon-snúða sem allir missa sig yfir. Snúðarnir eru ómót-
stæðilega ljúffengir og mjúkir þannig að erfitt er að standast þá. Snúðar sem allir verða að prófa.
Bleikir snúðar á bleika föstudeginum hljóta að heilla gesti eða vinnufélaga.
Snúðarnir líta vel út hjá Berglindi.
Sjöfn
Þórðardóttir
Matarást
Sjafnar
Berglind heldur úti vinsælu matarbloggi, gotteri.is. MYND/ANTON BRINK
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is
VÖRUBÍLAR OG
VINNUVÉLAR
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um vörubíla og
vinnuvélar kemur út föstudaginn 23. október nk.
T yggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R