Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Síða 72

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Síða 72
70 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR rannsóknum á gærugæðum er að finna í Fjölriti RALA nr. 64 (Stefán Aðalsteins- son og Jón Tr. Steingrímsson, 1980). Nýr áfangi í ræktun á gráu fé til gæruframleiðslu hófst árið 1979, en þá ákvað Búnaðarfélag Islands að hefja rækt- un á gráu og svörtu feldfé (Sveinn Hall- grímsson, 1979). í beinu framhaldi af þeirri ákvörðun var hafist handa um það vorið 1980 að dæma útbreiðslu, gerð og gljáa lokks í vorlömbum á Reykhólum í því skyni að kanna hvort einkunnir fyrir lokkgæði á nýfæddum lömbum segðu í einhverjum mæli fyrir um lokkgæði sömu lamba við haustvigtun og hvort einkunnir lifandi lamba að vori og hausti tengdust að einhverju leyti einkunnum, sem gefnar væru fyrir lokkgæði á sútuðum og klipptum feldskinnum. Lömb, sem fæddust á Reykhólum vorið 1980, fengu einkunn fyrir lokkgæði nýfædd og aftur við haustvigtun, og pelsasútuðum gærum afsláturlömbum það ár voru einnig RANNSÓKNAREFNI OG AÐFERÐIR Einkunnakerfi það, sem notað var til að gefa lömbum fæddum 1980 einkunnir fyrir útbreiðslu, gerð og gljáa lokks að vori, við haustvigtun og eftir sútun, er sýnt í 1. og 2. töflu hér á eftir. Skinnumaflömbumfráárinu 1981 voru gefnar einkunnir fyrir lokkgæði eftir sútun samkvæmt skilgreiningunni í 2. töflu. Bæði haustin var skinnum gefin einkunn fyrir tvískinnung og dökk hár, og er einkunna- kerfinu fyrir þessa eiginleika lýst í 3. töflu. Bæði árin voru sútuðu skinnin flékkuð í tvennt að sútun og klippingu lokinni eftir því hvort þau voru talin hæf til pelsagerðar eða ekki. Þau sem voru talin nothæf í gefnar einkunnir. Lömb sem fæddust vorið 1981 fengu hins vegar hvorki einkunnir að vori né við haustvigtun, en pelsasútuðum gærum afsláturlömbum það ár voru gefnar einkunnir að lokinni sútun og klippingu. Bráðabirgðauppgjör á ýmsum niðurstöð- um frá árinu 1980 hafa birst áður (Stefán Aðalsteinsson og Jón Tr. Steingrímsson, 1980; Stefán Aðalsteinsson, Ingi Garðar Sigurðsson og Jón Tr. Steingrímsson, 1981). Hér á eftir verður gerð grein fyrir fylgni milli einkunna sem lifandi lömbum voru gefnar að vori og hausti 1980 og fylgni þeirra við einkunnir á gærum af sömu lömbum eftir sútun. Þá verða einnig teknar saman tveggja ára niðurstöður einkunna- gjafar á sútuðum gærum frá Reykhólum haustin 1980 og 1981 og reiknað arfgengi ýmissa feld- og skinneiginleika auk svip- fars- og erfðafylgni milli þeirra ásamt fylgni þessara eiginleika við þunga lamba á fæti. pelsagerð fengu einkunnina 1 fyrir pels- gæði, en hin einkunn 0. Einkunnagjöf var hagað þannig, að starfsmenn tilraunastöðvarinnar á Reykhólum gáfu vorlömbum einkunnir. Einkunnir lamba við haustvigtun gáfu starfsmenn tilraunastöðvarinnar og Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins í samein- ingu og sömuleiðis einkunnir fyrir pelsgæði og tvískinnung í loðsútuðum gærum. Númer var látið fylgja hverri gæru frá sláturhúsi og í allri vinnslu. Var það gert þannig, að í sláturhúsi voru gærurnar merktar með plastmerki með raðtölu, sem lambið fékk við slátrun. Var þetta merki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.