Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Side 46

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Side 46
44 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR hrútum, er sú, að mæður lambanna undan dætrum hrútsins mega ekki vera hluti af afkvæmahóp hrútsins, til þess að forsend- an standist, sem aðferðin er miðuð við. I skránum er aðeins sameiginlegt meðaltal einlembinga, og koma þeir ekki með í út- reikningana af þeirri ástæðu. Rannsóknin er gerð eftir upplýsingum um alls 3325 hrúta, með upplýsingar um 182675 tvílembingshrúta og 204587 tví- lembinga undan dætrum þeirra. I 1. töflu getur að líta skiptingu gagn- anna eftir sýslum. Niðurstöður I 1. töflu eru niðurstöður sýndar í ein- stökum sýslum og landinu sem heild. Þá er gert ráð fyrir, að arfgengi beggja þátta sé jafnt (h2d=h2œ=0.20). Erfðafylgnin reynist samkvæmt þessu neikvæð —0.43. Rétt er að benda á, að mjög lítill breytileiki er í niðurstöðum eftir sýslum. Mér eru ekki kunnar aðferðir til að meta skekkju á þessari erfðafylgni. Niðurstöðurnar verða verulega háðar þeim forsendum, sem gefnar eru um arf- gengi þáttanna. Þetta er sýnt í 2. töflu. Greinilegt er þó, að í þessum gögnum er þessi erfðafylgni neikvæð, því að óraun- hæft virðist að ætla annað en arfgengi þáttanna liggi innan þeirra marka, sem sýnd eru í 2. töflu. Rétt er að glöggva sig á hugsanlegum skekkjuþáttum í þessum útreikningum. Erfitt er að gera sér grein fyrir, hvort úrval geti hugsanlega skekkt útkomuna. Þegar reynsla er fengin um hrúta sem lambafeð- ur, er líklegt, að bændur taki einnig tillit til þess, sem þeir vænta af þeim vegna ætt- ernis sem ærfeðra, þegar þeir ákveða, hvort þeir skuli notaðir áfram. Slíkt getur hugsanlega aukið á neikvætt samband, þó 2. TAFLA. Erfðafylgni beinna áhrifa og móðuráhrifa við breytilegt arfgengi þáttanna. TABLE 2. Estimated genetic correlation between direct and maternal effects assuming different values for h2 and A2 h2 m 0.1 0.2 0.3 0.1 -0.36 -0.61 -0.78 0.2 -0.25 -0.43 -0.55 0.3 -0.21 -0.35 -0.45 að áhrif þess geti ekki verið mikil, þar sem úrvalið er ekki mikið af mörgum ástæðum. Stöku sinnum eru hrútar enn í notkun sem lambafeður, þegar dætur þeirra eru komnar í framleiðslu. Þetta verður ósjál- frátt til að mynda neikvætt samband. Rétt er þó að benda á, að þetta samband virðist ekki síður neikvætt hjá sæðingarstöðvar- hrútunum, þar sem þessi skýring kemur ekki til greina. Umrœður Niðurstöður þær, sem hér hafa fengist, eru í ágætu samræmi við takmarkaðar er- lendar rannsóknir á þessum erfðateng- slum, sem gerð er grein fyrir hér að framan. Engar fullgildar skýringar eru til á slíku neikvæða erfðasambandi. Meðal holda- nauta (Koch, 1972) er þó þekkt, að mjög ör vöxtur kvígukálfa, vegna þess að móðir mjólkar mjög vel, kemur fram í skertri mjólkurframleiðslu, þegar kvígan kemst á þann aldur að fara að mjólka. Ég tel, að þess séu dæmi hér á landi meðal dætra sæðingarhrúta, að hrútar, sem gefa mjög

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.