Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Qupperneq 42

Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Qupperneq 42
Garðablóðberg eða timían Eins og vænta mátti tókst vel að rækta garðablóðberg inni í óupphituðu plast- gróðurhúsi, enda er það víða ræktað úti í görðum. Árið 1994-1995 lifði garða- blóðbergið af veturinn, þó að plastið væri tekið af gróðurhúsinu. Það getur verið að lífslíkur plantnanna séu meiri, vegna þess að þær hafa getað búið sig undir veturinn í gróðurhúsinu, áður en plastið var tekið af. Kerfíll Það er auðvelt að rækta kerfil í óupphituðu plastgróðurhúsi. Enda segir Hafsteinn Hafliðason (1989): "Best er að sá kerflinum í slöttum, með u.þ.b. viku til hálfsmánaðar millibili fram eftir sumri. Ræktunin tekur aðeins um 4-6 vikur." í þeim athugunuin, sem gerðar voru á Hvanneyri voru plöntumar aldar upp í heitu gróðurhúsi, en trúlega hefði mátt sá þeim beint út í kalt gróðurhús, en þá hefði dregist lengur fram á sumar að fá uppskeru. Mintur Það reyndist engum vandkvæðum bundið að rækta hrokkinmintu, grænmintu og piparmintu í óupphituðu plastgróðurhúsi. Á Hvanneyri vom blöð mintanna aðallega notuð sem skraut á mat og ofurlítið sem krydd. Líklega era þó mintur þekktastar fyrir að vera tejurtir, einkum piparmintan og grærtmintan. í Finnlandi eru mintur mikið notaðar og margir bændur rækta þær (Galambosi, B. 1994). Minturnar eru látnar lifa af veturinn sé það unnt, enda er meiri uppskera af þeim annað árið en það fyrsta. Salvía Uppskera af salvíu hefur verið lítil, þó sáð hafí verið til hennar á vorin í heitu gróðurhúsi og henni síðan plantað út í óupphitað plastgróðurhús. Hoppe, E. (1988) segir: "Salvía er fjölær og ætti að geta lifað af veturinn í gróðurhúsum." Salvían lifði veturinn 1994-1995 af, þó plastið væri tekið af húsinu um haustið. Sumarið eftir var uppskeran mun meiri en af fyrsta árs plöntum. Hoppe, E. (1988) segir að það sé meira kryddbragð af ungum plöntum en gömlum. Steinselja Steinselja skiptist í tvær gerðir, önnur er með tiltölulega slétt blöð en hin með hrokkin blöð. Seinni gerðin er aðallega notuð í Norður-Evrópu. Eftir athugunum á Hvanneyri að dæma, virðist ganga ágætlega að rækta báðar gerðir í óupphituðum plastgróðurhúsum. 0ijord, N.K. (1981) segir að í Norður - Noregi beppnist að sá steinselju beint út í óupphituð plasthús, sé sáð um mánaðrmótin mars/apríl. Hann segir einnig að plönturnar lifi af veturinn, ef þær eru huldar hálmi. 36

x

Rit Búvísindadeildar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.