Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Qupperneq 48
46 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
burður á verkan tveggja lyQa á alla gula
klasagerla, sem hverju sinni finnast.
Lyfin eru penísillín og orbenín:
Penísillín hefur fulla verkan á gula klasagerla:
1970 ...................................í 56,87% tilfella
1971 ...................................í 68,85% tilfella
1972 ...................................í 67,96% tilfella
1973 ...................................í 61,96% tilfella
1974 ...................................í 59,67% tilfella
1975 ...................................í 65,30% tilfella
1976 ...................................í 58,93% tilfella
1977 ...................................í 70,39% tilfella
Orbenín hefur fulla verkan á gula klasagerla:
1970 ....................................í 96,87% tilfella
1971 ....................................í 97,77% tilfella
1972 ....................................í 94,75% tilfella
1973 ....................................í 95,30% tilfella
1974 ....................................í 98,37% tilfella
1975 ....................................í 88,96% tilfella
1976 ....................................í 91,54% tilfelia
1977 ....................................í 97,39% tilfella
Ekkert hefur komið fram, sem bendi til
aukins ónæmi gulra klasagerla fyrir or-
beníni, þó það hafi verið mikið notað um
árabil. Orbenín er unnið öðruvísi en flest
önnur fúkalyf, þar sem hluti þess er unnin
í rannsóknarstofum (semísýntetískt lyf).
Arangur baráttu við júgurbólgu í júgurbólgur-
annsóknarstofu:
Árið 1969 voru rannsökuð mjólkursýni úr
öllum mjólkandi kúm á 25 býlum með
júgurbólguvandamál. Var mjólk úr öllum
júgurhlutum rannsökuð tvisvar, og fór
seinni rannsókn fram mánuði eftir að
læknisaðgerð lauk eftir fyrri rannsókn.
Einnig var leiðbeint um val virkustu lyfja.
Niðurstaða varð þessi:
Tala býla var 25.
Tala mjólkurkúa var 489.
Tala mjólkurkúa með júgurbólgu var
113 (23.10%).
Tala júgurhluta með júgurbólgu var
215 (47.56%).
Júgurbólguorsakir: keðjugerillinn str.
agal. í 88 júgurhlutum (19.46%). Gulir
klasagerlar (aureus) í 102 júgurhlutum
(22.56%).
Seinni rannsókn:
Tala býla og mjólkurkúa óbreytt.
Tala kúa með júgurbólgu 39 (7.97%).
Tala júgurhluta með júgurbólgu 25%
af 39 kúm.
Smit með keðjugerlinum str. agalactiae
var horfið, en smit með gulum klasagerl-
um (staph. aureus) hafði minnkað úr 102
júgurhlutum í 39, en það svarar í heild til
66% lækningar. Væri sagan ekki lengri,
má telja þetta mjög góðan árangur eftir
eina læknisaðgerð.
Nýsmit.
í öllum þessum fjósum var verulegt júg-
urbólgusmit við upphaf rannsókna. Við
því mátti þess vegna alltaf búast, að eitt-
hvert nýsmit yrði milli rannsókna og
læknisaðgerða. Nýsmit reyndist vera með
keðjugerlinum str. agalactiae í 25 júgur-
hlutum og nýsmit með gulum klasagerlum
(staph. aureus) í 49 júgurhlutum, sem
voru heilbrigðir í fyrri rannsókn.
Þessar niðurstöður sýna, hversu ört
júgurbólga getur breiðzt út meðal
mjólkurkúa í' fjósum með útbreidda júg-
urbólgu. Þó er ljóst, að úr júgurbólgu hef-
ur dregið á umræddu skeiði, úr 215 smit-
uðum júgurhlutum í 113, tæplega um
helming. Væri rannsóknum og aðgerðum
haldið áfram á þessum býlum, mundi júg-
urbólgusmitið minnka niður í viðráðan-
legt ástand. Þó að árangur læknisaðgerða