Fjölrit RALA - 20.05.1997, Page 52

Fjölrit RALA - 20.05.1997, Page 52
Kynbætur 1996 42 Erfðafræðilegur stöðugleiki vallarfoxgrass við mismunandi veðurfar og ræktun (132-9279) Markmið verkefnisins er tvíþætt. í fyrsta lagi að skýra áhrif mismunandi veðurfars og meðferðar á erfðafræðilega samsetningu og stöðugleika vallarfoxgrass og að meta vöxt og þroska einstakra arfgerða við þessi skilyrði. I öðru lagi að lýsa hugsanlegum breytingum á ræktunareiginleikum og erfðafræðilegri samsetningu vallarfoxgrass þegar fræ er ræktað við önnur skilyrði en þau sem stofninn er aðlagaður. Gerð hefur verið grein fyrir verkefninu áður (Jarðræktarrannsóknir 1993, bls. 43). Sumarið 1996 var fylgt áætlun um mat í hnausasafni á ýmsum eiginleikum plantnanna, líkt og sumarið áður. Mikil afföll höfðu orðið á plöntum í tilrauninni og því var farið yfir með örgresislyfi um vorið og einungis skildar eftir þær plöntur sem meta átti. Einn liður í verkefninu er að meta arfgengi þeirra breytinga sem orðið hafa við hin ýmsu ræktunarskilyrði. Því hafa verið myndaðar afkomendafjölskyldur úr völdu stofnunum fjórtán. Var þeim sáð í 3 m2 smáreiti ásamt viðmiðunarstofnum (Öddu, Vega, Jonatan og Tuukka) þann 4. júlí 1996. Endurtekningar eru þrjár. Þekja í reitum var metin 4. október. Kynbætur á háliðagrasi (132-9945) Sumarið 1994 hófust kynbætur á háliðagrasi. Farið var á 100 bæi víðsvegar á landinu og um 2000 plöntum safnað. í flestum tilvikum var safnað úr túnum sem eru eldri en 30 ára til að tryggja að grösin hefðu sannað lífsþrótt sinn við íslenskar aðstæður. Fyrsta veturinn voru plönturnar í gróðurhúsi, en vorið 1995 var hverri plöntu skipt í þrennt og plantað út í samanburðartilraun í þremur endurtekningum. í hverri endurtekningu eru 1500 plöntur. Að samanburði loknum verða valdar út plöntur til að mynda grunn að íslenskum stofni af háliðagrasi. Sumarið 1996 var háliðagrasið metið. Gefnar voru einkunnir fyrir eftirtalda eiginleika: Skrið þrisvar sinnum Hæð, sm Vaxtarlag (upprétt, meðallagi, skriðult) Uppskera endurvaxtar (einkunn 1-5) Grófleiki (fínt, meðallagi, gróft) Skrið í endurvexti Blaðmassi (einkunn 1-5) Sveppasmit (einkunn 1-3) Uppskera í 1. slætti (einkunn 1-5) Breytileiki reyndist mjög mikill í efniviðnum. Á grundvelli þessa mats hafa verið valdir einstaklingar í framhaldsræktun og verða þeir fluttir austur á Geitasand vorið 1997. Verkefnið er styrkt af Norræna genbankanum. Lýsing á vallarfoxgrasstofnum varöveittum hjá Norræna genbankanum (132-9944) Markmið verkefnisins er að afla ýmissa grunnupplýsinga til þess að unnt sé að lýsa betur erfðaefni sem varðveitt er í Norræna genbankanum (NGB), auk þess sem ræktunareiginleikar eru metnir. Alls eru í samanburðinum um 370 vallarfoxgrasstofnar frá NGB auk nokkurra viðmiðunarstofna. Plantað var út í júní 1994. Endurtekningar eru tvær, sjö plöntur í hvorri. Sumarið 1996 voru ýmsir eiginleikar stofnanna metnir, líkt og gert var sumarið 1995. Vorvöxtur og vaxtarlag var metið 21. maí. Skriðdagur skráður í lok júní og byrjun júlí. Eftir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.