Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Qupperneq 43
Dillja (Anetum graveolens) og Meiran (Majorana hortensis)
Magnús Óskarsson (1989) skýrir frá ræktun á dillju (dilli) í óupphituðu plasthúsi
á Hvanneyri árið 1982. Ræktunin gekk vel.
Meiran, sem hiotið hefur mörg nöfn, kryddmæra, majoram og mejram, var
ræktuð tvisvar í plastgróðurhúsi á Hvanneyri. Árið 1984 heppnaðist ræktunin
fremur illa. Árið 1988 var meiran ræktuð aftur og þá með mun betri árangri.
Krydd- og tejurtir í óupphituðu plasthúsi
Krydd- og tejurtir voru eingöngu athugaðar á litlum reitum í óupphituðum
plastgróðurhúsum á Hvanneyri. Aðallega var reynt að komast að því hvort vöxtur
jurtanna væri viðunandi, lélegur eða óviðunandi. Þetta mat tilraunafólks er tekið
saman á töflu 30.
30. tafla. Mat á hæfni kryddjurta til vaxtar í köldu plastgróðurhusi á Hvanneyri.
Table 30. Evaluation of how suitable herbs are to grow in an unheated plastic greenhouse at
HvanneyrL________________________________________________________________________________
Ræktun heppnaðst vel Cultivation was successful Ræktun heppnaðist miður vel Cultivation was partly successful Ræktun heppnaðist illa Cultivation was unsatisfactory
Dillja (Dill) Basilíka (Basil) Aru's (Anise)
Esdragon (Tarragon) Meiran (Marjorams) Rósmarín (Rosemary)
Garðablóðberg (Thyme) Konander (Coriander)
Kamilla Salvía (Sage)
Kertill (Chervil) Sfgóð (Fennel)
Mintur (Mints)
Síeinselja (Parsley)
Jurtir, sem fá þá umsögnina að ræktun hafi heppnast miður vel, er trúlegt
að megi rækta á Hvanneyri með þolanlegum árangri í góðum árum. Æskilegt væri
að velja bestur staðina í gróðurhúsinu fyrir þær.
í tilraunum, sem gerðar voru í Finnland, kom í ljós að magn af rokkendum
olíum í kryddjurtum var meira í jurtum, sem ræktaðar voru í gróðurhúsum en
þeim, sem ræktaðar voru úti (Galambosi, B. et.al. 1994). Styrkur kiyddbragðsins
fer eftir magni rokkenndra olía.
í tilraunum í Lapplandi kom í ljós, að þar var hægt að rækta margar
tegundir kryddjurta á bersvæði. Kryddjurtir frá Finnlandi voru betri en samskonar
jurtir frá Mið-Evrópu, að því leyti að í þeim mældist minna af blýi og kadmíum.
Rækíun á matjurtum í óupphituðum plastgróðurhúsum
Ræktun í óupphituðum plastgróðurhúsum krefst stöðugs eftirlits yfir sumarið. í
heiðskíru veðri á miðju sumri er nauðsynlegt að loftræsta vel, t.d. að hafa dyr
opnar, annars verður alltof heitt í húsunum. Þó að jarðvegur hússins standi í
sambandi við blautan jarðveg fyrir utan, þá verður að vökva, því að í sólheitum
37