Fjölrit RALA - 20.05.1997, Síða 52
Kynbætur 1996
42
Erfðafræðilegur stöðugleiki vallarfoxgrass við mismunandi veðurfar
og ræktun (132-9279)
Markmið verkefnisins er tvíþætt. í fyrsta lagi að skýra áhrif mismunandi veðurfars og
meðferðar á erfðafræðilega samsetningu og stöðugleika vallarfoxgrass og að meta vöxt og
þroska einstakra arfgerða við þessi skilyrði. I öðru lagi að lýsa hugsanlegum breytingum á
ræktunareiginleikum og erfðafræðilegri samsetningu vallarfoxgrass þegar fræ er ræktað við
önnur skilyrði en þau sem stofninn er aðlagaður. Gerð hefur verið grein fyrir verkefninu áður
(Jarðræktarrannsóknir 1993, bls. 43).
Sumarið 1996 var fylgt áætlun um mat í hnausasafni á ýmsum eiginleikum plantnanna,
líkt og sumarið áður. Mikil afföll höfðu orðið á plöntum í tilrauninni og því var farið yfir með
örgresislyfi um vorið og einungis skildar eftir þær plöntur sem meta átti.
Einn liður í verkefninu er að meta arfgengi þeirra breytinga sem orðið hafa við hin
ýmsu ræktunarskilyrði. Því hafa verið myndaðar afkomendafjölskyldur úr völdu stofnunum
fjórtán. Var þeim sáð í 3 m2 smáreiti ásamt viðmiðunarstofnum (Öddu, Vega, Jonatan og
Tuukka) þann 4. júlí 1996. Endurtekningar eru þrjár. Þekja í reitum var metin 4. október.
Kynbætur á háliðagrasi (132-9945)
Sumarið 1994 hófust kynbætur á háliðagrasi. Farið var á 100 bæi víðsvegar á landinu og um
2000 plöntum safnað. í flestum tilvikum var safnað úr túnum sem eru eldri en 30 ára til að
tryggja að grösin hefðu sannað lífsþrótt sinn við íslenskar aðstæður. Fyrsta veturinn voru
plönturnar í gróðurhúsi, en vorið 1995 var hverri plöntu skipt í þrennt og plantað út í
samanburðartilraun í þremur endurtekningum. í hverri endurtekningu eru 1500 plöntur. Að
samanburði loknum verða valdar út plöntur til að mynda grunn að íslenskum stofni af
háliðagrasi.
Sumarið 1996 var háliðagrasið metið. Gefnar voru einkunnir fyrir eftirtalda eiginleika:
Skrið þrisvar sinnum Hæð, sm
Vaxtarlag (upprétt, meðallagi, skriðult) Uppskera endurvaxtar (einkunn 1-5)
Grófleiki (fínt, meðallagi, gróft) Skrið í endurvexti
Blaðmassi (einkunn 1-5) Sveppasmit (einkunn 1-3)
Uppskera í 1. slætti (einkunn 1-5)
Breytileiki reyndist mjög mikill í efniviðnum. Á grundvelli þessa mats hafa verið valdir
einstaklingar í framhaldsræktun og verða þeir fluttir austur á Geitasand vorið 1997.
Verkefnið er styrkt af Norræna genbankanum.
Lýsing á vallarfoxgrasstofnum varöveittum hjá Norræna
genbankanum (132-9944)
Markmið verkefnisins er að afla ýmissa grunnupplýsinga til þess að unnt sé að lýsa betur
erfðaefni sem varðveitt er í Norræna genbankanum (NGB), auk þess sem ræktunareiginleikar
eru metnir. Alls eru í samanburðinum um 370 vallarfoxgrasstofnar frá NGB auk nokkurra
viðmiðunarstofna. Plantað var út í júní 1994. Endurtekningar eru tvær, sjö plöntur í hvorri.
Sumarið 1996 voru ýmsir eiginleikar stofnanna metnir, líkt og gert var sumarið 1995.
Vorvöxtur og vaxtarlag var metið 21. maí. Skriðdagur skráður í lok júní og byrjun júlí. Eftir