Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Page 8
6 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
mikil áhrif meðaltíminn, mín/kú á dag,
hefur á vinnumagn allt árið. Frávik, er
nemur tveimur mín., þar sem 30 kýr eru
að jafnaði mjólkandi, veldur einfaldlega
um klukkustund á dag í vinnusparnaði
eða lengri vinnutíma.
Af framansögðu má því vera ljóst, að
þeir, sem eru með ranga eða óhentuga
tækni við mjaltir, geta með hagræðingar-
aðgerðum minnkað vinnumagnið veru-
lega. í annan stað má benda á, að mjalta-
vinna er svo mikill þáttur í heildarvinnu
á kúabúum, að sterklega ber að taka til
athugunar aðgerðir, sem miða að því að
bæta vinnuaðstöðuna, þó að þeim fylgi
nokkur aukakostnaður.
1. TAFLA.
Rciknuð vinna við mjaltir, klst. á ári.
Table 1. Calculated working time spent milking (hrs/yr)
Mjallalími Vleðalíjöldi ntjólkandi kúa á
m. mín/kú á dag dag
Milking time Mean number of milking cows
man min/cow day. ----------------------------------
10 20 30 40 50
6 ................. 365 730 1095 1460 1825
8 ................. 487 973 1460 1947 2433
10 ................ 608 1217 1825 2433 3042
Vinnuskipulag við mjaltir á fjósbásum
Við mjaltir á fjósbásum er algengast að
nota svonefnd rörmjaltakerfi. Með því er
átt við tvöfalda pípulögn, sem leidd er um
fjósið langs eftir hverri básaröð. Önnur
lögnin er fyrir mjólkina, oftast nær glerrör,
en hin fyrir loftstreymi, soglögn úr járnrör-
um. Mjaltatækin eru síðan tengd án
milliliða við báðar lagnirnar og mjólkin
þannig leidd í lokuðu kerfi úr fjósi í
geymslutank. Breytileiki í gerð röímjalta-
kerfa er einkum háður básaskipan í
hverju fjósi, en að öðru leyti eru þau í
aðaldráttum öll eins. Lögnin er nær alltafí
seilingarhæð fyrir ofan herðakamb kúnna
eða nokkru aftar.
I tvístæðufjósum með fóðurganga við
útveggi má mjólka báðar raðir í einu og
stytta þannig vegalengdir við mjaltir. Sé
hins vegar lögð áhersla á vinnuhag-
ræðingu við heyfóðrun, er hafður sam-
eiginlegur fóðurgangur.
Á 1. mynd má sjá algengt fyrirkomulag
vinnu við mjaltir á legubásum (Nielsen,
1972, og Krabbe, 1976). Tölurnar sýna
röð verkþátta þannig: Fyrst eru kýr nr. 1,3
og 5 undirbúnar, því næst eru vélarnar
settar á í sömu röð. Þegar mjöltum kýr nr.
1 er að ljúka, er kýr nr. 2 undirbúin og
vélarnar því næst færðar yfir á hana. Að
því búnu er kýr nr. 4 undirbúin og vélar-
nar svo settar á hana af kú nr. 3. Þessari
vinnutilhögun er síðan haldið áfram, þar
til mjöltum er lokið. Þá má nefna, að fá-
anlegur ýmis aukabúnaður til vinnusparn-
aðar eða þæginda við rörmjaltakerfi. Má
þar nefna mjaltasjá, sogbreyti (duovac) og
sjálfvirkan þvottabúnað.
Gerð mjaltabása og vinnuskipulag í þeim
Við mjaltir í mjaltabás stendur mjalta-
maður uppréttur í gryfju, en kýrnar
standa á gryfjubrún, skorðaðar af grind-
verki. Mjaltabásinn er jafnan afsíðis við
eða í fjósi, þó þannig, að auðvelt sé að
koma kúnum þangað til mjalta og burtu
aftur. Biðsvæði fyrir kýrnar er oftast
samfara mjaltabás, þar sem þær bíða
mjaltanna. Biðsvæðið ásamt mjaltabásum
krefst því húsrýmis umfram rörmjalta-
kerfi. Auk þess þarf básabúnaður að
vera þannig, að fljótlegt sé að koma kún-
um af eða á legubásana, þar sem .ekki er
lausaganga.
I mjaltabásunum er komið fyrir rör-
mjaltakerfi, en lagnir eru oftast mjög stuttar,