Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Qupperneq 75
ERFÐIR FELDGÆÐA OG SKINNGÆÐA 73
yfir svipfarsfylgni í 7., 8. og 11. töfllu hafa
verið reiknaðar út, eftir að gögnin höfðu
NIÐURSTÖÐUR
í 4. töflu eru sýnd meðaltöl lamba, sem
fæddust vorið 1980. Ná þau meðaltöl til
feldeiginleika 317 hvítra og mislitra lamba
við fæðingu og haustvigtun og feldeigin-
leika skinnanna af sömu lömbum eftir
sútun. Þá eru einnig sýnd í 4. töflu meðaltöl
af þunga þessara lamba á fæti, fallþunga
þeirra og gæruþunga ásamt skinnþunga
eftir sútun og skinnþunga eftir sútun á
hvern dm2. Allmargar tölur úr sama
talnasafni og hér er notað hafa birst áður í
Frey (Stefán Aðalsteinsson o. fl. 1981).
Svolitlu munar á sumum útkomum þar og
hér og stafar sá munur sumpart af því, að
færri gærur koma fyrir hér en í þeirri grein,
og sumpart af því, að hér er notuð dálítið
breytt uppgjörsaðferð frá því, sem þar var
gert, því að hér er leiðrétt fyrir aldursflokk
mæðra og aldri lamba, en þar ekki.
í 4. töflu eru sýnd þau meðaltöl, sem
fram koma við útreikninga eftir aðferð
minnstu kvaðrata (method of least squa-
res), þar sem aðfelling stuðla (fitting of
constants) er notuð til að finna meðaltöl
einstakra stiga hverrar flokkunar um sig
óháð öllum öðrum flokkunum. Meðaltöl
sem fundin eru á þann hátt, verða hér á eftir
kölluð aðfelld meðaltöl.
í 5. töflu er sýnt, hvaða stuðlar í 4. töflu
eru marktækir, þ. e. hvaða flokkanir hafa
marktæk (raunhæf, significant) áhrif á
hina einstöku eiginleika í 4. töflu.
Kyn lamba hefur þannig haft marktæk
áhrif á feldgæði eftir sútun, og þar hafa
gimbrarnar vinninginn. Hrútar hafa hins
vegar haft marktæka yfirburði í þunga á
verið leiðrétt fyrir öllum flokkunarat-
riðum.
fæti, fallþunga, gæruþunga og þunga
klipptra skinna eftir sútun.
Fjöldi lamba við fæðingu hefur ekki haft
áhrif á feldgæðaeiginleikana, nema hvað
gerð lokks á vorlömbum hefur fengið
marktækt hærri einkunn á tvílembingum
en á einlembingum og þrílembingum.
Fjöldinn við fæðingu hefur hins vegar mjög
mikil og marktæk áhrif á allar þungatöl-
urnar í 4. töflu, þar sem einlembingarnir
eru með hæstu tölurnar. Þrílembingarnir
eru með lægstan þunga á fæti og fallþunga,
en tvílembingarnir eru með lægstan gæru-
þunga og skinnþunga eftir sútun.
Hvergi munar á feldeiginleikum eftir
aldursflokkum áa nema hvað gljáaeinkunn
að vori hefur reynst marktækt hærri á
lömbum undan veturgömglum ám heldur
en eldri ám. Aldur mæðra hefur hins vegar
haft mjög mikil og marktæk áhrif á allar
þungatölur, eins og við mátt búast.
Aldur lambanna árið 1980 hefur haft
mjög lítil áhrif á öll feldgæðaatriðin, en
glögg áhrif á þungatölurnar, eins og sést í
neðri hluta 4. og 5. töflu.
Feður lambanna hafa haft væg eða engin
áhrif á þá eiginleika, sem skoðaðir voru,
eins og fram kemur í aftasta dálki 5. töflu.
Arfgengi þeirra eiginleika, sem ein-
göngu voru mældir árið 1980, er sýnt í 6.
töflu. Þar sést, að arfgengi á útbreiðslu
lokks er 0.16, og á gerð lokks er það 0.17, en
á gljáa að vori og útbreiðslu, gerð og gljáa
lokks að hausti reyndist arfgengið 0. Þá sést
í 6. töflu, að arfgengi gæruþungans haustið
1980 reyndist einnig vera 0.