Fréttablaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 10
ÍÞRÓTTIR „Íþróttir byggja alltaf á
miklum tilfinningum og að mörgu
leyti eru tilfinningar frumkraftur
íþrótta. Það sést bersýnilega á
hegðun áhorfenda á leikjum og það
er grundvallarpunktur að ef íþróttir
myndu ekki byggja á tilfinningum
væru íþróttir ekki svona vinsælar.
Þær myndu ekki ná til þess fjölda
sem þær gera á heimsvísu,“ segir
Viðar Halldórsson félagsfræðingur,
sem hefur sinnt kennslu og rann-
sóknum í íþróttafélagsfræði og
íþróttasálfræði, þegar Fréttablaðið
ræðir við hann um hið fræga faðm-
lag eftir leik Íslands og Rúmeníu.
KSÍ sendi frá sér tilkynningu
í gær þar sem hlið Knattspyrnu-
sambandsins var útskýrð eftir að
Fréttablaðið vakti athygli á því að
hluti starfsliðs karlalandsliðsins
hefði brotið reglur UEFA og KSÍ
um sóttvarnir eftir leikinn gegn
Rúmeníu í síðustu viku. Þá fóru
tveir einstaklingar í starfsteyminu,
Þorgrímur Þráinsson og Magnús
Gylfason, inn á völlinn til að fagna
með liðsmönnum íslenska liðsins
en síðar kom í ljós að Þorgrímur
var smitaður af COVID-19 og var
allt þjálfarateymið í sóttkví á leik
Íslands og Belgíu í fyrradag.
Í tilkynningu KSÍ kom fram að
samkvæmt reglum hefði þeim verið
heimilt að ganga inn á völlinn en að
reglur um fjarlægðarmörk hefðu
verið brotnar þegar þeir komust
í snertingu við leikmenn Íslands
eftir leikinn. Þá var því bætt við að
tilfinningar sem væru stór hluti af
íþróttum hefðu ráðið för eins og
gerist þegar fólk upplifi stór atvik
inn á vellinum og fyrir vikið hefðu
menn gleymt sér í andartakinu. Það
afsaki ekki þetta og að KSÍ muni
leitast við að gera betur og standa
undir ábyrgð.
Viðar sem hefur unnið að ýmsum
rannsóknum tengdum íþróttum,
þar á meðal á áhrifum velgengni
knattspyrnulandsliðanna, segir
að velgengni landsliða skili sér í
meiri ánægju í íslensku samfélagi.
„Þegar Ísland komst á HM jókst
vellíðan þjóðarinnar, líf ið var
betra og fólk fylltist mikilli þjóð-
erniskennd. Íþróttir eru í kjarna
sínum byggðar á tilf inningum
fólks, stuðningsmanna og þátttak-
enda og sumir horfa á íþróttir eins
og trúarbrögð. Íslenska leiðin er að
spila með hjartanu og við ætlumst
til þess að fulltrúar okkar keppi frá
hjartanu og fullnýti allar tilfinn-
ingar þegar þeir keppa fyrir Íslands
hönd.“
Sjálfur hefur Viðar unnið með KSÍ
og þekkir því vel til menningarinn-
ar innan landsliðsins.
„Ég hef komið að verkefnum með
KSÍ og maður finnur að það eru
allir samtaka í átt að sameiginlegu
markmiði fyrir liðið. Þá geta tilfinn-
ingarnar brotist út eins og raun bar
vitni, ekkert ólíkt því sem gerist
hjá áhorfendum á meðan á leikjum
stendur. Áhorfendur missa sig oft
þótt að þeir séu ekki þátttakendur,
hvað þá einstaklingar sem eru búnir
að eyða dögum, mánuðum, jafnvel
árum í undirbúningi.“
Aðspurður tekur Viðar undir að
þetta sé fín lína á milli þess hvaða
snertingar megi leyfa og þess að
gæta sóttvarna.
„Auðvitað viljum við öll gæta
sóttvarna og í þessu tilviki var
mikil óheppni að þarna var um
að ræða smitaðan einstakling.
Íþróttaheimurinn er að takast á
við áskorun sem þau hafa aldrei
áður tekist við. Reglurnar sem eru í
gildi eiga að hjálpa okkur að sporna
við þessu sem er mjög mikilvægt en
kannski eru þær ekki fullmótaðar.
