Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Page 67

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Page 67
SPRING GRAZING 65 ÁHRIF ÓTÍMABÆRRAR VOTBEITAR Á BEITARÞOL OG ÞRIF BÚFJÁR Niðurstöður íslenzkra rannsókna hafa sýnt, að ótímabær vorbeit á úthaga og túnum getur dregið úr afrakstri beitar- plantna. Þannig benda bráðabirgðaniður- stöður beitartilrauna í Sölvholti og Keldu- hverfi til þess, að mikil beit snemma á gróðrartíma geti dregið mjög úr vexti plantna og afrakstri haglendisins. Þó að almennt (kvalítatift) samspil árstíðabund- innar framleiðslu beitarplantna og beitar- þols úthaga sé í flestum atriðum vel þekkt, liggja fyrir takmörkuð töluleg (kvantítatíf) gögn um það, hve mikill nýgræðingur skuli vera kominn að vori, áður en búpeningi er hleypt á landið. Skynsamleg beitarmeðferð skapar hámarksmagn kolvetnaforða í plöntunni og mikinn blaðvöxt, áður en beitt er. Að hinu leytinu ber að gæta þess að fara ekki yfir skaðlegt lágmark í þessum efnum. Með því að bíða með vorbeit, þar til plönturnar hafa byggt upp uppurna kol- vetnissjóði, má tryggja meiri og jafnari fóðurframleiðslu það, sem eftir er sumars. Á þann hátt má auka beitarþol og afrakstur búpenings á hverja flatareiningu beiti- lands. Auk framangreindra atriða má minna á, að þrif beitarpenings eru oft léleg, þegar SAMANTEKT Hérlendis, þar sem sumur eru stutt og vetur langir, er sérstaklega mikilvægt, að hver einstaklingur í haga skili sem mestum afurðum. Sé vorbeit hafin ofsnemma, leiðir það til minnkandi plöntuframleiðslu, sem svo kemur fram í minnkandi þyngdar- aukningu búfjár og minni heildarfram- leiðslu á hverja flatareiningu beitilands. beit er hafin of snemma að vori. í 1. töflu erufærðar niðurstöðurfrá írlandi, þarsem afrakstur búpenings var mældur sem fa.ll af þeirri tímasetningu, þegar vorbeit hófst. Þessar niðurstöður sýna, að daglegur vaxt- arauki beitarpenings getur aukizt mjög verulega með lítilli frestun beitar. Að hinu leytinu er fóðurgildi beitarplantna mest í byrjun gróanda. Og sé beit frestað um of, getur af því hlotizt minnkandi daglegur vaxtarauki búsmalans. Því er æskilegt að kanna með tiltækum ráðum ástand gróðurs á vorin og leita þess vaxtarstigs, þar sem þrif beitarpenings verða sem bezt, án þess að helztu beitarplöntur bíði veru- legan hnekki. En þó að hinar írsku niður- stöður gildi í grundvallaratriðum fyrir íslenzk beitilönd, verða þær ekki yfirfærðar í bókstaflegum skilningi, með því að íslenzkur úthagi er að jafnaði miklu ófrjórri. Enn fremur er það brey tilegt frá ári til árs, hvenær hæfilegt er að hefja vorbeit, vegna ólíks veðurfars og staðhátta. Þess vegna ætti að meta vandlega, eftir atvikum með aðstoð efnagreininga, vaxtarstig og vaxtarhraða tiltekinna beitarplantna og hleypa búpeningi á landið með hliðsjón af slíku mati. Séu haglendi beitt snemma vors ár eftir ár, breytist samsetning gróðurlenda í þá veru, að lélegar beitarplöntur ná smám saman mestri útbreiðslu. Getur þannig dregið mjög verulega úr afrakstri gróðurlenda bæði í bráð og lengd sé beit hafin of snemma á gróðrartímabilinu.

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.