Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Side 49
JÚGURBÓLGA í ÍSL. KÚM 47
á þessum 25 býlum megi teljast góður,
reyndist nýsmitið svo mikið, að ljóst er, að
til þess að ná markvissum og verulegum
árangri (bata) verður að leggja stóraukna
áherzlu á „umhverfisvernd“ mjólkurkúa,
því að þetta er smitnæmur sjúkdómur.
Arin 1967—71 fóru fram rannsóknir og
læknisaðgerðir til skipjis, líkt og að framan
greinir, þ. e. ein eða fleiri rannsóknir og
læknisaðgerðir á milli, á sex býlum. Á öll-
um þessum býlum reyndist júgurbólga
veruleg. Á íjórum býlanna fóru aðeins
fram tvær rannsóknir með læknisaðgerð á
milli. Hin tvö býlin voru stór, smit mikið,
og ákveðið að reyna til þrautar að berjast
gegn júgurbólgunni.
Niðurstöður voru þessar:
Býli Tala kúa Tala með kúa júgurbólgu Tala júgur- hluta með júgurbólgu
A 22 10 15
eftir aðgerð 16 0 0
B 15 9 19
eftir aðgerð 13 2 2
C 29 10 19
eftir aðgerð 28 3 4
D 25 5 7
eftir aðgerð 30 0 0
E 25 19 36
eftir 4 aðgerðir 25 5 6
F 64 27 40
eftir 7 aðgerðir 58 3 3
Rannsóknir á býlunum E og F hófust í
júní 1967. Eftir fjórar rannsóknir á býli E
(1968) var engin júgurbólga talin þar vera
að undanskildu nýsmiti í fimm kúm og sex
júgurhlutum og skipulögðum rann-
sóknum hætt þar. Á býlinu F var árangur
aðgerða eftir hverja rannsókn að jafnaði
góður, frá 75-90% lækning eftir hverja
rannsókn og læknisaðgerð. Fjósið er hins
vegar hjarðfjós, sem ekki er unnt að sótt-
hreinsa eins og t. d. básafjós. Því var kún-
um skipt í tvo hópa með bráðabirgðavegg
á milli. Kýr eru þar mjólkaðar á mjalta-
bás, og voru júgurhraustar kýr mjólkaðar
fyrst hverju sinni. Reynt var um skeið að
nota aðeins einn mjaltaklút til þess að
hreinsa júgur hverrar kýr, en síðan var
notuð spenaídýfa með joðblöndu á alla
spena eftir mjaltir, einnota pappírsþurrk-
ur með sótthreinsunarefni í og sett geld-
stöðulyf í alla spena við geldingu kúa.
Vandamálið þar er fjósgerðin, sem er pall-
eða lausgöngufjós og ekki unnt að breyta á
skömmum tíma. Aðgerðir þessar voru
bæði dýrar og tímafrekar, en bóndinn
ákvað að berjast til þrautar við þennan
vágest, sem olli honum árlega miklu fjár-
hagstjóni.
Rétt er að taka fram, að aðgerðir gegn
júgurbólgu gefa sjaldan vonir um full-
komna lækningu. Til þess eru einkum líf-
fræðilegar orsakir hjá kúm með gamla,
króníska júgurbólgu. Er þá oft hluti
mjólkurvefsins varanlega skemmdur, og í
staðinn myndast örvefur (bris, hnyklar),
þar sem lyf komast ekki að vegna
skemmdra mjólkurrása. I þessum örvef
hreiðia gerlarnir um sig og breiðast þaðan
út í umliggjandi mjólkurvef, þegar mót-
stöðuafl kýrinnar minnkar einhverra
hluta vegna.
Þessar rannsóknir og fjöldi annarra sýna
þó, að með tilkomu júgurbólgurann-
sóknarstofu, sem getur kortlagt allt júgur-
smit í fjósum ásamt hreinræktun júgur-
bólgugerla, sem eru að verki hverju sinni,
og rannsókn á, hvaða lyf ber að nota með
beztum árangri, batnar öll aðstaða og
vonir vakna í baráttunni við þennan al-
genga sjúkdóm.