Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Síða 81
ÍSL. LANDBÚN.
j. agr. res. icel. 1981 13, 1-2: 79-82
Klórkolefnissambönd
(alfa-, beta- og gamma-HCH, DDT, DDD, DDE, HCB og
PCB-efni)
í íslensku smjöri 1968-1982
PORKELL J ÓHANNESSON
lœknir
Rannsóknastofu Háskóla Islands í lyfjafrœði
°g
JÓHANNES F. SKAFTASON
lyfjafmbingur
Rannsóknastofu Háskóla Islands í lyfjafrœdi
ÚTDRÁTTUR
Ákvarðað var magn ísómera hexaklórcýklóhexans (alfa-, beta- og gamma-HCH), DDT og umbrotsefna
þess (DDD, DDE) í samtals 88 smjörsýnum frá íslenskum mjólkurbúum á tímabilinu 1968-1982. Sýnum
var safnað í fernu lagi á nefndu tímabili. Leitast var við að ákvarða einnig hexaklórbenzen (HCB) og
pólýklórbífenýlsambönd (PCB-efni) í sýnum frá síðari hluta tímabilsins. Alfa-HCH var í öllum sýnum, en
fórjafnt og þétt minnkandi. DDT og umbrotsefni þess voru ekki í mælanlegu magni í smjörsýnum eftir 1978
og sama máli gegndi um gamma-HCH. Beta-HCH var einnig horfið úr sýnum, sem safnað var 1981-1982.
Óvíst er, hvort PCB-efni voru í sýnum síðustu tveggja ára og HCB var þar við greiningarmörk. Magn
alfa-HCH í íslensku smjöri verður ekki að fullu skýrt, nema gert sé ráð fyrir aðkominni, loftborinni mengun.
Sama máli virðist einnig gegna um HCB og PCB-efni.
í Rannsóknastofu í lyfjafræði hefur verið
fylgst með ýmsum klórkolefnissambönd-
um í smjörfitu allt frá árinu 1968. Var
einkum leitast við að ákvarða DDT (kló-
fenótan) og umbrotsefni þess (DDE og
DDD), ísómera hexaklórcýklóhexans
(alfa-, beta- og gamma-ísómera), en síðar
einnig hexaklórbenzen (HCB) og að
nokkru leyti pólýklórbífenýlsambönd
(PCB-efni).
Af þessum efnum hefur notkun ísómera
hexaklórcýklóhexans (HCH) sennilega
verið útbreiddust hér á landi, en blanda
þeirra hefur verið notuð til þess að útrýma
kláðamaur í sauðfé (Gammatox (R)). Af
ísómerum hexaklórcýklóhexans er
gamma-ísómerinn virkastur gegn mau-
rum og skordýrum. Hann nefnist lindan
(hexicíð). Er það efni enn fremur notað í
garðyrkju, einkum við rófnarækt (sbr. Jó-
HANNES SKAFTASON & PORKELL JÓHANN-
esson 1979a). Notkun DDT hefur á
undaníörnum árum hér á landi og na-
lægum löndum fyrst og fremst verið