Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Page 21
MJALTAVINNA f BÁSAFJÓSUM 19
aður sé svipaður í báðum tilvikum, þegar
mjólkurkýr eru um 80.
Það, sem hins vegar skiptir máli og
raunhæft er að líta á í þessu sambandi, er
það, hvað bætt vinnuaðstaða kostar á
unna klukkustund. það má t. d. kanna á
þann hátt að lækka tímakaup við mjaltir í
mjaltabásum, þar til hcildarkostnaður
verður hinn sami og við mjaltir á fjósbás-
um. Niðurstöður þeirra útreikninga koma
einnig fram á 6. mynd. Þær sýna, að mun-
ur í tímakaupi verður um 28%, sé vinnu-
magnið sem svarar 20 mjólkandi kúm. Sé
hins vegar miðað við 40 kýr, er munurinn
um 14% og við 60 kýr um 8%. Annað
atriði, sem einnig er athugandi í þessum
samanburði, er það, að verulegur hluti
mjaltatímans er utan venjulegs vinnu-
tíma. Væri eðlilegt, að sá tími væri á öðr-
um launataxta, en það hefur eðlilega
nokkur áhrif á niðurstöðutölur. Til athug-
unar á þessu atriði er hér tekið dæmi, þar
sem helgarmjaltir eru reiknaðar á yfir-
vinnutaxta, þ. e. 4 mjaltir af 14 eða um
29% tímans. Það hefur í för með sér, að
kaup hækkar að jafnaði um tæp 19%.
Niðurstöður þeirra útreikninga eru einnig
sýndar á 6. mynd. Má þar sjá, að áður-
nefndar tölur um mun á tímakaupi lækka
niður í um 24% við 20 kýr, um 11 % við 40
kýr og um 6% við 60 kýr.
Af þessari umfjöllun er ljóst, að mjaltir á
mjaltabás eru verulega kostnaðarsamari
en mjaltir með rörmjaltakerfi á fjósbás. Ef
þessum kostnaðarauka er skipt á vinnu-
stundir við mjaltir, samsvarar hann um
24—28% af launum mjaltamanns, þegar
um 20 mjólkandi kýr er að ræða, um
11—14% við 40 kýr og um 6—8% við 60
kýr.
Önnur atriði.
Hér að framan hefur verið fjallað um þau
atriði, sem talin eru skipta mestu máli í
samanburði á mjaltaaðferðum. En það
eru vissulega fleiri atriði, sem vert er að
gaumgæfa, þegar ákveðið er um aðbúnað
við mjaltir, og verður hér drepið á nokkur
þeirra.
Vinna við eiginlegar mjaltir (nettó) er
minni, þegar mjólkað er á mjaltabás.
Mjaltabásum fylgir aftur vinna við ræst-
ingu á þeim sjálfum og fjósstéttum. Hins
vegar er ekki þörf á, að mjaltafólk annist
þá vinnu, ef annar vinnukraftur er til-
tækur. Með mjaltabás má haga mjöltun
þannig á sumrin, að ekki þurfí að taka
kýrnar í fjós. Hreinsun á fjósi er þá óþörf,
og vegur það upp á móti vinnu við
hreinsun mjaltabása.
Mjaltabásum fylgir nokkur aukakost-
naður við gerð básmilligerða í fjósi, því að
kýrnar eru að jafnaði lokaðar á básunum
og milligerðin því lengri. Aftur á móti spar-
ast kostnaður og vinna við hálsbönd. Um
innistöðutímann fá kýrar nokkra hreyf-
ingu, þegar þær fara til mjalta á mjalta-
bás. Ymsir telja, að þessi hreyfing hafi
töluvert gildi fyrir kýrnar, auk þess sem
auðveldara er að fylgjast með beiðslum
þeirra. Aftur á móti er nokkur slysahætta
af þessum gönguferðum kúnna, ef stéttar
eru hálar og flórristar óhentugar. Varð-
andi mjaltirnar sjálfar er talið, að mun
auðveldara sé að venja kvígur við mjaltir á
mjaltabás en á fjósbás, auk þess sem betra
er að hemja óþekkar kýr á mjaltabás.
I mjaltabásum er venjulega góð lýsing,
svo að auðveldara er að fylgjast með júg-
urheilbrigði kúnna, og ýmiss konar júg-
urmeðhöndlun er auðveldari. Hins vegar
tefur öll einstaklingsmeðhöndlun í mjalta-
bás mjaltirnar meira en gerist við mjaltir