Í tilviki landsliðsins eru allir búnir
að vera í búbblu, saman í langan
tíma og búnir að fara margoft í
skimun. Hægt er að nefna dæmi að
í kvennalandsleiknum voru reglur
um að það ætti að vera eins metra
bil á milli leikmanna í þjóðsöng-
num. Svo fóru leikmenn beint í liðs-
myndatöku og spiluðu svo leikinn
með tilheyrandi snertingum,“ segir
Viðar sem segir þó mikilvægt að
gæta þess að huga eins vel að sótt-
vörnum og hægt er.
„Það er ekki hægt að sjá fyrir
aðstæður eins og þessar og það er
því eðlilegt að það sé óvissa. Þegar
það á við geta grá svæði myndast í
regluverkinu og þá koma upp svona
túlkunaratriði. Ef þessi veira er ekk-
ert á förum næstu ár verður að sníða
reglurnar betur að aðstæðum.“
kristinnpall@frettabaldid.is
Íþróttir byggjast á tilfinningum
Í tilkynningu KSÍ í gær kom fram að starfsfólki sambandsins hefði verið heimilt að fara inn á völlinn en
óheimilt að fallast í faðma. Íþróttasálfræðingur segir erfitt að hemja tilfinningarnar á slíkum stundun.
Víkingaklappið er hluti af tengslum áhorfenda við íslensku landsliðin í knattspyrnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Íþróttir eru í kjarna
sínum byggðar á
tilfinningum fólks.
Viðar Halldórsson,
doktor í félagsfræði
FÓTBOLTI Freddy Adu sem skaust
fram á sjónarsviðið sem þrettán
ára vonarstjarna bandarískrar
knattspyrnu er búinn að semja við
lið í 3. deild sænska boltans. Adu tók
því skóna fram á ný eftir tveggja ára
fjarveru frá knattspyrnu og mun
leika með Osterlen FF í Svíþjóð.
Adu varð yngsti leikmaður heims
til að skrifa undir atvinnumanna-
samning þegar hann skrifaði undir
hjá D.C. United, fjórtán ára gamall
árið 2003. Adu vakti athygli stærstu
liða heims og var boðið á reynslu til
Manchester United en það fór f ljót-
lega að fjara undan ferlinum.
Adu sem er 31 ára í dag hefur
verið á mála hjá liðum í Portúgal,
Frakklandi, Grikklandi, Tyrklandi,
Brasilíu, Serbíu, Finnlandi og nú
Svíþjóð. Hann lék á sínum tíma
sautján leiki fyrir hönd Bandaríkj-
anna og skoraði tvö mörk. – kpt
Freddy Adu
samdi í Svíþjóð
1 6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
ÍÞRÓTTIR Frá 7. október síðast-
liðnum hef ur keppnishaldi í
íþróttum hérlendis verið slegið á
frest. Íþróttafélögin í landinu sam-
mæltust þá um að fylgja tilmælum
sóttvarnayfirvalda og ÍSÍ, stöðva
tímabundið æfingar liða á höfuð-
borgarsvæðinu og hvers konar
keppni og mótahald um allt land.
Núgilandi sóttvarnareglur renna
út mánudaginn 19. október.
Lesa má úr orðum Þórólfs Guðna-
sonar sóttvarnalæknis að hann
muni í dag mæla með því við heil-
brigðisráðherra að gildandi sótt-
varnareglur muni í meginatriðum
gilda áfram næstu vikurnar. Þar
verði hins vegar skerpt á fyrirmæl-
um á ýmsum sviðum samfélagsins.
Skiptar skoðanir eru í knatt-
spy rnusamfélaginu um hvort
halda skuli áfram mótahaldi
eftir að núverandi frestun Knatt-
spyrnusambands Íslands, KSÍ,
rennur út á mánudag. Samkvæmt
bráðabirgðareglugerð sem KSÍ setti
vegna COVID-19 skal ljúka keppni
í deild og bikar eigi síðar en 1. des-
ember. Heimilt er að hætta keppni
á Íslandsmótinu og bikarkeppninni
ef sýnt þykir að ekki sé mögulegt að
klára mótin vegna COVID-19.
Verði sömu takmarkanir á æfing-
um og keppni áfram við lýði næstu
tvær eða þrjár vikurnar er ljóst að
mótanefnd KSÍ hefur tæpan mánuð
til þess að klára mótin en inn í þann
tíma kemur landsleikjagluggi bæði
karla- og kvennamegin. Verði mót-
unum af lýst mun hlutfallsstiga-
fjöldi gilda um niðurröðun sæta og
Valur verður Íslandsmeistari karla-
megin og Breiðablik í kvennaflokki.
