Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Blaðsíða 30
28 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
saman í eina viku á undan. Sýnin voru
þurrkuð við 70°C, möluð, og síðan voru
vikusýnin sett saman í mánaðarsýni. Ættu
þessi sýni að gefa rétta mynd af því heyi,
sem ærnar fengu.
Allar voru selenmælingar gerðar með
afbrigði Gissel-Nielsen af flúorljómunar-
aðferð Watkinsons (1960).
Ekki var unnt að gera nema 18 mæl-
ingar í einu með tækjabúnaðinum, sem
notaður var, og þar af voru ávallt tvær
blindprufur og tveir staðlar. Einnig var
mælt heystaðalsýni, sem ýmist var útbúið
hér eða fengið frá Danmörku.
Heystaðallinn, sem var búinn til hér, var
allstórt sýni af grasméli, vandlega
blönduðu og geymdu í loftþéttu íláti. Sel-
en var mælt í báðum þessum heystöðlum í
Risp í Danmörku á rannsóknarstofu G.
Gissel-Nielsen. Sveiflustuðull (coefficient
of variation) er 10% fyrir heysýni. Þau
verða aldrei mjög einsleit (homogen), og
veldur það breytileikanum.
Blóð var tekið í Venoject-glös úr 16 ám í
þurrheyshópnum og fyrst úr 16 ám í vot-
heyshópnum, en síðan úr 14 í þeim hóp,
eftir að tvær af blóðtökuánum veiktust.
Helmingur blóðtökuánna fékk kjarnfóður
um fengitímann. Tekið var blóð þrisvar
um veturinn og einu sinni haustið 1980,
þegar ærnar komu af fjalli. Ekki var þá
hægt að ná sömu ánum og höfðu verið í
blóðtökuhópnum um veturinn, en þess í
stað tekið úr jafnmörgum ám úr hvorum
tilraunahóp um sig. Einnig var tekið blóð
úr fimm hrútum. Þeir voru fóðraðir á
þurrheyi og fóðurbæti.
Virkni glutathion peroxidasa var einnig
mæld í heilblóði með EDTA-storkvarnar-
efni. Notuð var aðferð, sem er byggð á
mælingaraðferð Paglia og Valentine
(1967) með nokkrum breytingum. Upp-
hafsstyrkur hvarfefna var: NADPH 0.12
mM, GSH 3.0 mM, kúmenhýdróperoxíð
0.2 mM. EDTA var 4.0 mM, natríumazíð
4.0 mM, glutathion reduktase ein eining í
mælingu. Lokarúmmál var 3.0 ml. Notað
var 0.1M natríumfosfatbuffer pH 7.0,
hitastig 37°C. Heilblóð var hemólýserað
skv. Thompson et al. (1976). Blóðið var
geymt við 4°C og ensímvirkni mæld innan
48 klst. eftir blóðtöku. Selen var mælt í
úrtaki af heilblóðsýnum.
Selen í blóði var mælt í frystum sýnum,
sem höfðu verið tekin í glös með EDTA-
storkvarnarefni og síðan .geymd einn til
tvo mánuði, þangað til tími vannst til að
þíða þau og mæla. Sveiflustuðull selen-
mælinganna var 5% fyrir blóðsýni.
Albúmín, tótal prótein, ólífrænn
heilblóði sauðfjár frá Hvanneyri.
Fig. 1. The correlation of selenium concentration to GPx
activity in whole blood samples of the Hvanneyri sheep.