Fjölrit RALA - 20.05.1997, Blaðsíða 66
Korn 1996
56
Tilraun nr. 718-96. Sprettutími byggs.
Tilraun með sáðtíma og skurðartíma byggs hefur verið gerð á Korpu tvisvar áður, það er árin
1993 og 1995. I vor er leið var tilraunin gerð enn einu sinni lítið breytt frá fyrri árum. Notað
var yrkið Mari eins og fyrr og 60 daggráður voru milli sáðtíma. Samreitir voru þrír. Fyrsti
sáðtími var 29. mars. Þá var jörð orðin að mestu þíð, en í 10-15 sm dýpt var klaki þunnur og
auðstunginn. Flagið hafði verið unnið haustið áður og jarðvinnslan í vor fólst í því að
yfirborðið var losað með garðhrífu. Að öðrum sáðtíma var komið 13. apríl. Þá var jörð orðin
klakalaus. Þriðji sáðtími var 25. apríl og sá fjórði 8. maí.
Skurðartímar voru svo sex í haust, líka með 60 daggráða millibili. Fyrst var skorið 24.
ágúst, en þá voru komnar 1080 daggráður frá síðasta sáðtíma. Frost gerði fjórar nætur í ágúst,
mest aðfaranótt þess 25. eða tæplega 6°C í axhæð kornsins. Ekki var að sjá að það hefði spillt
korninu, nema að það hafi verið frostinu að kenna að korn fór að spíra í axi þegar súldin og
hlýindin drógust á langinn. Sjötti og síðasti skurðartími var 23. september eða 30 dögum eftir
þann fyrsta. Á þeim tíma bættust við 300 daggráður og því hefur meðalhitinn verið 10°C og er
það óvenjulegt á þessum árstíma. Hitinn fór samt aldrei hærra en í 15°C. Því var eins og aldrei
fengist sá hiti sem þurfti til þess að kom næði fullum þroska. Þannig jafnaðist þroski milli liða
og snemmsánu liðirnir höfðu ekki sömu yfirburði og í fyrri tilraunum af sama tagi.
Mælikvarði á þroska kornsins er meðaltal af þúsundkornaþunga, rúmþyngd og hlut korns af
heild. Þessar þrjár mælingar fjalla í raun allar um það sama, það er flutning á forðanæringu um
stöngulinn upp í axið.
Þroski Uppskera
Mt. (þús.k., rúmþ., korn%) Korn, þe. hkg/ha
Sáð: 8.5. 25.4. 13.4. 29.3. Mt. 8.5. 25.4. 13.4. 29.3. Mt.
Skriðið: 19.7. 14.7. 9.7. 3.7.
Skorið 24.8. 32 39 42 43 39 24,7 30,8 35,0 33,0 30,9
Skorið 31.8. 34 40 43 44 40 25,2 30,6 35,8 35,7 31,8
Skorið 6.9. 37 42 44 46 42 29,0 33,9 36,0 36,6 33,9
Skorið 12.9. 41 44 45 48 44 29,7 35,2 33,9 33,4 33,1
Skorið 17.9. 43 45 46 49 46 30,1 34,6 34,0 35,7 33,6
Skorið 23.9. 44 44 45 47 45 34,0 35,0 36,3 36,9 35,6
Meðaltal 38 42 44 46 43 28,8 33,4 35,2 35,2 33,1
Þús. kom Rúmþ. Kom af heild Kornuppsk. Frítölur
g g/lOOml % hkg þe./ha
Meðaltal alls 30,8 58,1 39,4 33,1
Staðalfrávik á stórr. 1,88 1,93 2,13 4,82 6
Staðalfrávik á smár. 1,34 1,87 1,60 3,10 40
Skálínur í töflunni ofan frá og niður á við til vinstri sýna þroska og uppskeru eftir
jafnlangan sprettutíma í daggráðum talið. Þroski er miklu jafnari þetta árið en áður hefur sést.
í tilrauninni var þúsundkornaþungi á bilinu 22-35 g, rúmþyngd 50-61 g/lOOml og korn-
hlutur 24-50%. Til samanburðar má nefna að í tilraunum sumarsins var Mari best þroskað í
Miðgerði og þar mældist það 42, 72 og 43 í sömu röð. Kornið á Korpu náði sem sé ekki nema
liðlega 80% af þeim kornþunga og rúmþyngd sem náðist í Eyjafirði þrátt fyrir langt og hlýtt
sumar á Korpu. Vantað hefur heita daga á Korpu þann tíma sem kornfylling stóð yfir.