Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Qupperneq 10
TILRAUNAAÐSTÆÐUR
í þessari ritsmíð þýðir orðið tilraun, rannsókn með minnst tvær endurtekningar á
hverri meðhöndlun, það er að segja svo nefnda samreiti. í athugun er hins vegar
aðeins einn reitur með hverri meðhöndlun.
Athuganir og tilraunimar voru allar gerðar í plastgróðurhúsum, sem sagt er
frá hér að framan. Gróðurhúsin standa á mýrarjarðvegi og eru innan skjólbelta frá
1957 og 1958. Jarðvegurinn er 1-1,5 m djúpur. Rúmþyngd hans er 0,2-0,3 g/cm^
og glæðitap 55-65%.
Veðurfarið hefur mikil áhrif á sprettu jurta í óupphituðum plastgróður-
húsum. Enda er sólin eini hitagjafinn. f heiðskýru veðri verður mjög heitt í
húsunum á daginn, en á nætumar kólna þau mikið. Það er ákaflega nauðsynlegt
að opna húsin þegar heitast er. Það er vandamál, þegar verið er með margar
tegundir plantna í sama húsi, að þær gera mismunandi kröfur til hita. Veðurfarið
ræður því hvert hitastigið verður í húsunum og gróðurhúsunum verður að þjóna í
samræmi við það.
Veðurathuganir sem getið er um á töflum 1 og 2 vom gerðar á Hvanneyri í
samvinnu við Veðurstofu íslands. Birtar eru niðurstöður þeirra yfir sprettu-
mánuðina. Tölumar ero fengnar úr tilraunaskýrslum Bændaskólans á Hvanneyri.
1. tafla. Meðalhiti (°C) á Hvanneyri árin 1984-1995.
Table 1. Mean temperature (°C) at Hvanneyri in May - September 1984-1995.
Ár Maí Júní Júlí Ágúst September
1984 5,7 9,5 11,3 9,8 6,8
1985 6,9 9,5 9,7 9,5 5,0
1986 4,6 8,7 10,0 9,3 6,4
1987 6,4 9,6 11,3 10,7 6,9
1988 6,6 8,5 10,3 10,5 5,9
1989 4,4 8,8 10,0 9,8 6,7
1990 6,9 9,5 11,9 10,6 6,0
1991 7,2 8,9 12,9 10,9 6,4
1992 5,7 8,1 9,9 9,7 6,2
1993 4,8 8,9 9,0 9,1 8,5
1994 6,6 7,7 12,1 10,0 5,9
1995 5,0 7,2 10,5 10,5 8,0
4