Fréttablaðið - 16.10.2020, Page 31

Fréttablaðið - 16.10.2020, Page 31
Í GEGNUM SKÖPUNINA ER ÉG AÐ REYNA AÐ FRELSAST OG VONANDI AÐ FRELSA AÐRA Í LEIÐINNI. Magga Eddudóttir sýnir verk sín í Gallerí Fold. Yfirskrift sýn-ingarinnar er Úthverfa. Á sýn- ingunni eru stór textílverk, pastel- myndir og skúlptúrar. „Mér finnst gaman að vinna þessa miðla saman af því að þeir tala saman og það er mýkt í þeim sem mér finnst endurspegla það sem ég hef að segja. Ég er að tjá tilfinningar og myndgera þær,“ segir Magga. „Ég byrja ekki að vinna verkin með fyrirfram ákveðna hugmynd í huga, í gegnum sköpunina er ég að reyna að frelsast og vonandi að frelsa aðra í leiðinni.“ Margt í verkunum minnir á líkamann. „Hingað til hefur alltaf verið mjög sterk líkamstenging í verkum mínum. Mér finnst líkam- inn sem fyrirbæri og tákn vera mjög áhugaverður.“ Ljósir litir eru áberandi í verk- unum. Um litanotkun sína segir Magga: „Ég nota mikið af ljósum pastellitum og er þar, held ég, að hugsa um ljós. Þegar eitthvað hrífur mann er eins og kvikni á ljósi inni í manni. Ég hugsa um leið mikið um dauðann, hann er alltaf til staðar og ekki á neikvæðan hátt. Vegna hans kann ég að meta ljósið og baða mig í því en um leið finnst mér mikilvægt að í verkunum séu einnig svartir f letir. Dauðinn gerir mann ber- skjaldaðan og það er kannski það sem við erum hræddust við að vera,“ segir Magga. Textílverkin á sýningunni eru stór og unnin með sérstökum nálum sem listakonan fær frá Bandaríkjunum. „Það er næstum eins og hugleiðsla að vinna þessi verk með nál. Ég þrykki lykkju í gegnum léreft. Lykkjan verður eftir og verkið er orðið til,“ segir hún. „Þetta eru stór verk sem nota má sem gólfmottur eða hengja upp á vegg. Mýktin í textílnum finnst mér mjög aðlaðandi og kallast á við mýktina í pastellitunum.“ Magga segist hafa tekið eftir því að börn séu hrifin af verkum henn- ar. „Þau geta verið alveg óhrædd í kringum verkin, snert þau, hallað sér upp að þeim og legið á textil- verkunum. Þannig skapast kær- leikur í kringum verkin og það þykir mér mjög skemmtilegt.“ Listakonan verður með lista- mannaspjall síðar í mánuðinum og mun sýna eitthvað af þeim aðferðum sem hún notar við gerð textílverkanna. Tilkynnt verður um spjallið á Facebooksíðu gallerísins. Sýningin stendur til 24. október. Tjáir tilfinningar og myndgerir þær Magga Eddudóttir sýnir textílverk, pastel myndir og skúlptúra í Gallerí Fold. Segir sterka líkamstengingu í verkunum. GEISLADISKUR Epicycle II Gyða Valtýsdóttir Útgefandi: Diamond „Þegar maður heyrir slæma tónlist þá er það skylda manns að drekkja henni í sam- ræðum.“ Þetta sagði Oscar Wilde, en hann gat verið einkar hnyttinn og orðheppinn. Hann sagði til dæmis um Wagner að í tónlist hans væru góð augnablik, en slæmir stundar- fjórðungar. Kannski er nokkuð til í því. Ég hugsa að Wilde myndi bara þegja ef geisladiskur Gyðu væri spil- aður fyrir hann, svona ef hann væri á lífi í dag. Þar eru nefnilega engir slæmir stundarfjórðungar, en þeim mun f leiri góð augnablik. Reyndar meira en góð. D i s k u r i n n b e r nafnið Epicycle II og er framhald af diskinum sem inn- hélt nokkrar perlur tónbók menntanna í nýstárlegum útsetningum. Að þessu sinni er fókusinn á nútíma- tónsmíðar eftir íslensk tónskáld, og allir hafa eitthvað mikið fram að færa. Verkin eru átta, og þar af eru þrjú þeirra sungin með undirspili. Grípandi söngur Sungna tónlistin er forkunnarfögur. Eitt lagið er eftir Ólöfu Arnalds, en hún býr yfir þeirri náðargáfu að geta samið unaðsfagrar melódíur. Verkið hennar heitir Safe to Love og Gyða sjálf syngur, auk þess sem útsetningin er eftir hana. Áferðin er draumkennd og þrungin ástar- vímu, smám saman fjölgar milli- röddum og tónlistin lyftist upp í einhvers konar algleymi sem líkt og rennur saman