Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Qupperneq 7

Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Qupperneq 7
YFIRLIT ® / óupphituðu gróðurhúsi úr plasti reyndust fljótvaxnar gulrœtur af stofninum Nantes Napoli vel. ® Óvenjulegar gerðir matjurta af ýmsu tagi geta aukið ánægju manna af garðrækt, einkum í heimilisgarðrœkt, en atvinnumenn geta einnig ræktað slíkar jurtir til að auka fjölbreytni á markaðinum. Parísar gulrætur eru t.d. hnöttóttar og litlar og margir telja að þœr séu Ijúffengari en venjulegar gerðir af gulrótum, t.d. Nantes. Notkun heiðgulra gulróta, t.d. af stofninum Palatinato er skemmtileg tilbreyting í matargerð. ® Ræktun agúrkna heppnast allvel í óupphituðum plastgróðurhúsum. Þetta á við um allar gerðir agúrkna; gróðurhúsagúrkur, þrúgugúrkur og asíur. Rœktun á asíum heppnaðist best. ® Agúrkur verður að ala upp í heitu gróðurhúsi og gróðursetja þær ekki í köldu gróðurhúsi fyrr en nokkuð öruggt er að næturhiti fari ekki niður fyrir 3-4°C. Á Hvanneyri hefur venjulega verið óhætt að fœra plönturnar í kalda húsið fyrstu dagana í júní. Frá gróðursetningu á Wilma og þar til fyrstu asíurnar voru tíndar liðu að meðaltali 32 dagar og svipaður dagafjöldi var hjá flestum hinna afbrigðanna. ® Af asíum reyndust afbrigðin Lisanna, Nadina, Jolina og Wilma vel. Aðeins var reynt eitt afbrigði af gróðurhúsagúrkum, Minibar, sem gaf minni uppskeru en bestu afbrigðin afasíum. ® Reynt var að rœkta papriku, tómata og mergju í óupphituðu plastgróðurhúsi með slökum árangri. ® Reynd voru fimm afbrigði af blaðsalati. Plönturnar voru forrœktaðar. í óupphituðu plastgróðurhúsi virðist uppskerafást 40-60 dögum eftir sáningu. ® Reynd voru ellefu aýbrigði af höfuðsalati. Af smjörsalati reyndust Atlanta, Orestro og Tannex vel, af íssalati Nabucco og Webbs Wonderful og af Bataviasalati, Hanson Improved. 1

x

Rit Búvísindadeildar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.