Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Blaðsíða 34
32 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
un bandarísku jarðfræðastofnunarinnar
(U.S. Geological Survey) einna mest verið
höfð til hliðsjónar (1. tafla). Þessi flokkun
lands og landsnytja er að mestu fólgin í því,
að notaðar eru myndir frá gervihnöttum og
loftljósmyndir til að gera kort eftir. Hún
hefur hlotið nokkuð almenna viðurkenn-
ingu, m. a. innan Alþjóðalandfræðisam-
bandsins.
Við flokkun landsnytja og land-
greiningu eftir fjarkönnunargögnum hafa
svipuð undirstöðuatriði verið höfð að
leiðarljósi og í öðrum löndum. Varla er
unnt að setja saman flokkunarkerfi, sem
1. TAFLA.
Flokkun bandarísku jarðfræðastofnunarinnar á landi og landsnytjum eftir fjarkönnunargögnum (1. og 2.
flokkunarstig).
Aðalflokkar (1. stig) Undirflokkar (2. stig)
1 Borgir og bæir
2 Landbúnaðarland
3 Beitiland
4 Skógar
5 Vötn
6 Votlendi
7 Auðnir
8 Túndra
9 fs, sísnævi
11 íbúðarbyggð
12 Viðskipti og þjónusta
13 Iðnaður
14 Samgöngur, fjarskipti, almenningsveitur
15 Iðnaðar- og viðskiptahverfi
16 Blönduð borgarbyggð
17 Annað borgarland
21 Akrar og ræktað beitiland
22 Aldinræktar-, vínyrkju- og blómaræktarsvæði, garðyrkja
23 Fóðrunarhólf
24 Annað ræktað land
31 Graslendi
32 Kjarrlendi
33 Beitiland með blönduðum gróðri
41 Laufskógar (sumargrænir)
42 Sígrænir skógar
43 Blandskógar
51 Ár og skurðir (skipaskurðir o. fl.)
52 Stöðuvötn
53 Miðlunarlón
54 Óshólmasvæði, ármynni
61 Skógi vaxið votlendi
62 Skóglaust votlendi
71 Saltauðnir
72 Fjörur, strendur
73 Sandar
74 Grjót, klettar
75 Opnar námur, malar- og grjótnám
76 Land þar sem nýting er að breytast (byggingarsvæði o. þ. h.)
77 Aðrar auðnir
81 Túndra vaxin kjarri og lyngi
82 Grasi vaxin túndra
83 Gróðurlaus túndra
84 Votlendistúndra
85 Óaðgreind (blönduð) túndrusvæði
91 Sísnævi
92 Jöklar