Fréttablaðið - 16.10.2020, Side 8

Fréttablaðið - 16.10.2020, Side 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Það er áhyggjuefni að upp- gangsárin hafi ekki verið nýtt betur til að búa í haginn fyrir mögru árin. Þingmenn eiga að líta á sig sem fulltrúa allrar þjóð- arinnar og leiðin að því marki er að gera at- kvæðavægi landsmanna jafnt. Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ný tvöföld virkni sem veitir hraða og langvarandi vörn gegn tannkuli. Lok, lok og læs Sameyki er búið að velja stofnun ársins 2020 og f leira skemmtilegt. Tveir skólar fóru með sigur af hólmi í sínum keppnisgreinum. Norðlinga- skóli og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum. Á yfir- standandi ári hefur skólahald verið með breyttu sniði frá því sem áður þekktist út af sottlu og hafa þeir verið meira og minna lokaðir á árinu. Það virðist hafa gefist vel í þessu tilliti. Þá vekur athygli að Nýsköpunarmiðstöð Íslands sigraði í sínum keppnis- f lokki, stofnanir ríkisins. Eins og kunnugt er er það óbifanleg ákvörðun nýsköpunarráðherra að starfsemi þeirrar ríkisstofn- unar verði hætt um áramót. Aldrei má ekki neitt Í samráðsgátt er komið frum- varp dómsmálaráðherra um stórfelldar takmarkanir á mannréttindum í kringum áramót. Það er verið að tak- marka notkun skotelda. Þetta er sjokker. Það er búið að loka okkur inni, banna okkur að hittast, megum ekki fara á bar- inn og þurfum að standa í röð fyrir utan vínbúðina – sem er eiginlega jafnniðurlægjandi og að standa í röð fyrir utan Húð og kyn við Borgarspítalann. Ofan í allt þetta mega menn ekki gleðja sig yfir f lugeldum nema örfáar mínútur um áramótin umfram þann tíma sem skaupið og for- sætisráðherrann eru í loftinu. Þegar talað er fyrir jöfnun atkvæðavægis til kosn-inga er viðkvæðið gjarnan: „Á nú að taka þetta frá landsbyggðinni líka?“ Og það er ekki nema von að spurt sé. Nær allri stjórnsýslu og umgjörð hennar hefur verið komið fyrir á suðvesturhorni landsins. Á sama tíma hefur grunnþjónusta í heil- brigðiskerfinu dregist saman á landsbyggðinni. Það sama má segja um verslun og þjónustu, allt frá sauma- stofum til banka. Þetta hefur átt sér stað þrátt fyrir misskiptingu atkvæða og því spyr ég á móti: Hvað hefur ójafna atkvæðavægið gert til að bæta þetta? Þessi atriði sem ég nefni hér eru allt verðug við- fangsefni, sem hafa verið látin ósnert of lengi. Við eigum að nýta fjarvinnutæknina til að tryggja að störf í stjórnsýslunni séu úti um allt land. Við eigum líka að nýta tæknina til að tryggja að aðgengi allra að opin- berri þjónustu sé jafnt. Við þurfum að færa aukið lýð- ræðislegt vald til sveitarstjórnarstigsins og fjármagn í samræmi við það. Síðast en ekki síst verðum við að tryggja að arður þjóðarinnar af fiskveiðiauðlindinni sé nýttur til uppbyggingar í hverri heimabyggð – og sérstaklega fyrirsjáanleg aukning arðsins sem fæst með því að færa kvótann á markað. Fyrir því höfum við í Viðreisn barist frá upphafi. Þingmenn eiga að líta á sig sem fulltrúa allrar þjóðarinnar og leiðin að því marki er að gera atkvæða- vægi landsmanna jafnt. Við eigum ekki að veita þeirri umræðu hljómgrunn að ójafna atkvæðavægið sé til þess að bæta með einhverjum hætti skort á þjónustu á landsbyggðinni. Ég þekki engan sem myndi vilja auka atkvæðavægi sitt í kosningum gegn því að fá lakari heilbrigðisþjónustu. Þetta eru með öllu ótengdir þættir. Við eigum bæði að jafna atkvæði allra lands- manna og auka þjónustu og öryggi þeirra sem búa allt landið um kring. Þetta eru lykilatriði þegar kemur að raunverulegu frelsi fólks í lýðræðissamfélagi. Hags- munum landsmanna, óháð búsetu, er best borgið með kerfi sem sameinar okkur frekar en sundrar. Af hverju ójafnt atkvæðavægi? Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar Vegna sterkrar stöðu ríkissjóðs getum við beitt ríkisútgjöldunum, meðal annars með aukinni opinberri fjárfestingu, til að vinna gegn efnahagssamdrættinum og stutt við heimili og fyrirtæki. Það þýðir samt ekki, eins og stundum mætti ætla, að hægt sé að umgangast ríkissjóð eins og opinn bar. Fyrirséður hallarekstur veldur því að lánsfjárþörf ríkisins fram til 2025 er um þúsund milljarðar. Á meðan óvissa er um hvernig eigi að standa að fjármögnun á þessari skuldaaukningu – Seðlabankinn hefur ekki enn látið til sín taka með beinum kaupum á ríkisskuldabréfum – er hætt við því að langtímavextir á markaði muni fara hækkandi með auknum vaxtakostnaði í för með sér fyrir ríkið. Slík hækkun myndi eins smitast yfir á lánamarkaðinn með því að gera fjármögnun fyrirtækja dýrari og auka aðhaldið á sama tíma og efnahagshorfur fara versnandi. Kórónukreppan einskorðast hins vegar ekki ein- göngu við rekstur ríkissjóðs. Fjárhagsstaða sumra sveitarfélaga, einkum Reykjavíkurborgar, var veik fyrir en nú blasir við alvarlegur hallarekstur til næstu ára og við því þurfa þau að bregðast. Sú leið sem sveitarfélögin hafa farið er að óska eftir aðkomu ríkisins með beinu óendurkræfu fjárframlagi upp á 50 milljarða króna. Það er samt ekki allt. Fulltrúi Samfylkingarinnar í borgar- meirihlutanum lýsti því yfir um helgina í fjölmiðlum að Reykjavíkurborg væri jafnframt að biðja um aðra eins upphæð sérstaklega í sinn vasa frá ríkinu. Skattgreið- endur, sama í hvaða sveitarfélagi þeir búa, ættu í reynd að gleðjast yfir þessari beiðni enda væri Reykjavík borg allra landsmanna. Ekki er víst að allir landsmenn taki undir þann málflutning. Meirihlutinn í borginni hefur ítrekað fullyrt að fjárhagur Reykjavíkur standi traustum fótum. Það skýtur skökku við nú þegar staðan er sú, eins og fram hefur komið í minnisblaði sviðsstjóra fjármálasviðs borgarinnar, að fjármögnunarvandinn sé slíkur – vegna tekjusamdráttar og aukinna útgjalda – að það stefni í „algerlega ósjálfbæran rekstur til margra ára“. Þá sé ekki hægt að leysa þann vanda með „stórfelldum lánveit- ingum þar sem veltufé frá rekstri mun ekki til margra ára framundan standa undir afborgunum“. Þessi grafal- varlega staða kemur til á sama tíma og borgin er þegar með útsvars- og fasteignaskattsprósentur við lögbundið hámark. Það er mikið áhyggjuefni að uppgangsárin hafi ekki verið nýtt betur til að búa í haginn fyrir mögru árin og byggja upp sterkari sjóðsstöðu. Þannig jukust tekjur borgarinnar um tæplega 24 prósent að raunvirði 2015 til 2019 á meðan skuldirnar jukust um 27 prósent. Sumt hefur þróast til betri vegar í höfuðborginni undanfarin ár, en eitt af því er ekki fjármálastjórn meirihlutans. Vandinn þar er heimatilbúinn og lýsir sér meðal annars í því að Reykjavíkurborg, sem er með um 20 prósent fleiri starfsmenn á hvern íbúa en Kópavogs- bær, hefur mistekist að nýta sér stærðarhagkvæmni í rekstrinum. Í stað þess að betla meiri pening af ríkinu, sem á nóg með sig, ætti borgin að leita allra leiða til hag- ræðingar – þar er af nægu að taka – og um leið að koma til móts við fyrirtæki í erfiðleikum og búa þeim sam- keppnishæft rekstrarumhverfi. Við þessar aðstæður geta stjórnendur og meirihlutinn í borginni ekki verið stikkfrí frá því að taka sársaukafullar ákvarðanir. Ekki stikkfrí  1 6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.