Rit Búvísindadeildar - 20.07.1996, Síða 36

Rit Búvísindadeildar - 20.07.1996, Síða 36
hitastigið er lágt. Á Hvanneyri var kálið alið upp í heitu gróðurhúsi og þá er lítil hætta á að plönturnar njóli, ef að þær eru teknar upp á eðlilegum tíma. Vaxtartími hnúðkáls er það stuttur að erfitt getur verið að gera upp við sig hvort nota eigi plöntuvamarefni gegn kálflugu. Ef það er gert, verður það að vera efni, sem eyðist fljótt, svo að það valdi ekki hættu eða ótta hjá fólki. Stöngullinn fyrir neðan hnúðinn er harður og að því er virðist óaðgengilegur fyrir kálmaðkinn. Samt skemmdi maðkurinn um 15% af uppskerunni árið 1994 og nokkrar skemmdimar urðu einnig árið 1995. Hnúðkál þolir vel að vera undir trefjadúk og dúkurinn dró greinilega nokkuð úr skemmdum af völdum kálmaðks, þó að aðeins væri notaður venjulegur 17 g/m^ dúkur. Gulrófur Gulrófa er tiltölulega ný nytjajurt, sem sennilega hefur orðið til við blöndun káls (Brassica oleraceá) og næpu (Brassica campestris) (Weisæth, G. 1975). Gulrófnaplöntur em þess vegna hvergi til villtar. Gulrófu er fyrst lýst í Þýskalandi árið 1620. í upphafi var hold rófnanna líklega hvítt, en um árið 1800 em gular rófur komnar fram á sjónarsviðið (Bjelland.O. og Balvoll G., 1976). Þegar fyrri tíðar menn, t.d. Bjöm Halldórsson (1783), tala um næpur eða rófur, eiga þeir fyrst og fremst við næpur, en hugsanlega aðra rótarávexti. Hjá Orðabók Háskólans finnst orðið gulrófa líklega fyrst á prenti árið 1863. í blaðinu íslendingur segir J.B. (1863): "Undirjarðarkálrabinn, sem einnig er kallaður kálrófa eða gulrófa, og sem allur almenningur þekkir, gefur stærri ávöxt en yfirjarðar kálrabbinn." Yfirjarðar kálrabbi er sennilega næpa. Samkvæmt þessu hefur "allur alrnenningur" þekkt gulrófu um miðja 19. öld. Schierbeck, land- læknir, segir um gulrófur árið 1886: "Þessi jurt er og mun að líkindum ávallt verða sú matjurt, sem mest er ræktuð á vom landi. í mörgum görðum er hún ræktuð alveg eingöngu." Innrás kálflugunnar breytti þessu. Geir Gígja og Ingólfur Davíðsson (1947) segja: "Kálmaðka varð fyrst vart í Reykjavík um 1930, og um 1940 fór að bera vemlega á þeim á Akureyri. Nú [1947] em þeir víðast á svæðinu frá Borgarfirði og þaðan suður og austur um land, austur á Síðu.” Hagtölur um kaitöfluframleiðslu og gulrófnaframleiðslu virðast vera óáreiðanlegar, sennilega m.a. vegna þess að misbrestur er á að uppskera úr heimiíisgörðum komi fram á skýrslum. Um neysluna er enn minna vitað vegna þess að kartöflur hafa oftar verið fluttar inn en gulrófur. Hér að neðan er reiknað út hlutfallið á milK kartöfluframleiðslu og gulrófnaframleiðslu á íslandi í nokkur ár á þessari öld, samkvæmt hagskýrslum. Árin 1901 - 1910 var ræktað 1,4 sinnum meira af kartöflum en gulrófum, árin 1911 - 1920 var ræktað 2,0 sinnum meira af kartöflum en gulrófum, árin 1921 - 1930 var ræktað 2,6 sinnum meira af kartöflum en gulrófum, árin 1931 - 1935 var ræktað 2,5 sinnum meira af karíöflum en gulrófum, árin 1936 - 1940 var ræktað 4,3 sinnum meira af kartöfium en gulrófum, árin 1941 - 1950 var ræktað 8,9 sinnum meira af kartöflum en gulrófum og árin 1985 - 1990 var ræktað 17,5 sinnum meira af kartöflum en gulrófum. (Búnaðarskýrslur 1964 - 1967 og Landshagir 1991 og 1995). 30

x

Rit Búvísindadeildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.