Fréttablaðið - 16.10.2020, Síða 18

Fréttablaðið - 16.10.2020, Síða 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Guðjón Kristjánsson, yfirmat-reiðslumaður og rekstrar-stjóri hjá Restaurant Reykja- vík, segir að jólahlaðborðin verði ekki síðri í ár en undanfarin sjö ár sem hann hefur starfað á staðnum. „Ef takmarkanir á fjölda fólks verða enn í gildi í lok nóvember þegar jólahlaðborðin fara í gang verður brugðist við því með tilliti til sótt- varna. Við vonum þó að gestir geti komið á sín árlegu jólahlaðborð til að byggja upp tilhlökkun til jólanna,“ segir hann. Húsnæði Restaurant Reykjavíkur á Vesturgötu 2 á sér langa sögu eða allt frá árinu 1863. Sagt er að húsið sé miðja Reykjavíkur og að öll götunúmer í borginni séu talin út frá húsinu til allra átta. Marg- vísleg starfsemi hefur verið í húsinu í gegnum árin en undanfarinn rúman áratug hefur Restaurant Reykjavík yljað gestum með alls kyns glæsilegum matarveislum. Staðurinn er rúmgóður og býður upp á minni og stærri einkasali fyrir mismunandi stóra hópa. Hlað- borð verður í hverjum sal. Frábær skemmtiatriði Jólahlaðborðin hafa verið sérstak- lega glæsileg auk þess sem boðið er upp á lifandi tónlist. Núna verður það söngkonan Elísabet Ormslev, ásamt Hróa, sem mun syngja gesti inn í jólastemninguna. Þá mun Þór Óskar tónlistarmaður einnig sjá um að skemmta gestum. Matreiðslumeistararnir munu síðan sjá um að fylla borðin með jólasteikum og girnilegum eftir- réttum. Guðjón segir að boðið verði upp á fjölbreytta og hefðbundna jólarétti. „Við erum með þrettán kalda forrétti en meðal þeirra má finna síldarrétti, grafinn og reyktan lax, villibráðasalat, fjórar gerðir af hangikjöti sem koma frá öllum landshlutum, jafnt taðreykt, tví- reykt sem birkireykt, ásamt öðrum ljúffengum réttum. Heitir réttir eru kalkúnabringa, lambalæri og pörusteik. Allur heitur matur er skorinn af kokkunum beint á diska. Ýmislegt gott meðlæti er með heitu réttunum, eins og sykurbrúnaðar kartöflur, waldorf-salat, rauðkál og baunir og þess háttar. Að lokum er hægt að velja um fimm gerðir af eftirréttum,“ segir Guðjón. „Við reynum að halda í klassíska rétti enda eru þeir alltaf vinsælastir og þá sérstaklega hangikjötið,“ bætir hann við. Glæsilegt jólatré Fyrir jólin hefur húsið að Vestur- götu 2 vakið sérstakla athygli veg- farenda fyrir fagurlegar skreytingar sem sóma sér vel þegar snjórinn lætur sjá sig. Guðjón bendir á að það sé alltaf stórt og fallega skreytt jólatré fyrir utan húsið. Salirnir eru sömuleiðis glæsilega jólaskreyttir svo gaman er að koma í Restaurant Reykjavík fyrir jólin. Jólahlað- borðin byrja um miðjan nóvember og verða fimmtudaga, föstudaga og laugardaga. „Ef áhugi er fyrir því hjá hópum að koma í miðri viku bjóðum við upp á það, hvort sem það er í hádegi fyrir vinnustaðahóp eða að kvöldi,“ segir hann. Guðjón bendir á að allir eigi að borða sig sadda á jólahlaðborðum og það má alltaf fá sér meira á diskinn. „Flestir fara þrjár ferðir áður en þeir fara í eftirréttina,“ segir hann. Veisla alla daga Þótt jólahlaðborðin eigi sér alltaf sterkan sess í hjörtum landsmanna og komi eiginlega með jólastemm- inguna þá er líka hægt að fara um helgar og fá sér bröns sem er afar vinsælt hjá fjölskyldum. „Þegar nær dregur jólum verðum við auk þess með jólabröns í hádeginu um helgar,“ segir Guðjón. „Við erum venjulega með hádegisseðil í hádeginu á virkum dögum á frá- bæru verði og svo erum við mat- seðil á kvöldin. Um þessar mundir bjóðum við upp á skemmtilegan smáréttamatseðil.“ Stemning í borginni Jólahlaðborðin byrja oft með for- drykk eða kokteil en þá mæta gestir um kl. 18-18.30. „Sumir koma um kl. 20 og það er í sjálfu sér fínt að dreifa aðeins umferðinni. Maður fer á jólahlaðborð einu sinni á ári og það er um að gera að njóta sem mest. Alltaf er mikil stemning að koma í miðborgina fyrir jólin. Það er um að gera að panta snemma því það hefur verið uppselt hjá okkur undan- farin ár. Ég held að það sé alveg ástæða til að gleyma þessum erfiða tíma undanfarna mánuði og gera vel við sig fyrir jólin,“ segir Guðjón. Til að panta jólahlaðborð er best að hafa samband við Res- taurant Reykjavík í síma 552 3030 eða panta borð á heimasíðunni restaurantreykjavik.is. Framhald af forsíðu ➛ Forréttirnir eru við allra hæfi svo enginn þarf að fara svangur heim. Það eru þrettán ljúffengir forréttir í boði á jólahlaðborðinu. Hangikjötið kemur frá öllum lands- hlutum, tað-, birki- og tvíreykt. Maður fer á jóla- hlaðborð einu sinni á ári og það er um að gera að njóta sem mest. Alltaf er mikil stemning að koma í miðborgina fyrir jólin. C M Y CM MY CY CMY K RR-Jolahladbord-2.pdf 1 14.10.2020 11:06:32 2 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RJÓLAHLAÐBORÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.