Fjölrit RALA - 20.05.1997, Síða 51

Fjölrit RALA - 20.05.1997, Síða 51
41 Landgræðsla 1996 Norcoast og Tumi eru beringspuntsyrki, en Jóra og Unnur snarrótaryrki. Heitin eru vinnuheiti og yrkjunum hefur ekki verið lýst. Einkunnir voru hugsaðar 0-10 1996, nema mat á vetrardauða á Öxnadalsheiði er fjöldi reita. A Öxnadalsheiði. Tilraunin var metin og borið á 9. júní og aftur metin 8. sept. Þótt sáðgresið hefði verið skammt á veg komið haustið 1995 var gróðurþekja nokkuð jöfn og því má vænta þess að góður árangur muni nást við að bera saman yrki. í sumum reitum mátti sjá glögg merki þess að plöntur hefðu drepist, en hvergi var sáðgresið aldauða. Ekki reyndist unnt að gefa kali mismunandi einkunnir eftir reitum og því var aðeins skráð hvort dauðar plöntur fyndust í reitnum. í töflunni er fjöldi reita af hverju yrki þar sem þess gætti. Enn fremur virtist vöxtur misjafn eftir reitum og var það metið. Þegar metið var um haustið var áberandi á sumum reitum að plöntur höfðu verið rifnar upp við beit. Þetta var metið. I grenndinni sást hrossahópur á beit. Mismunur reita fer annars vegar eftir mismunandi beitarálagi, t.d. vegna mismunandi sprettu, og hins vegar eftir viðnámi plantnanna gegn sliti. / Hörgárdal Illa kom upp í þessari tilraun 1995 og var tvísýnt að vert væri að halda henni áfram. Niðurstaðan varð þó að einni af þrem endurtekningum var haldið við og þekja metin. Þessir reitir eru á öðrum stað en hinir. Gróður er að vísu ójafn, en gróðurþekja þó töluverð og nógu mikil til að vert geti verið að fylgjast með framvindu hennar. I töflunni eru meðaltöl einkunna 9. júní og 8. sept. Algengast var að einkunnin hækkaði um 1 frá vori til hausts nema þar sem þekjan er minnst. Mest hækkaði hún hjá Sámi, úr 2 í 5. Ekki sáust nein merki um beit. Sáningar 1996 Á Brúnastöðum Sáð var í gryfju á bökkum Svartár, neðan túns á Brúnastöðum í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði. Tilraunin er innan túngirðingar þar sem kúm er beitt. Jarðvegur er nokkuð misjafn, sums staðar er melurinn upp úr. Eldri gróður er nokkur í einni blokkinni sem er í túnjaðrinum. Jarðvegur var mjög þurr þegar sáð var, nema í túnjaðrinum, laus í sér og hætti mjög mikið til að þyrlast upp. Sáð var 10. júní. Reitastærð er 2x12 m. Reitirnir voru metnir 9. sept. Fræið hafði spírað nokkuð strjált, í toppum, væntanlega vegna þess að það hefur fokið saman og aðeins fengið festu á stöku stað í þurri og lausri, rokgjarnri moldinni. Nær enginn aðskotagróður er í 2 blokkum á melnum við ána. Ekki var því veitt athygli að tilraunin hafi orðið fyrir ágangi. Við Stangarlæk Tilraunin er í malarnámi við Stangarlæk vestan Laugarvatnsvegar í Grímsnesi. Féð á Svínavatni mun bíta þarna nokkuð. Sáð var 6. júní. Reitastærð 2,5x10 m. Skilyrði til sáningar voru góð. Sáðbeður var sæmilega rakur. Nokkur mold er í sáðbeðnum, en 1. blokk nær þó upp á mel. Náttúmlegur gróður var ekki mikill, þó meiri eftir því sem vestar dregur. Tilraunin var metin 10. sept. I tilrauninni hefur komið mjög jafnt upp, e.t.v. best uppi á melnum. Fræ hefur borist með vatnsrennsli milli reita á einum stað. Þess sáust merki að gripir hefðu komið á tilraunalandið, aðallega sauðfé, en ekki var mikil beit. Mikill haustlitur var kominn á snarrót og nokkur á beringspunt, einnig á VáFol.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fjölrit RALA

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.