við eilífðina. Annað lag heitir Evol Lamina, sem er Animal Love aftur á bak. Það er eftir Jónsa (í Sigur Rós) og Gyðu. Tónlistin er hrá og byggist mikið til á frumstæðri hrynjandi sem hlýtur óvæntan endi. Þetta er mögnuð tónlist. Í takt við nafnið er einhvers konar öfugheitastíll á laginu, megnið af hljóðunum sem þar heyrast virðist vera leikið aftur á bak. Fyrir bragðið er tónlistin annarleg, en á sjarmerandi hátt. Þriðja sungna tónsmíðin, Liqui- dity, er eftir Gyðu og Kjartan Sveins- son. Hún hefst á angurværum píanóhljómum sem Kjartan sjálfur leikur. Síðan byrjar lágstemmdur strengjaleikur og Gyða syngur töfrandi laglínu. Tónlistin færist í aukana og útkoman er afar gríp- andi. Andstæður hljóðfæraleiks eingöngu og svo söngsins eru sterk- ar og spennandi. Þetta er lag sem maður fær auðveldlega á heilann. Fagur sellóleikur Hin verkin eru líka f lott, en þar er sellóið oft í forgrunni, enda er Gyða sellóleikari. Morphogenesis eftir Úlf Hansson er sérlega fallegt, en það hefst á síendurteknum, massífum, dálítið fjarlægum hljómum og djúp- um bassa. Yfir þessu trónir fremur einmannalegur, leitandi sellóleikur. Þessir tveir þættir skapa kröftugan skáldskap sem situr í manni eftir að tónlistin endar. Mikros eftir Önnu Þorvalds- dóttur er meira afstrakt, fullt af myrkri eins og tónlist Önnu er svo oft. Það byggir á fínlegum blæ- brigðum og dökkum, liggjandi tónum sem skapa stemningu. Air og Breath eftir Daníel Bjarnason er sömuleiðis seiðandi, dálítið angur- vært, en afar fallegt. Þar njóta sín til fulls hæfileikar Gyðu sem selló- leikara. Loks eru Unfold eftir Skúla Sverrisson og Octo eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur eftirminnileg í dáleiðandi einfaldleika. Það gerist bara ekki betra. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Magnaður geisladiskur sem verðugt er að hlusta á aftur og aftur. Góð augnablik, góðir stundarfjórðungar „Ég byrja ekki að vinna verkin með fyrirfram ákveðna hugmynd í huga,“ segir Magga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þessi pastelmynd er á sýningunni. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Dúó Edda heldur streymistónleika í Hljóðbergi Hannesarholts mánu- daginn 19. október klukkan 16, sjá facebook.com/Hannesarholt. Dúó Edda samanstendur af tveimur hljóðfæraleikurum sem eru báðir starfandi á Íslandi. Vera Panitch á fiðlu og Steiney Sigurðar- dóttir á selló. Efnisskráin samanstendur af verkum sem öll eru skrifuð á fimm ára tímabili og á svipuðum land- fræðilegum slóðum og eru eftir Schulhoff frá Tékklandi og Kodaly frá Ungverjalandi. Dúó Edda í beinu streymi Dúó Edda heldur streymistónleika. MYND/HANNESARHOLT Fyrstu Háskólatónleikar skóla- ársins fara fram miðvikudaginn 21. október klukkan 12.15 í beinni útsendingu frá Hátíðarsal aðalbygg- ingar. Þar munu djassgítarleikarinn Mikael Máni og hljómsveit hans flytja lög af plötu hans sem kom út fyrr á þessu ári. Tónleikunum verður streymt í ljósi yfirstandandi samfélags- hamlana og salurinn verður tómur, utan tæknifólks og tónlistarmanna. Tónleikarnir standa í um hálfa klukkustund. Sjá livestream.com/ hi/haskolatonleikarmikaelmani. Nýr umsjónarmaður tónleika- raðarinnar og listrænn stjórnandi er dr. Arnar Eggert Thoroddsen og segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla – tónlist fyrir alla“ á þessum komandi vetri. Arnar segist taka eigin slagorð alvarlega og að leitast verði við að fá til samstarfs tónlistarmenn sem tilheyra alls kyns geirum, svo sem poppi/rokki, djass, klassík og bara því sem álit- legt þykir hverju sinni. Fyrstu tónleikarnir verða í beinni Mikael Máni verður á Háskólatón- leikum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F Ö S T U D A G U R 1 6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.