Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Side 44

Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Side 44
húsunum er mikil uppgufun. í heimilisræktun veldur það nokkrum vanda, að ræktaðar eru margar tegundir matjurta í sama húsi. En mismunandi tegundimar geta þurft mismunandi atlæti. Sumar þola t.d. mikinn hita og rakt loft en aðrar ekki. Á eftirfarandi yfirliti er getið nokkurra þeirra matjurta, sem unnt er að rækta til heimilis í óupphituð plastgróðurhúsi. 31. taílíi. Mat á vermæti jurta, sem unnt er að rækta í óupphituðu gróðurhúsi. Table 31. Evaluation of how suitable it is to grow horticultural crops in an unheated plastic greenhouse.___________________________________________________________________________________ Áætluð uppskera kg/m^ Estimated mean yield kg/m2 Verð Kr./kg Price Icl. crown per kg Verðmæti Kr. alls. Value, Icl. crown Asfur 5,5 454 2497 Blaðlaukur 3,0 450 1350 Blaðsilla 3,5 450 1575 Gulrætur 4,5 256 1152 Höfuðsalat 4,0 250 1000 Rauðlaukur 2,0 147 294 Verðið er miðað við verðskrá Ágætis (1995) fyrir september að viðbættum 14% virðisaukaskatti. Skatturinn er reiknaður með vegna þess, að ef grænmetið er ekki ræktað í heimilisgarðinum, þá þarf að kaupa það í verslunum, með virðisaukaskatti. Rétt er að minna á að listinn er gerður á grundvelli athuganna á Hvanneyri, niðurstaðan gæti orðið önnur í öðrum landshlutum. Áætluð uppskera er miðuð við góðar aðstæður á Hvanneyri. Það má reikna með, að efniskostnaður við byggingu á óupphituðu plastgróðurhúsi úr galvaniséruðum rörum og gróðurhúsaplasti, sem endist í þrjú ár, sé um 245 kr/mÁ Við útreikningana eru notaðar magntölur um efni í plasthús frá Einari E. Gíslasyni (1984). Verð á 0,2 mm plasti er fengið hjá Gróðurvörum sf. (1995). Ef unnt er að nota dúkinn í meira en þrjú ár lækkar það kostnaðinn. í þessari ritgerð er ekki fjallað um rauðbeður og kínakál, en því hafa nýlega verðið gerð skil (Magnús Óskarsson, 1995). Það eru að sjálfsögðu fleiri matjurtir, sem auðvelt er að rækta í köldu gróðurhúsi, en ekki er getið um í töflu 31, t.d. ertur, mergja og sykurmaís. Ýmsar aðrar jurtir er eins gott að rækta úti eða undir ódýrari gróðurhlífum. 38

x

Rit Búvísindadeildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.