Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Side 18

Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Side 18
3. Blaðgrænmeti 3.1 Beðja (Beta maritima) Beðja er náskyld rauðbeðura. Hún er lítið notuð á íslandi, en sunnar í Evrópu er hún algeng matjurt. Áður hefur verið sagt frá ræktun á beðju árið 1982 (Magnús Óskarsson, 1989). Þá var spínatblaðka (Lucullus) ræktuð og tókst það vel. 11. tafla. Uppskera af beðju. Table 11. Varíeties and mean yield ofchard. Stofn Varieties Ár í athugunum Years of observations Uppskera, kg/rn^ Mean yield, kg/nfi Donkerone Gladde Witribbig 1989 2,0 Fordhook Giant 1989 1,9 Mangold . 1994 1,8 Árið 1989 var beðjan ræktuð undir trefjadúk. Dúkurinn skemmdi útlit plantnanna. Árið 1994 var beðja af afbrigðinu Mangold frá Log. ræktuð í óupphituðu plastgróðurhúsi. Um miðjan september höfðu um 40% af plöntunum njólað. 3.2 Blómasalat í blönduðu blómasalati (Flower petal salad) voru fimm tegundir blómjurta. í athugun, sem gerð var árið 1992, í óupphituðu gróðurhúsi, döfnuðu blómin vel, uppskera var alls 4,79 kg/m^. Hver tegund blóma var ekki vegin sérstaklega. Breskar leiðbeiningar segja, að það eigi að uppskera plöntumar snemma á morgnanna, vegna þess að þá sé mestur sykur í þeim. Á Hvanneyri reyndust blómin visna mjög fljótt, þannig að blóm, sem skorin vom upp að morgni, vora visin að kvöldi. Sáð var til blómanna í óupphituðu gróðurhúsinu 14. maí, byrjað að uppskera blómin 13. júlí og uppskera lokið 10. ágúst. 3.3 Garðsúra (Rumex acelosa) Sáð var garðsúrum árin 1991 og 1992. Árið 1993 fékkst uppskera af garðsúrum, sem sáð var árið áður. 12 tafla. Uppskera af garðsúru. Table 12. Yield ofsorrel._____ Ár Year Uppskera, kg/m^ Mean yield Uppskerutímabil Growing period 1991 9,5 25. júní - 10. sept. 1992 6,2 2. júlí - 10. sept. 1993 3,1 8. júní - 9. sept. 12

x

Rit Búvísindadeildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.