Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Blaðsíða 37
ÍSL. LANDBÚN.
j. agr. res. icel. 1981 13, 1-2: 35-39
Meðgöngutími íslenskra kúa
Gunnar Ríkharðsson
og
Jón Viðar Jónmundsson,
Bœndaskólanum á Hvanneyri.
YFIRLIT
Raktar eru niðurstöður rannsóknar á meðgöngutíma íslenskra mjólkurkúa. Meðaltal 4223 meðgöngutíma
reyndist 286.5 dagar og meðalfrávik 4.86 dagar.
Kýr, sem báru í febrúar, gengu lengur með kálf en aðrar kýr.
Fyrsta kálfs kvígur gengu rúmum tveimur dögum skemur með kálf en fullorðnar kýr.
Kýrnar reyndust ganga réttum degi lengur með nautkálf en kvígukálf. Tvíkelfmgar hafa 4.5 dögum
skemmri meðgöngu en eitt fóstur.
Arfgengi notað sem eiginleiki mæðra var 0.13±0.04, en sem eiginleiki fósturs 0.27±0.05.
INNGANGUR
I almennum leiðbeiningum hér á landi
hefur meðgöngutími íslenskra kúa verið
talinn um 280 dagar. í athugun, sem
Ólafur R. Dýrmundsson gerði (1980),
kom fram, að meðalmeðgöngutími 43 kúa
var 289 dagar. Fóðrun mjólkurkúa síðustu
daga geldstöðu og um burð er almennt
FYRRI RANNSÓKNIR.
Eins og að framan segir, er ekki að finna
eldri hérlendar rannsóknir á meðgöngu-
tíma kúa en áðurnefnda athugun ÓLAFS R.
Dýrmundssonar (1980).
Yfirlit um erlendar rannsóknir á með-
talin hafa veruleg áhrif á mjólkurfram-
leiðslu þeirra næsta mjólkurskeið. Því
varðar nokkru að gera sér glögga grein
fyrir væntanlegum burðartíma kúnna.
H ér verður greint frá rannsókn á með-
göngutíma íslenskra kúa, sem mun fyrsta
rannsókn á þessum þætti.
göngutíma nautgripa (Gunnar RíK-
HARÐSSON, 1981) sýna þetta m. a.: Veru-
legur munur er á meðgöngutíma einstakra
nautgripakynja. Meðaltöl eru á bilinu
273—293 dagar. Holdanautakyn virðast