Fréttablaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 26
Dýrin búa við
góðan kost og
þessir litlu framleið-
endur bera mikla virð-
ingu fyrir hráefninu.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Eirný segist hafa unnið yfir sig á ákveðnu tímabili svo hún ákvað að selja búðina í lok
árs 2017 til að endurheimta krafta
sína. „Ég hef alla tíð unnið mikið
og alltaf með kollinn fullan af hug
myndum. Eftir að ég seldi búðina
fór ég að leggja enn meiri áherslu á
Matarmarkað Íslands í Hörpu sem
óx og dafnaði með hverju árinu.
Við ætluðum að vera með markað
í mars en urðum að aflýsa honum
vegna COVID. Við stefndum á jóla
markað í desember sem verður því
miður ekki. Það er ekki hægt í ljósi
aðstæðna að hóa hópi fólks á sama
staðinn,“ segir hún.
Erlendir brautryðendur
„Við Hlédís Sveinsdóttir höfum
verið með þessa markaði í níu
ár og ég held að fólk geri sér ekki
almennt grein fyrir hversu mikil
gróska er í smáframleiðslu á
Íslandi. Sömuleiðis var mikil eftir
spurn eftir matarmarkaðnum því
gestir voru nálægt 30 þúsund. Það
eru svo ótrúlega margir að gera
góða hluti. Þegar ég kom heim
Sprenging í matarnýjungum
Eirný Ósk Sigurðardóttir stofnaði Búrið á sínum tíma. Hún hafði þá búið í Edinborg í Skotlandi í
sautján ár og fannst vanta verslun sem legði áherslu á lífræna ræktun og íslenskar gæðavörur.
Eirný Ósk Sigurðardóttir rak osta- og ljúfmetisbúðina Búrið í tíu ár. Hún hefur alltaf látið íslenska matargerð sig miklu skipta og hefur verið með Matarmarkað Íslands í Hörpu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
frá Skotlandi var þetta rétt að
byrja en síðan hefur framleiðslan
stöðugt verið að aukast. Það er
mikil virðing borin fyrir íslenskri
framleiðslu,“ segir Eirný en bætir
við að henni finnist samt eins og
það hafi verið útlendingar sem
hafi verið brautryðjendur í heima
framleiðslu.
„Ég get nefnt hjónin í Hálsi í
Kjós, þau Lisu Boije af Gennaes og
Þórarin Jónsson. Lisa kemur frá
Sviss og var vön því að hægt væri
að kaupa beint frá bónda. Þau eru
sérfræðingar í nautakjöti. Þá get
ég einnig nefnt Tomas Atla Ponzi
og Björk Bjarnadóttur sem rækta
grænmeti í Mosfellsdal, aðallega
tómata. Svo framleiðir Bettina
Wunsch í Brautartungu í Háfs
hverfinu í Þykkvabænum geitaís
sem er einstakur. Loks get ég nefnt
Roberto Tariello sem framleiðir
dásamlegt salami og aðrar ítalskar
pylsur. Hann vann gullverðlaun
fyrir rauðvínssalami á handverks
matarhátíð. Roberto er Ítali en
hefur búið lengi hér, settist að í
Þykkvabænum og hefur hjálpað
til við að búa til atvinnutækifæri
þar. Mjög spennandi nýjungar sem
hann er að framleiða,“ segir Eirný
og segir þessa upptalningu ekki
tæmandi.
Einstakt hugmyndaflug
„Ég á nokkra uppáhalds fram
leiðendur og get nefnt Sólsker á
Hornafirði sem er með dásam
legan heitreyktan makríl. Eigand
inn, Ómar Fransson, er sjómaður
og vildi nýta það sem hann dró
á land. Sannarlega frumkvöðla
starf. Einnig get ég nefnt hjónin á
Brúnastöðum, Stefaníu Leifsdóttur
og Jóhannes Helga Ríkharðsson.
Hún hefur verið að þróa verkefni í
ostagerð, til dæmis geitaost og aðra
kindaosta. Svo er Hvannar lambið
frá Fagradal ótrúlega gott og
maður getur gengið að gæðunum
vísum. Það er mikið af skemmti
legum nýjungum sem hafa verið
að fæðast um allt landið. Það má
vel nefna harðfisk sem er orðinn að
vinsælu prótínsnakki. Hugmynda
flugið er alveg einstakt en núna eru
litlir matarframleiðendur komnir
yfir eitt hundrað auk handverks
framleiðenda. Það má því segja að
það hafi orðið sprenging á þessu
sviði,“ segir Eirný og bendir á að
þegar fólk kaupi vörur beint frá
bónda geti það gengið að gæð
unum vísum með sögu og rekjan
leika. „Dýrin búa við góðan kost
og þessir litlu framleiðendur bera
mikla virðingu fyrir hráefninu,“
segir hún.
Kráareigandi í Skotlandi
Eftir BAnám og síðan MSc í Edin
borg vann Eirný hin ýmsu störf í
Skotlandi. „Meðfram námi var ég
veitingastjóri á veitingahúsi, einn
ig kenndi ég á tímabili og starfaði
þá í kastala í hálöndum Skotlands.
Ég sótti síðan um í frumkvöðla
keppni og fékk peningastyrk til
að stofna rekstarþjónustu en ég
hef alltaf verið viðloðandi mat
og drykk,“ segir Eirný sem meðal
annars gerðist kráareigandi í
Edinborg. „Það má segja að ég hafi
alltaf verið eitthvað að bardúsa. Á
tímabili f lutti ég inn ólífuolíu frá
Grikklandi og seldi í Skotlandi.
Þá kynntist ég matarmörkuðum.
Matargerð hefur alltaf verið mikil
ástríða hjá mér og það var ástæða
þess að ég opnaði Búrið á sínum
tíma. Ég reyndi að bjóða nýj
ungar í matargerð, meðal annars
púrtvíns lagaða gráðosta sem urðu
mjög vinsælir fyrir jólin og voru
orðin hefð á mörgum heimilum.
Einnig var ég með ýmsar sultur og
annað meðlæti. Þetta var heljar
innar framleiðsla. Þá bauð ég upp
á námskeið sem voru vinsæl en
liggja núna niðri vegna COVID,“
segir Eirný en hún og Svavar Hall
dórsson eru með þætti á RÚV sem
nefnast Heimur ostanna.
Auðvelt að nálgast vörurnar
Eirný segir að matarviðburðir
séu loksins að fæðast hér á landi.
„Þetta er framtak sem bætir matar
menningu landsins. Ég er ótrúlega
bjartsýn á framtíð matarmarkaða
og smáframleiðenda,“ segir Eirný
og þegar hún er spurð hvernig
best sé að nálgast þessar vörur á
tímum kórónuveirunnar, svarar
hún: „Það eru margar leiðir til að
nálgast íslenskar vörur og netið
er hjálplegt. Ég get nefnt beintfra
byli.is og matarbudin.is. Einnig er
Reko á Facebook en þar er hægt
að panta vörur og sækja og síðan
okkar Matarmarkaður er einnig á
Facebook.
Umgjörðin utan um íslenska
smáframleiðendur er orðin
sterkari en hún var og hún er líka
hvetjandi fyrir þá sem vilja stíga
sín fyrstu spor á þessum markaði,“
segir Eirný og víst er að allir ættu
að geta fengið uppáhaldsvörurnar
sínar fyrir jólin þótt enginn verði
matarmarkaðurinn.
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
NÝJAR UMBÚ
ÐIR
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R