Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Síða 44

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Síða 44
42 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR algengt að framleiðsla, vörugeymsla, heildsala og smásala séu saman í húsum eða hverfum, og oft er þetta allt viðfangs- efni sama fyrirtækis. Svæði, þar sem landnýting er margs konar, eru nefnd blönduð borgarbyggð (17). Þar er t. d. íbúðarbyggð, verzlun og iðnrekstur með tilheyrandi gatnakerfi, sem er svo samfléttað, að ógerningur er að sýna það hvert um sigálandsnytjakorti. Slíkum svæðum fækkar þó eftir því sem flokkunar- stigum fjölgar og mælikvarði korts stækk- ar. Þeirri reglu má fylgja, þegar 2-3 flokkunarstig eru notuð, að land sé talið til blandaðrar byggðar, ef þriðjungur lands- ins er notaður til annars en þess, sem er meginlandnýting á svæðinu. Annað borgar- eða bæjarland (18) er einkum land, þar sem byggð er lítil eða engin, bæði ræktað land og skipulagt og einnig órækt- að. Y miss konar garðar, íþrótta- og útivist- arsvæði eru þar með talin. Rœktuðu landi (181) er skipt í sjö 4. stigs flokka, en óræktuðu landi (182) í þrjá. Rétt þykir að forðast nafngiftir eins og „autt og ónotað land“ og „opin svæði“, vegna þess, hvað þær eru ónákvæmar. Landbúnaðarland (2) er næsti meginflokk- ur. Það má skilgreina sem land, þar sem landbúnaðarframleiðsla er aðallega stund- uð. Mörk þessa flokks og annarra eru yfirleitt sæmilega glögg hér á landi. Helzt er, að skil milli búskaparlands og votlendis (6) séu óglögg, og stundum er erfitt að greina á milli gras- eða mólendis (31, 32) og framræstra mýra, sem hér eru taldar til ræktaðs beitilands (212), af því að hvort tveggja er, að landið þornar og verður því hentugra beitiland, og svo breytist gróður- farið við þurrkun landsins. Flæðiengjar og áveitur (213) eru einn af undirflokkum ræktaðs lands og er þar fylgt erlendri venju, þar sem flæði- og áveituland eru flokkuð þannig. Ekki er víst, að allir felli sig við slíka flokkun hér, en nefna má, að áveitur þær, sem unnið var að hér á landi frá því um 1910 ogfram undir 1940, voru á þeim tíma taldar mestu jarðyrkjuframkvæmdir, sem ráðizt hafði verið í hérlendis (Sigurður Sigurðsson, 1937). Eftir að skurðgröfur Vélasjóðs komu til sögunnar, var líka töluverð framræsla vegna engjaræktar í ýmsum héruðum (Arni G. Eylands, 1951). í flokkun Andersons o. fl. (1. tafla) eru 2. stigs flokkar landsnytja, sem eru varla eða alls ekki til hér á landi. Þeim er þó haldið samræmisins vegna, t. d. nr. 23, 61 og 71. Fyrstnefndi flokkurinn, fóðrunarhólf (23), eru girt svæði, þar sem fjöldi nautgripa eða annars búfjár er fóðraður, og slíka bletti er ekki rétt að telja með beitilandi. Þá er 3. aðalflokkur, beitiland (e. range- land) nefndur gróið þurrlendi í þeirri flokk- un, sem hér er birt. Það þykir eiga betur við íslenzkar aðstæður, og hæpið verður að telja að „beitiland" þekkist á loftmyndum eða öðrum fjarkönnunargögnum, sbr. yfirskrift flokkunarinnar í 1. töflu. Þegar kemur að 3. stigs flokkun landbún- aðarlands (2) og gróins þurrlendis (3), þarf upplýsingar til viðbótar loftmyndum, eins og á svæðum, þar sem byggð er samfelld (1). Þarflaust þykir að fjölyrða um 2. og 3. stigs flokka þurrlendisins, og nægir að benda á meginflokka þá sem notaðir eru á gróðurkortum (Gylfi Már Guðbergsson 1981a; Steindór Steindórsson, 1981). Þegar flokkur 333, blandaður gróður, er notaður, skalfylgjasömu„þriðjungsreglu“ og lýst er hér að framan um „blandaða borgarbyggð“ (17). Sú regla á reyndar víðar við, þar sem margs konar landnýting er á sama svæði. Skóglendi (4) er skipt í laufskóga (41) og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.