Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.10.2020, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 16.10.2020, Qupperneq 28
Drög að umfangsmiklum breytingum á aðalskipulagi Reykjavíkur voru lögð fram í skipulags- og samgönguráði þann 7. október og í borgarráði Reykjavíkur þann 15. október sl. Tillögurnar fela m.a. í sér heildaruppfærslu á stefnu um íbúðarbyggð, skilgreiningu nýrra svæða fyrir íbúðir, stakar breytingar á völdum atvinnusvæðum og samgönguinnviðum, auk þess sem sett eru fram ný megin markmið í völdum málaflokkum. Tillögurnar gera enn fremur ráð fyrir því að tímabil aðalskipulagsins verði framlengt til ársins 2040. Skipulagstillögurnar, ásamt umhverfisskýrslu og öðrum fylgigögnum, hafa verið gerðar aðgengilegar á adalskipulag.is og sendar til skilgreindra hagaðila. Áformað er að kynna tillögurnar á opnum fundi sem verður auglýstur sérstaklega. Óskað er eftir því að umsögnum og athugasemdum verði komið á framfæri fyrir 20. nóvember nk. Þeir sem óska frekari upplýsinga um málið geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Ábendingum og athugasemdum við drögin má koma á framfæri á netfangið skipulag@reykjavik.is eða skriflega til Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 Endurskoðun á stefnu um íbúðarbyggð og blandaða byggð Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is Mat á umhverfisáhrifum Athugun Skipulagsstofnunar Allt að 2.500 tonna framleiðsla á laxi og laxa- seiðum í eldisstöð Laxa eignarhaldsfélags ehf. við Laxabraut, Þorlákshöfn Laxar eignarhaldsfélag ehf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulags- stofnunar frummatsskýrslu um allt að 2.500 tonna framleiðslu á laxi og laxaseiðum í eldisstöð Laxa eignarhaldsfélags ehf. við Laxabraut, Þorlákshöfn. Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 15. október—26. nóvember á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofu Ölfuss, Þjóðarbókhlöðunni og Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is. Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. nóvember 2020 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is. hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi Erum við að leita að þér? 8 SMÁAUGLÝSINGAR 1 6 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.