Mikið er í húfi fyrir félögin hvað
það varðar að færast upp á milli
deilda og tryggja sér Evrópusæti.
Liðin á höfuðborgarsvæðinu gætu
bent á að ósanngjarnt sé að mæta
liðum af landsbyggðinni sem hafa
getað æft saman síðustu tvær vikur.
Á hinn bóginn hafa félög af lands-
byggðinni bent á að ekki sé tækt að
senda leikmenn liðanna frá svæðum
þar sem fá smit eru að greinast til
höfuðborgarsvæðisins þar sem
faraldurinn er útbreiddastur. Fram
kom í frétt Austurfrétta fyrr í þessari
viku að forráðamenn Hattar/Hug-
ins, Einherja og Fjarðabyggðar hafi
óskað eftir því við KSÍ að keppni
verði hætt í neðri deildum karla
og kvenna. Haft er eftir Guðmundi
Björnssyni Hafþórssyni, formanni
knattspyrnudeildar Hattar/Hugins,
að fleiri félög af landsbyggðinni séu
sama sinnis þrátt fyrir að vera ekki
með í þessari beiðni.
Samkvæmt könnun sem leik-
mannasamtökin framkvæmdu um
miðjan ágústmánuð á meðal leik-
manna í efstu deild karla og kvenna
í knattspyrnu á Íslandi myndu rúm-
lega 40 prósent svarenda kjósa að
KSÍ myndi stöðva keppni.
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar ÍA, benti
á það í Twitter-færslu á dögunum
að leikmenn væru ekki vélmenni
og erfitt væri fyrir þá að stöðva
síendurtekið sameiginlegar æfingar
liða og það að spila leiki og og hefja
keppni aftur með snörpum hætti
eftir stöðvun. Það valdi meiðsla-
hættu hjá leikmönnum.
Einnig hafa komið upp sjónar-
mið hjá stjórnarmönnum félaga
að þau geti ekki lengur staðið við
skuldbindingar við þá leikmenn
sem þeir sömdu við fyrir tíma-
bilið. Þannig geti mörg félög ekki
haft erlenda leikmenn sína áfram á
sínum snærum.
KSÍ hefur í fyrri yfirlýsingum
sagt að stefna sambandsins sé að
klára Íslandsmótið og bikarkeppn-
ina og í áðurgreindri bráðabirgða-
reglugerð segir að mótanefnd KSÍ
skuli kappkosta að ljúka mótun-
um. Mótanefndinni er heimilt að
framlengja mótið ef umtalsverðar
líkur eru á að mati nefndarinnar
að hægt sé að ljúka viðkomandi
móti. – hó
Limbó íþróttalífs á Íslandi heldur áfram næstu vikurnar
Valsmenn eru með níu fingur á titlinum karlamegin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KSÍ hefur gefið sér út
nóvember til að ljúka
mótshaldi þessa árs.
FÓTBOLTI Leiðir karlaliðs Vestra í
knattspyrnu og Bjarna Jóhanns-
sonar munu skilja eftir að yfir-
standandi keppnistímabili lýkur.
Bjarni hefur stýrt Vestra í þrjár
leiktíðir og fram kemur í tilkynn-
ingu Vestra um viðskilnaðinn að
félaginu þyki miður að samstarfinu
ljúki á þessum tímapunkti.
Bjarni hóf störf fyrir vestan árið
2018 en hann stýrði Vestra upp úr 2.
deildinni síðasta haust. Þegar tvær
umferðir eru eftir af Lengjudeild-
inni er liðið í sjöunda sæti deild-
arinnar með 29 stig. Vestri er því
öruggt með sæti sitt næsta sumar
hvort sem mótið verður klárað eða
keppni hætt vegna COVID-19.
Fram kom í frétt á fótbolta.net
nýverið að tveir erlendir leikmenn
sem hafa leikið með liðinu í sumar
hafi nú þegar yfirgefið herbúðir
Vestra og á mánudaginn kemur
muni samningar þeirra erlendu
leikmanna sem enn séu fyrir vestan
renna út. Því liggi fyrir að liðið muni
treysta á heimamenn og þá íslensku
leikmenn sem leika með liðinu það
sem eftir lifir tímabils. – hó
Breytingar á
Vestfjörðum